26.11.11

Útför

Einn af stofnendum leshópsins míns dó út beinkrabbameini um daginn, aðeins þremur mánuðum eftir að hann greindist með sjúkdóminn. Hann gekk örugglega með þetta í nokkur ár, án þess að hafa hugmynd um það.
John var maður sem lifði lífinu fram í fingurgóma. Hann fylgdist með öllu sem var að gerast á menningarsviðinu og var best lesni maður sem ég hef kynnst. Hann hafði þann sið að skrifa alltaf niður titla þeirra bóka sem hann las, og gefa þeim einkunn, frá 0-10. Þetta hafði hann gert alla ævi og var listinn orðinn langur.
Við vorum við útför Johns á þriðjudaginn. Mikill fjöldi fólks var við athöfnina, sem fór fram að sið humanista. John var ekki trúmaður, en hann var formaður heimspekifélagsins í Glasgow. Svo vill til að í leshópnum er kona sem sér um "helgi" athafnir humanista, og hún sá um útförina, skv hans ósk. Minningarorð voru flutt af Barry, leshópsfélaga og vini Johns, og  Claire, dóttir Johns las ljóð. Tóslistin var afar falleg - klassísk og valin af fjölskyldunni. Þetta var falleg athöfn. Nú er bara að sjá hvort leshópurinn okkar lifir af þennan mikla missi.

21.11.11

Tölvur

Ég á fimm.
1. Gamla Dell fartölvan. Stór og þung og geysilega sein að vinna. Henni var lagt fyrir mörgum árum.
2. Dell borðtölvan. Hún er í "kamesinu" mínu, og er í góðu formi.
3. Net tölvan. Hún er lítil og nett, en á erfitt með að gera nema eitt í einu.
4. Litla Samsung Galaxy lófatölvan. Uppáhalds leikfangið mitt. Alltaf við hendina.
5. HP fartölvan. Hún var lengi uppáhaldið mitt, en bilaði fyrir rúmu ári. Húm hætti skyndilega að ná netsambandi. Ég hef eytt löngum stundum í að reyna að finna út hvað er að, því hún á það til að ná sambandi í smátíma, en detta svo út aftur. Það gerðist í morgun, mér datt í hug að kveikja á henni - og viti menn, hún virkaði. Allt fór að koma inn, Microsoft, 78 "updates", vírusvörnin, System Mechanic; ég sá fram á skemmtilegan dag við að koma öllu í samt lag. En Adam var ekki lengi í Paradís., Netsambandið hvarf aftur, og ég hef ekki hugmynd um hvað veldur. Skyldi duga að sparka aðeins í hana? Það hjálpar þegar þvottavélin stendur á sér.

20.11.11

Fórurnar mínar

Þennan útskorna kistil átti mamma. Síðan ég eignaðist hann hef ég geymt það sem mér var kærast á hverjum tíma í honum, og svo er enn. Pabbi byrjaði að kalla kistilinn "fórurnar" - eftir að ég sagðist eiga eitthvað í fórum mínum sem reyndist geymt í kistlinum. Síðan hef ég alltaf kallað kistilinn fórurnar mínar.
Ég tók til í honum í vikunni. Fjarlægði það sem ekki skiptir lengur máli, og bætti einu og öðru í hann sem mér er annt um. Meðal þess sem á í fórum mínum núna eru prjóna- og saumadót eftir ömmur mínar, Elínu og Ingibjörgu. Þarna eru líka minningargreinar um pabba, bréf frá dætrum Halla þegar þær voru litlar, heillaskeyti sem pabbi og mamma fengu þegar ég fæddist, teikningar eftir Halldór afa minn, kort sem mér hafa verið gefin, og stélfjaðrir af Teresu. Ég ætla að setja hálsólina hennar Tess í kistilinn, en ekki strax. Enn er alltof sárt að líta hana augum, svo hún er í plastpoka uppí skáp.

6.11.11

Flugeldar

Hér var "bonfire night" í gær, til að minnast Guy Fawkes, en hann gerði misheppnaða tilraun til að sprengja upp þinghúsið í London  árið 1603. Fólk kveikir í bálköstum og sendir upp flugelda. Allt er þetta nú í minni kantinum, og jafnast ekki á við Gamlárskvöld í Reykjavík.
 Ég er ekki hrifin af flugeldum, vegna þess að ég veit hvað dýrin, bæði húsdýr og vilt, hræðast þetta. Rebbinn sem við gefum alltaf smá bita á kvöldin lét ekki sjá sig, hefur líklega kúrt nötrandi í greninu sínu, og ég get rétt ímyndað mér hvað fuglarnir hljóta að hafa verið hræddir. Heimilisdýr eru mörg á róandi lyfjum þetta kvöld. Hinsvegar var hún Tess okkar aldrei hrædd, sem betur fer, og ég man ekki betur en þegar ég átti páfagaukinn Teresu, þá hafi ég oft staðið við gluggann  heima á Gamlárskvöld með hana á öxlinni, vaggandi sér af spenningi, fylgjandi hverri rakettu með augunum.

Þoka

Veðurfarið hefur verið þolanlegt þessa viku, og við William höfum verið dugleg og farið í hressandi göngu á hverjum morgni. Í gær fórum við líka í langan göngutúr seinnipartinn. Nú er hinsvega niðaþoka, og ég er ekkert áfjáð í útivist.  Ég hlýt að eiga inneign eftir að hafa farið í tvo göngutúra í gær, en William þvertekur fyrir að það megi að flytja göngutúrainneign milli daga.