10.4.11

Kosningar heima

Ísland var í fréttunum hér í morgun, þjóðin er aftur búin að hafna Icesave samningunum.  Ég veit ekki hvað ég hefði gert, ef ég byggi enn heima. Ég myndi eflaust hafa sett mig vel inn í málið og kosið af sannfæringu, en ég hef ekki kosningarétt, og hef ekki fylgst nógu vel með fréttum til að hafa neina skoðun á málinu. Það er kannske best að fylgjast bara með úr fjarska og þurfa ekki að taka þátt í leiknum.

8.4.11

Garðvinna

Loksins, eftir margra daga rok og rigningu, stytti upp. Ég tók daginn snemma að venju, klukkan 8 var ég búin að þvo eina vél, hengja út á snúru og byrjuð að reita illgresi. Fyrst á dagskrá vað að hreinsa  beðin sem ég er vön að sá narsturssium fræjum í, og stinga upp gamalt beð og gróðursetja þar  tvær nokkuð stórar lúpínur sem voru í pottum í fyrra.  Um hádegið far tekið matarhlé, og mér til ergelsis var mér alveg ómögulegt að koma mér í gang aftur. Ég var uppgefin.  Agalegt að vera orðin gömul.  Eftir góða hvíld tókst mér að dragnast út og gróðursetja nokkrar plöntur sem ekki máttu bíða, og taka inn þvottinn. 

7.4.11

Út að borða

Okkur finnst góð tilbreyting í því að fara út að borða. Við förum alltaf í hádeginsmat, því húsbóndanum er illa við að aka eftir að fer að dimma. Við förum yfirleitt á sama stað, en ef við prófum nýjan stað, þá þarf að lesa matseðilinn fyrst, til að ganga úr skugga um að annarhvor þeirra tveggja rétta sem sá vanafasti vill neyta sé örugglega á matseðlinum. Djúpsteikt ýsa í raspi og franskar, eða djúpsteiktir humarhalar í raspi - og franskar. Hann segist ekki vilja taka neina áhættu, og sitja uppi með eitthvað sem honum finnst vont. Hann situr svo alsæll með brasið sitt, meðan ég gæði mér á einhverju sem ég hef aðldrei smakkað áður. 

3.4.11

Góðan daginn

Sólin skín, vorið er komið og í dag höldum við uppá 14 ára brúðkaupsafmælið okkar. Mér til undrunar - og mikillar ánægju - beið mín rómantískt kort og ávísun á eldhúsborðinu þegar ég kom niður í morgun.  Að venju ætlum við að halda uppá daginn með því að fara út að borða.

28.3.11

Vorið 2011

Undanfarna daga hefur verið bjart veður, sólskin, en kalt á nóttunni. Það hefur viðrar vel til garðvinnu, svo ég hef verið á fullu við að snyrta til, hreinsa dauðan gróður frá því í fyrra, og hlúa að því sem er farið að stinga upp kollinum. 
Laukarnir eru farnir að koma upp, og fosythiu runninn sunnan við hús er farinn að blómstra. Í gær tókum við garðstólana okkar út, og drukkum 3-kaffið í sólinni. Það er semsagt komið vor, og garðurinn virðist ætla að koma nokkuð vel undan vetri. Það sama er ekki hægt að segja um okkur, því höfum elst mikið.

25.3.11

Föstudagsþrifin

Ég var að ljúka vikulegri tiltekt, á mettíma.  Nú er þetta bara rútína, það eru engin moldug loppuför á gólfunum, engar drulluslettur á hurðum og gereftum, engin ský af hundahárum í hornum og undir stólum. Ég sakna kannske ekki þrifanna, en ég sakna hennar, sem kom inn blaut og moldug, dillaði rófunni og hristi sig duglega, og skipti um feld tvisvar á ári.

22.3.11

"Gera" listinn 2011

Endurnýja vegabréfið:   Búið
Panta og fara í ristilspeglun: Búið.
Panta og fara í augnskoðun og panta ný gleraugu: Búið.
Skattaframtalið: Búið.
Endurnýja ökuskírteinið: Ekki búið.  

