26.1.10

Þorpskirkjan


Þetta er kirkjan í Houston. Hún er eldgömul, upphaflega hluti af herrgarðinum sem hér var, Houston House. Þorpið tilheyrði  landareigninni, og þar bjó verka- og þjónustufólk.  Við búum utan við þorpið sjálft, þar sem áður stóð annað herragarðssetur, Craigends.  Af því er ekkert eftir nema nokkur stór tré sem voru gróðursett fyrir 300 árum eða svo. Houston House stendur enn - en það er búið að breyta því í  lúksusíbúðir.

24.1.10

Gamalmenni á ferð

Við erum sjaldan á ferð eftir að dimmir, en í gærkvöld ákváðum við að gera okur dagamun og sækja okkur Kínamat í kvöldmatinn. Á heimleiðinni urðum við vör við blikkadi ljós á eftir okkur, og lögubíllinn fór ekki framhjá, þó William viki vel til hliðar. Við áttuðum okkur á að það vorum við sem lögreglan var að elta.  William  stoppaði og gríðarmikill lögregluþjónn birtist. Tess, í aftursætinu, brjálaðist, urraði og gelti (hún ver okkur alltaf með miklum látum ef einhver kemur of nálægt).
Ástæðan fyrir því að við vorum stoppuð af löggunni reyndist vera að William keyrði of varlega. Mér finnst hann alltaf keyra eins og gamalmenni, hann tekur öll umferðamerki bókstaflega og hefur aldrei farið yfir hraðatakmörk. Lögguna grunaði semsagt að hér væri drukkinn maður undir stýri, svo við fengum að halda heim með okkar grimma hund og kínamat (sem reyndist óætur, minn allavega.)

18.1.10

Sólin skín


Í dag skein Janúarsólin glatt, og það fer ekki á milli mála að daginn er farið að lengja. Allur snjórinn er farinn og það var 7 stiga hiti. Við þrjú fórum í göngutúr, og komum við í bakaríi á heimleiðinni. Hvað er hægt að biðja um betra.

17.1.10

Kaffisopinn

Þar sem ég sit hér og drekk morgunkaffið mitt hugsa ég um hvað fyrsti kaffisopi dagsins er alltaf góður, og gott að geta notið hans. Það er nefnilega þannig að ef ég er lasin hef ég aldrei lyst á kaffi, og það er alltaf merki um bata þegar mig langar í góðan kaffisopa.
Ég hef drukkið kaffi frá því ég var barn. Fyrst var það svolítið kaffi, sykur og mikil mjólk. Ég man vel að Eggi föðurbróðir minn kallaði kaffið mitt "kálfsskol."  Fullorðin hef ég alltaf drukkð það svart og sykurlaust.  Þessa dagana laga ég mér "filterkaffi" beint í bollann (könnuna, eða fantinn, eins og það hét fyrir vestan).  Ég nota gamla trekt og bút af eldhúsrúllu. Þetta er vegna þess að ég laga "alvöru" kaffi  bara  fyrir mig eina.  William vill heldur sterkt instant kaffi með glás af sykri.
Kaffi pásan er búin, það er farið að birta  og best að leggja í hann út með Tess.

15.1.10

Vetrargarður



Æ hvað garðurinn er vesældarlegur núna. En nú er spáð hláku og 8 stiga hita, svo það verður ekki langt þangað til vetrargosarnir fara að stinga upp kollinum.

14.1.10

Vetur í skóginum



Þetta er harðasti vetur sem komið hefur síðan ég kom hingað, fyrir 12 árum. Kannske ekki sá versti, því það var fyrsti veturinn minn hér, og það rigndi í sex mánuði samfleytt. Á efstu myndinni eru Tess og William í vetrarbúningi.

9.1.10

Hornið mitt


Stólinn minn, tölvan, teppið og Tess. Mikið höfm við það notalegt.

6.1.10

Vetrarveður

BBC News24 - sem  yfirleitt er haft í gangi á eldhússjónvarpstækinu - er helgað veðrinu í dag. Það er nefnilega snjókoma í Bretlandi og allt í volli. Flug- og lestarsamgöngur liggja niðri,  vegakerfið er lamað, skólar eu lokaðir og fólk er varað við að fara úr húsi nema líf liggi við.  Við hér höfum alveg solppið við þetta allt. Það er ágætis veður, hiti um frostmark og smá snjóföl.  Svolítið hált á gangstígum.  Húsbóndinn er samt svolítð fanatískur þegar frystir. Hann vefur rör og pípur með einangrunarplasti og opnar lúguna upp á háaloft til að ekki frjósi  í vatnstankinum sem þar er.  Bílinn vill hann helst ekki hreyfa. Við höldum okkur því heima, horfum (alltof) mikið á sjóvapið og dúllum okkur við tölvurnar okkar.

1.1.10

Gleðilegt ár!


Með von um að nýja árið færi ykkur öllum - og okkur hér líka - gleðistundir og góða heilsu. Þessar tvær myndir tók ég á nýársdag, sú efri sýnir snævi þakin fjöllin norðan við Clyde, en sú neðri er af tildru sem var að vappa í flæðarmálinu.