29.6.06
27.6.06
24.6.06
Pillur

Ég fann fjögur tölublöð af Pillum í Biblíunni hans pabba. Þetta fyrsta eintak er útgefið á Ísafirði í janúar 1923, og tel ég líklegt að pabbi hafi komið við sögu. Þetta hefur verið þegar hann vann sem prentari. Annað blað og þekktara, Hrappur, kom líka út á þessum árum. Aðaltilgangur ritsmíðanna er að gera grín að bæjarbúum, og þá helst þeim þekktastir eru.
Hér er skönnuð útgáfa af blaðinu.
Bls. 1 og 4
Bls. 2 og 3
19.6.06
Ellimörk
Þegar hrukkukremsbirgðir eru lágar gríp ég til sýnishorna sem stundum fylgja tímaritum, og sem ég safna og geymi í snyrtiborðsskúffunni minni. Í gærmorgun greip ég eitt af þessum sýnishornum, sem á stóð Age Defying, hugsaði "ekki veitir af," klippti af því hornið og bar kremið framan í mig. "Skrýtið krem," hugsaði ég. "Glært og grænleitt." Rýndi í smáa letrið (sem sísmækkar með árunum, og er nú eiginlega ólæsilegt á flestum pakkningum). Increases volume and thickness. "En ég vil ekki þykka húð! Jeremías, þetta er sjampó!"
17.6.06
14.6.06
Mýsla

Við settum út fóðurkúlu fyrir litlu fuglana, og ég stillti mér upp til að taka myndir af þeim að borða - en þá birtist þessi músarungi. Hann hefur alldeilis talið sig dottinn í lukkupottinn að finna þessa fínu matarkúlu, en hann á enn ýmislegt ólært, eins og það að mýs eru yfirleitt ekki á ferli á daginn.
Ég tók líka nokkrar blómamyndir. Það er svo auðvelt að mynda blessuð blómin, því þau fljúga ekki í burtu.


13.6.06
The Craigends Yew

Þetta forna tré, sem kallast víst ýr eða ýviður á íslensku, er 600 ára gamalt og er annað elsta sinnar tegunar hérlendis. Það er 30 metrar í þvermál, og meginstofninn er mælist 8.3 metrar að ummáli. Þegar það var græðlingur ríkti Robert III hér í Skotlandi og átti í sífelldum erjum við Henry IV Englandskóng. Plágan mikla geysaði á Íslandi í kjölfar mikils eldgoss. Þetta tré er nágranni okkar, stendur hér á árbakkanum bakvið garðinn. Það er alfriðað, en mér var sagt að byggingaverktakinn sem byggði húsin hér hafi laumast til að minnka það aðeins. http://www.ourlocalhistory.co.uk/yew.html
10.6.06
9.6.06
Tess í essinu sínu
Fjölskyldan fór á ströndina í dag, Tess til mikillar gleði. Hún óð og buslaði, sótti spítur og þara, pissaði á marglyttu, stal bolta frá öðrum hundi, lenti í smá útistöðum við tvo stóra hunda (og hafði betur), gelti að konu með hvítan sólhatt (hvítir hattar og hvítt hár þykja henni varhugaverð fyrirbæri), át svo nestið sitt af mikilli áfergju og drakk hálfan líter af vatni. Geysi gaman.
Tess er í miðjunni.
8.6.06
Gamla konan í garðinum
7.6.06
Sólardagar
Sólin hefur skinið glatt á okkur þessa viku, og hitinn fór í 22 stig í gær. Við borðuðum hádegismatinn úti og svo sat ég í sólstólnum mínum þakin sunblock nr 40, og las bók mest allan daginn. Yndislegt. Það er spáð sama veðri en hlýnandi út þessa viku, 25 stig á föstudag.
5.6.06
Gönguferð á hvítasunnudag



Fyrir einhverjum áratugum síðan var járnbrautarnet milli allra þéttbýlisstaða hér í kring, en eftir að sparnaðarglaður ráðherra ákvað að leggja allar lestarsamgöngur til smáþorpanna niður var malbikað yfir teinana og þeim breytt í hjóla- og göngustígi. Nú ganga bara lestir milli stærstu borganna, en við njótum góðs af skemmtilegum gönguleiðum. Sumsstaðar er stígurinn niðurgrafinn og mikil gróðursæld í skjólinu. Sérstaklega fundust mér burknarnir tilkomumiklir.
4.6.06
Hvítasunna
Þegar ég var lítil var þetta dagurinn sem ég fékk að fara í nýja sumarflík, jakka eða kjól, og fara út á skóm eftir langan stígvélavetur, því pollarnir á malargötunum á Ísafirði voru farnir að þorna upp. Stórir krakkar, og seinna ég sjálf, voru fermdir á hvítasunnudag, og dagurinn var alltaf sannkallaður hátíðisdagur.
Hér er engin hvítasunna. Skotar hafa nokkra "bank holidays" á ári, alltaf mánudaga, og enga af neinu tilefni. Það er einn í byrjun maí, líklega hefur hann einhverntíma verið 1.maí, og það er annar síðasta mánudag í maí, trúlega leifar af hvítasunnu. Ef ég ætti ekki dagatalið góða frá Bubbu og Samma myndi ég líklega ekki hafa hugmynd um að það er hvítasunnudagur í dag.
Skotar eru púrítanar miklir og húsbóndinn á heimilinu þekkir ekki hugtakið "að gera sér dagamun." Hann gengur í sömu fötunum alla daga og vill helst alltaf borða sama matinn, þ.e. annaðhvort "fish and chips" eða svínakjöt í einhverri mynd. Hann verður samt örugglega ánægður þegar hann fær hamborgarhrygg með öllu og jarðarber í eftirmat í dag, því ég held mínar hátíðir. Ég óska ykkur öllum gleðilegrar hvítasunnu!
2.6.06
Rhododendron



Hér í vestur-Skotlandi er jarðvegur leirkenndur og súr, og mikið um votviðri. Þetta eru kjör aðstæður fyrir Rhododendron plöntuna, og hún vex hér út um allt, bæði í görðum og villt. Þetta er ótrúlega glæsileg planta, runnarnir allt að þriggja metra háir og þaktir stórum litskrúðugum blómum um þetta leiti árs. Við áttum erindi í apótekið hér í Houston í dag, og fórum í leiðinni í smá göngu með Tess í skrúðgarð sem er bak við apótekið. Þarna stendur gamalt hús, Houston House, sem áður fyrr var aðsetur landeigenda en hýsir nú nokkrar glæsiíbúðir. Ég tók þessar myndir með símanum mínum, svo þær eru ekki alveg fullkomnar. Það má nú eiginlega þakka fyrir að þessir runnar skuli standa enn, því Tess sá kanínu og böðlaðist á eftir henni gegnum runnana með miklum látum. Kanínan slapp með skrekkinn.