14.3.11

Mikið er ég fegin

4. mars 2004 greindist ég með krabbamein í vinstra brjósti. Tvær aðgerðir fylgdu, geilsameðferð, reglulegar skoðanir á spítalanum, myndatökur, sýnatökur, ígerð í sárinu, spítalavist, og ólýsanlegar áhyggjur. Þetta hefur vofað yfir mér í sjö ár.
Í morgun mætti  ég í árlega skoðun, með hjartað í buxunum eins og venjulega, en í stað þess að gefa mér tíma í myndatöku og áframhaldandi eftirliti, gerðist það sem ég átti alls ekki von á. Ég var útskrifuð. Ég þarf ekki að koma þarna aftur. Aldrei. Þvílíkur léttir. Þetta hefur verið andstyggileg lífsreynsla, sem ég hefði frekar  kosið að ganga  í gegnum heima á Íslandi, í nálægð við mitt fólk, en nú er þessu lokið.  Guði sé lof.

12.3.11

Ca 1944


Guðrún Einarsdóttir frænka mín sendi mér þessa mynd í vikunni, sem hún rakst á í fórum foreldra sinna. (Faðir hennar er hálfbróðir mömmu). Þarna eru mamma og pabbi með mig ansi litla, líklega tveggja ára.  Ég man náttúrulega ekkert eftir því þegar myndin var tekin, og er ákaflega þakklát Guðrúnu fyrir að hafa sent mér hana. Bak við okkur bólar á dreng, skyldi þetta vera Halli bróðir? Mikið hefði nú verið gaman ef hann hefði verið með okkur á mymndinni.

Það snjóar

Ég sit og horfi á hundslappadrífuna og alhvíta jörð. Á stöku stað standa vesældarlegir gulir og bláir krókusar uppúr snjónum.  Í gærmorgun var kvefið á förum og ég hlakkaði til að fara út í garð um helgina til að hreinsa til og klippa, en það er allt á bólakafi! Þvílíkt og annað eins. Við ákváðum í morgun að vera ekkert að hreyfa bíl í þessari ófærð, svo nú er að nýta hugmyndaflugið og gera mat úr því sem til er. Ísskáps súpa í kvöld (allir grænmetis afgangar í ísskápnum saxaðir og soðnir í súpu, með lúku af bygg grjónum og grænmetis súputeningi. Ég fann svo tvær kjúklingabringur í fyrstinum, sem verða "sunnudags steikin" - líklega bý ég til afskaplega vinsælan (og auðveldan)  rétt með Campbell´s sveppasúpu úr dós, og sýð hrísgrjón með.  Það er lengi hægt að lifa á því sem finnst í skápunum.

9.3.11

Skór

Ég sá geysiflotta skó í verðlista og ákvað að panta. Eins og oft vill verða kom ég því ekki í verk, verðlistinn er enn á skrifborðinu mínu, opinn, og skórnir fallegu blasa við.
Þegar ég fór í leshóp á mánudaginn sá ég að Barbara vinkona mín sprangúleraði um í skónum góðu. Hún hafði sem sé líka fallið fyrir þeim, en hún hafði látið verð af því að panta þá, og átti ekki orð yfir hvað þeir væru þægilegir í alla staði. Ég, græn af öfund, get auðvitað ekki keypt mér skóna núna.

7.3.11

Andstyggðar kvefið

Kvefið versnaði aftur, og ég sem hef varla farið út fyrir dyr í fleiri daga. Bara setið undir teppi og farið vel með mig. En nú er leshópur í dag, sem ég vil alls ekki missa af. Ég er líka boðin á opnun á nýrri gróðrarstöð á morgun, og því vil ég heldur ekki missa af. Er málið ekki bara að harka af sér og snýta sér?

