28.12.09
25.12.09
24.12.09
Gleðileg jól!
23.12.09
22.12.09
Skipulag
Ég planlegg og geri lista, og fer eftir þeim. Þegar eitthvað stendur fyrir dyrum, eins og td. jólahald, ákveð ég strax í dyrjun desember hvað skuli gera, og hvernær. Ég klára að taka til, þrífa og skreyta daginn fyrir Þorláksmessu, og er löngu búin að viða að mér því sem þarf í jólamatinn. Ég veit ekkert verra en að vera með allt á síðustu stundu og þurfa að fara í búðir síðustu dagana fyrir jól. Ég vil bara geta dútlað mér heima og slappað af. En þá spyr bóndinn: Hvað viltu fá í jólagjöf? Hann getur nefnilega ekki látið sér detta neitt í hug. Þetta er árvisst og gerist alltaf 1-2 dögum fyrir jólin. Þá þarf að leggja af stað í umferðaröngþveiti og jólaös - í dag bættist stórhríð við - til að fara með mig í búð til að velja mína eigin jólagjöf. Stundum hef ég látið mér sárna þetta, en í dag fór ég í mína uppáhalds búð, PC World og ég valdi mér flottar jólagjafir! Nú hlakka ég sko til jólanna!
19.12.09
Að baka eða ekki baka
Hér baka húsmæður ekki jólabakstur. Þær allra myndarlegustu baka kannske "mince pies", en flestar kaupa þær bara í stórmarkaðnum. Ég hætti að baka fyrir mörgu árum. því húsbóndinn vill miklu frekar versmiðjuframleitt kex. Það dúkkar samt alltaf eitthvað upp innra með mér, eldgömul innræting, sem segir mér að það jafnist nú ekkert á við bökunarlykt í húsinu fyrir jólin. Gömlu, góðu uppskriftirnar eru dregnar fram. Ég les þær af áhuga, og vel eina eða tvær til að baka. Oftast nær það ekki lengra. Þessa stundina er ég einmitt í þessu ankannarlega ástandi. Ætti ég að skreppa í búð og kaupa það sem vantar? Og baka? Eina sort? Tvær? Piparkökur? Mömmukökur? Eða bara kaupa kex?
18.12.09
Nú er ég nógu gömul til að kaupa rauðan hatt!
Warning
a poem by Jenny Joseph
When I am an old woman I shall wear purple
With a red hat which doesn't go, and doesn't suit me.
And I shall spend my pension on brandy and summer gloves
And satin sandals, and say we've no money for butter.
I shall sit down on the pavement when I'm tired
And gobble up samples in shops and press alarm bells
And run my stick along the public railings
And make up for the sobriety of my youth.
I shall go out in my slippers in the rain
And pick flowers in other people's gardens
And learn to spit.
You can wear terrible shirts and grow more fat
And eat three pounds of sausages at a go
Or only bread and pickle for a week
And hoard pens and pencils and beermats and things in boxes.
But now we must have clothes that keep us dry
And pay our rent and not swear in the street
And set a good example for the children.
We must have friends to dinner and read the papers.
But maybe I ought to practice a little now?
So people who know me are not too shocked and surprised
When suddenly I am old, and start to wear purple.
17.12.09
Jólatréð í stofu stendur
15.12.09
Kuldahrollur
Þegar kalt er úti, þá er líka kalt inni. Hérlendis eru hús illa eða ekki einöngruð. Þegar við keyptum þetta hús fyrir rúmum áratug þótti það nýtískulegt að hafa miðstöðvarkyndingu og tvöfalt gler, og fyrstu húsin í þessu hverfi, byggð ca 1970, höfðu hvorugt.
William hafði aldrei upplifað miðstöðvarkyndingu - hann og foreldrar hans hýrðust í lokaðri og líklega alveg loftlausri stofu á kvöldin, kringum gashitara, og þegar kom að háttatíma var skriðið skjálfandi undir sæng með hitapoka.
Í þessu húsi er reyndar gasmiðstöð, en flestir ofnarnir eru agnarlitlir, og þar sem veggir eru ekki einangraðir þarf að kynda rosalega mikið til að halda á sér hita - og það er rándýrt. Á veturna er ég alltaf vel dúðuð í ullarnærbol og flíspeysu, og ef ég er ekki að gera húsverk (sem eru góð til að halda á sér hita), sit ég yfirleitt vafin í teppi. Við íslendingar vitum bara ekki hvað það er geysilegur lúksus að hafa hitaveitu.
14.12.09
Jóla "annir"
Nágrannakona mín bauð mér og nokkrum öðrum kellum í te á laugardaginn, og hjá henni var allt skreytt í hólf og gólf. Jólatréð meira að segja komið upp. Ég fékk smá jólasting, og í gær opnaði ég skrautkassann. Þegar fallegi jóla óróinn var tekinn upp kom í ljós að ein stjarnan var horfin, og þegar ég var búin að vefja jólaseríu listisamlega utanum standlampann í stofunni kviknaði bara á 75% af perunum. Illt í efni. En alltíeinu komust málin í lag, strarnan fannst í kassanum og húsbóndinn gat lagað seríuna. Pabbi hefði kennt Svartnasa um þessa hrekki og amma hefði sagt að það væri snakkur að stríða mér. Nú ætla ég að koma mér í reglulegt jólaskap með því að þrífa eldhússkápana. Ómissandi jólaundirbúningur!
13.12.09
Vetrarþoka
Hér er hefur verið þoka í þrjá daga. Þetta er ekkert líkt þokunni sem stundum kemur heima á Íslandi á sumrin. Þessi þoka er ísköld og kælir mann innað beini. Hitastigið er um frostmark, en þegar það fer aðeins undir frostmarkið frýs þokan og allt verður þakið þykku hrími. Gras, trjágreinar, bílrúður. Útivist er ekki eftirsóknarverð. Þetta er veður til að kvekja upp í arninum, sitja vafin í teppi og lesa góða bók - með sherryglas innan seilingar. En við erum ekki með arin og ég á ekkert sherry - og Tess þarf að fara út!
5.12.09
Ólukkans ekkisen ....
Þetta kvef vill bara ekki fara. Mánudagur: skárri. Þriðjudagur: hósti. Miðvikudagur, fimntudagur, föstudagur: hósti, hósti, hósti. Laugardagur: rolluhósti. Þetta tekur á þolinmæðina hjá manneskju sem aldrei hefur verið þekkti fyrir þolinmæði. En kvef er kvef, og verður að hafa sinn gang.