5.3.11

Birting

Eftir 10 tíma svefn vaknaði ég í góðu skapi. Aðallega er það vegna þess að allt gekk vel í gær, en líka vegna þess að kvefið er að batna, sólin er að hækka á lofti,  og þessi voðaegi vetur er á enda. Það er drunglegt úti, þoka og kalt og rakt, svo veðrið er ekki til garðvinnu, en ég á moldarpoka og ég á fræ, og ég get sáð í bakka eða litla potta. Það get ég gert inni, verst hvað ég á það til að svína allt út þegar ég umpotta eða sái. En það verður að hafa það. Fræin skulu í mold í dag. 

4.3.11

Föstudagur

Fyrir áratug eða svo fannst varhugaverð "tota" í ristlinum á mér. Mér var sagt að það þyrfti að framkvæma ristilspeglun reglulega til að ganga úr skugga um hvort fleiri slíkar totur yxu innra með mér, því þær ættu það til að vaxa og verða að ristilkrabbameini. Þessvegna fer ég í speglun á þriggja ára fresti.
Síðast fór ég árið 2008, og fannst þá 2011 óralangt undan. En í dag er ég að fara enn einu sinni í þessa ótrúlega andstyggilegu skoðun. Í gær mátti ég ekki borða neitt - og ekki í dag heldur. Ég á að drekka mikið, en bara "tæra" vökva. Tvisvar sinnum í gær þurfti ég svo að taka inn mixtúru sem er svo ógeðslega vond að ég kúgast bara af tilhugsuninni. Þessi mixtúra veldur því að öll innyflin tæmast.
Ég á ekki að mæta á spítalann fyrr en eftir hádegi. Yfirleitt tekur þetta nokkra klukkutíma, aðallega hangs og bið. Þegar ég rumska eftir svæfinguna (sem betur fer er ég svæfð) er mér gefið te og ristað brauð, og í minningunni er þetta gómsætasta máltíð sem hægt er að ímynda sér. Ekki skrýtið eftir tæpra tveggja sólahringa föstu.
Þessa stundina er ég illa haldin. Eftirstöðvar af flensunni eru enn að hrjá mig, og ég er eins og slytti. Engin orka. Ég sver að ég er ekki einusinni svöng lengur. Kannski er þetta besti megrnarkúrinn. Vigtin í morgun sýnir að ég er nákvæmlega, uppá gramm, 30 kílóum léttari en ég var í febrúar 2010.

28.2.11

Og þá var það flensan

Fuglaflensa, svínaflensa eða Lundúnaflensa. Allavega eitthvað meira en slæm kvefpest. Ég er búin að nötra og skjálfa og hósta og hnerra og í ofanalag var ég aum allsstaðar, með beinverki og magakveisu. Hamingjan veit hvað orðið hefði um mig ef ég hefði ekki farið í flensusprautu í haust. Ég væri líklega dauð og bloggandi  "að handan."  En þetta gengur yfir, eins og annað, og ég er á batavegi. Það er samt eitt og annað framundan í heilufarsmálum, árlegar tékkanir af ýmsu tagi, sem ég kvíði alltaf fyrir. Þegar að er allt yfirstaðið ætlum við að hoppa um borð í flugvél og fljúga í suðurátt. Draumurinn er gott hótel á hlýjum stað, góð þjónusta, góður matur, sundlaug, heitur pottur, og svo bara slappa af og láta okkur batna.  En gamla svartsýnin hvíslar því að mér að auðvitað komi eitthvað uppá. 

20.2.11

Ferðasagan


Mánudagur: Við tókum enga áhættu og vorum komin á flugvöllinn tveimur tímum fyrir brottför. Það er búið að breyta miklu á Glasgow flugvelli síðan ég átti þar síðast leið um. Nú er ekki lengur hægt að keyra upp að dyrum (eins og terroristarnir gerðu sem reyndu að sprengja allt í loft upp fyrir nokkrum árum). Öryggisleit er líka nákvæm, og við vorum bæði þukluð hátt og lágt. Litla Samsung lófatölvan mín var með í för, en það reyndist hverngi frítt WiFi fyrir hana nema í British Airways brottfararsalnum. Öll byggingin var undir netvæng "Boingo" - sem vill 2.5 pund á klukkutímann. 
Öll ferðin gekk vel, flugið og lestin frá Gatwick til Victoria, og neðanjarðarlest tvö stopp að hótelinu. Við höfðum valið hótelið vegna þess að í auglýsingunni á netsíðu BA stóð "Free WiFi throughout" - sem reyndist svo ekki rétt. WiFi var bara í gestamóttökunni og barnum.  Fúlt. 
Við fórum í labbitúr upp götuna, og skoðuðum Harrods. Borðuðum svo kvöldmat á ítölsku veitingahúsi. 


 


Þriðjudagur: Kalt og hvasst, en við ákváðum samt að ganga þennan spotta að sendiráðinu. Á leiðinni villtumst við, það fór að rigna og hárið á mér, sem ég hafði blásið og krullað til að vera hugguleg á passamyndinni eyðilagðist. Þegar vegabréfið var afgreitt gengum við í átt að Marble Arch,  til að taka City Sightseeing Bus. Gangan reyndist lengri en við áttum von á, svo við vorum köld og hrakin  og geysi fegin þegar við fundum rútuna, og við sátum í henni næstu þrjá tímana, eða þangað til ég gat ekki haldið í mér lengur, svo við fórum inn á Starbucks þar sem ég fann klósett. Ég tók svo af skarið og við tókum leigubíl heim á hótel. Við kíktum á Victoria & Albert Museum, sem var beint á móti hótelinu, og borðuðum aftur á ístölsku veitingahúsi.


Miðvikudagur: Ég tilkynnti bóndanum að engin íslensk kerling færi um London án þess að koma við í Oxford Street, og nú var ég búin að stúdera kortin og við tókum rauðan strætó þangað. Svo upphófst "búðarráp" - en fljótlega tók ég eftir því að það var farið að draga af bóndanum, svo við settumst inná kaffihús. Hann reyndist illa haldinn af brjóstsviða, bakverk, hálsríg,  o.s.frv.. Ég sá að þetta gekk ekki,  og þar sem miðarnir í sightseeing ferðina giltu í 24 tíma hoppuðum við  á bussinn, og tókum alla ferðina aftur.  Við rákumst á danskt veitingahús og borðuðum dejlige frikadeller med rødkål og dansk æblekage til dessert. 


Fimmtudagur: Um morguninn fórum við á Science Musem, og þar hjarnaði bóndinn við, enda mikill áhugamaður um tækni og vísindi allskonar. Um hádegið bjuggumst vil til heimferðar og vorum komin á flugvöllinn einum fjórum tímum fyrir brottför. Hér var öryggisgæslan enn umfangsmeiri, mikið þuklað og við ljósmynduð.  Vélin var sneisafull  og við fengum ekki sæti saman, því allir nema við höfðu tékkað inn og valið sæti á netinu. 
Heim komum við svo klukkan 7, og ég var afskaplega fegin,  nema hvað húsið var ískalt. Hann hafði nefnilega slökkt á miðstöðinni þegar við fórum. Það tók 12 tíma að hita húsið!
Eftirþankar: Við erum orðin gömul! Sérstaklega bóndinn.

11.2.11

Ferðataska keypt

Við ætlum að leggja land undir fót í næstu viku, og  fara til London. Vegabréfið mitt rann út í mars í fyrra, en konsúllinn í Glasgow framlengdi það í ár. Nú er árið að verða liðið, svo ég verð að gera eitthvað í málinu. Nútildags er bara hægt að fá vegabréf afgreidd í sendiráðum, eða heima á Íslandi. 
Ég er búin að kaupa mér nýja ferðatösku, því sú gamla er komin undir þritugt og ansi gamaldags. 
Það gerir okkur vonandi gott að fara að heiman, þó ekki séu það nema nokkrir dagar. Við höfum átt erfitt undanfarið, við söknum Tess alveg skelfilega mikið. Á morgun hefði hún orðið 13 ára. 

23.1.11

Við höfum elst . . .

Þessi vetur hefur farið  illa með okkur. Endalausar vetrarhörkur svo oft komumst við ekki úr húsi dögum saman; síðan lenti ég í því að detta og vera bundin við stól í þrjár vikur, og  svo það allra sárasta, við misstum Tess.  Við höfum verið að reyna að ná áttum. Bara að vera heima hefur verið erfitt, svo við höfum reynt að fylla dagana með erindum ýmiskonar, sem setið hafa á hakanum. Í gær, viku eftir að Tess dó, ákváðum við að eyða deginum í Glasgow. Við tókum strætó, og röltum svo um i miðbænum. Það var kalt og rakt, niðaþoka yfir öllu, en mikil ös í búðum og hávaði allsstaðar. Við erum ekki vön hávaða, eða ys og þys. Við fórum í búðir, ég skoðaði föt, en mátaði ekkert og keypti ekkert. Áhugann vantaði. Við fórum á kaffiteríu og borðuðum í hádeginu, og á Starbucks klukkan 3. Þegar við komum heim vorum við bæði úrvinda af þreytu. Það fer ekki á milli mála að nú erum við orðin gamalmenni. Allar áætlanir mínar um að leggjast í ferðalög, núna þegar við erum ekki lengur bundin af Tess,  eru kannske bara rugl. Við erum hreinlega orðin of gömul.

18.1.11

Sorg

Síðasta myndin. Tekin meðan beðið var eftir dýralækninum.

Við misstum hana Tess okkar á laugardaginn. Hún var búin að vera veik lengi, og batavon engin. Henni versnaði fyrir hálfum mánuði, og þegar hún var farin að þjást urðum við að taka erfiða ákvörðun. 
Síðan á laugardag höfum við verið niðurbrotin, það er eins og sálin sé horfin af heimilinu. Öll okkar tilvera snérist um Tess, okkar rútína var hennar rútína.  Við vöfrum nú um eins og vofur og getum ekki einbeitt okkur að neinu. Við gleymum að borða, því Tess er ekki hér lengur til að minna okkur á matartímana, og við förum snemma í rúmið og seint á fætur, því nú eru engar morgun og kvöldgöngur nauðsynlegar. Síðustu þrjá daga höfum við svo haldið okkur að heiman allan daginn, því húsið er svo tómt og tilgangslaust, og það er eins og það hafi alltíeinu stækkað um helming. Sömuleiðis virðast dagarnir hafa lengst um helming. 
Ég veit að þetta á eftir að lagast, við eigum eftir að finna okkur  nýja rútínu og venjast því að vera bara tvö.  En eins og er eigum við voðalega bágt. Við söknum hennar svo mikið. 

4.1.11

2011

Ég óska þeim sem þetta lesa gleðilegs árs, og takk fyrir að skoða síðuna mína. Áramótin hjá okkur voru  frekar ómerkileg, og liðu hjá svona næstum því eins og venjulegt kvöld, nema hvað sjónvarpið hér er óvenju lélegt á gamlárskvöld. Það er verið að reyna að vera "þjóðlegur" og sýna skoska "grínara" - og spila á harmónikkur, og þetta er allt svo hallærislegt að maður fer hjá sér. Ég tók það ráð að horfa á íslenska áramótaskaupið í beinni á tölvunni, en þar sem ég er búin að vera svona lengi í burtu þekki ég ekki nóg til, svo ég veit ekki að hverjum er verið að gera grín. 

Eins lengi og ég man eftir mér hef ég sett áramótaheit, og byrjað á glansandi nýrri dagbók, skrifað annál liðna ársins og byrjað nýtt ár með miklum væntingum. Ekki í ár. Engin heit, engin dagbók. Við eigum nefnilega svolítið bágt hér þessa dagana, því nú fer að styttast í þessu hjá henni Tess okkar. Hún er léleg, þarf mikla umönnun, og veldur miklum áhyggjum. Við höfum alltaf vitað að það myndi koma að þessu, dýrin okkar eiga ekki eins langt líf og við, en það gerir þetta ekkert auðveldara.