29.11.08

Í eldhúsinu

Ég var að saxa lauk í súpu, og það er merkilegt hvað hugurinn tekur á flug. Hvert sinn sem ég saxa lauk á kemur sama setningin upp í hugann:
"Kun til Deres løg."
Þessi tilvitnun er ættuð frá þeim tíma þegar dönsk blöð voru mikið lesin. Hendes Verden, Femina, Alt For Damerne. Leiðbeiningar um skynsamleg vinnubrögð í eldhúsinu: notið sama brettið til að saxa laukinn á - og notið það ekki fyrir neitt annað.
Það er svo langt síðan að ég las þetta að við "dömurnar" vourm þéraðar og af einhverjum undarlegum ástæðum er þessi setning blýföst í hausnum á mér, og dúkkar alltaf upp þegar laukur er sneiddur eða saxaður. Ég hef meira að segja farið eftir þessu, ég á eldgamalt skerbretti sem bara er notað fyrir lauk. Kun til min løg!

26.11.08

Hegraskömmin

Við Tess tókum daginn snemma í gær. Það var bjart veður, og við trítluðum okkkur niður að ánni eins og svo oft áður. Situr hann þá ekki þar á steini, hegrinn sem ég hef verið að reyna að mynda allt þetta ár (síðan ég fékk super zoom vélina). Nú bar alldeilis vel í veiði. Þetta var nefnilega í fyrsta skipti sem ég sá hann og var með myndavélina með mér. Ég smellti af einni mynd úr fjarska, og svo færði ég mig rólega nær og nær - - - en hegrinn sá okkur. Hann hóf sig tignarlega til flugs og flaug í átt til mín og yfir hausinn á mér. Panik, stilla vélina, FINNA hegrann, fókusera, smella af. Skoða. Æ nei.
Autofocusinn hafði fundið þessa trjágrein. Enginn hegri. Hann vinnur alltaf.

22.11.08

Friðarstund

Við Tess förum snemma á fætur, fáum okkur kaffisopa (ég) og hundamat (hún) og förum út í göngutúr. Það þarf að þefa af öllum þúfum, runnumog trjástofnum, til að fylgjast með hunda, katta, refa og mannaferðum síðan síðast. Og gera sín stykki (hún).
Þegar heim kemur er allt gert samkvæmt föstum reglum. Við erum vanafastar, við Tess. Hún fær cocktailpylsu, og ég hita það sem eftir er af morgunsopanum mínum í örbylgjunni, og svo fær hún sér blund í sófanum, en ég sest í hægindastólinn minn með lapptoppinn á hnjánum. Það ríkir friður og ró, og ekkert samviskubit yfir því að vera ekki að gera húsverkin, því það má ekki hafa hátt. Húsbóndinn sefur enn. Ryksugan myndi vekja hann. Þvottavélin myndi taka vatnið sem hann þarf að nota þegar hann vaknar og fer í sturtu. Annir dagsins hefjast ekki fyrr en undir hádegi á þessum bæ!

12.11.08

Sá ég spóa . . .

Suður í Flóa? Nei, ekki var hann nú þar, heldur í fjörunni niður við Clyde.
Og tjaldar voru þar á vappi líka. Skyldu þetta vera farfuglar að heiman?

8.11.08

Ófreskja í baðkarinu mínu

Ég hef aldrei verið hrifin af kóngulóm, en þar sem við búum í nágrenni við skóglendi er mikið um "gesti" sem trúlega telja það þeir eigi heima hér, en ekki við. Þetta á við um mýslur - en sérstaklega allskonar skordýr. Sú kónguló sem mér býður allra mest við kallast "giant housespider." Hún er geysistór og spretthörð, svo það er ekki auðvelt að veiða hana.

Þetta ferlíki , líklega 10cm langt, var í baðkarinu í gær, komst ekki upp en faldi sig í niðurfallinu. Hún kom svo upp þegar ég slökkti ljósið, og eftir að tappinn hafði verið settur í tókst að veiða hana með "vél" sem ég keypti í Lakeland og sleppa henni út um gluggann. Vonandi kemur hún ekki aftur.

6.11.08

Sinn er siður ...

Hér um slóðir má stundum sjá heimtilbúnar tilkynningar meðfram fjölförnum vegum, oftast við hringtorg. Þetta eru yfirleitt hvít lök sem fest hafa verið upp og á þeim stendur oftast eitthvað í þessum dúr: Happy 40 Fiona, eða Gordon is FORTY today. Hér eru fertugsafmæli nefnilega talin svo merkileg að fólki finnst nauðsynlegt að auglýsa þau á víðavangi. Hús þessara lukkulegu einstaklinga eru svo skreytt með blöðrum og Happy Birthday lengjum allskonar. Hér tíðkast líka að stilla öllum afmæliskortunum sínum upp í gluggakistuna, og þá auðvitað þann glugga sem snýr að götunni. Hér eru kort vinsæl, og í verslunum fást kort til nota við öll möguleg tilefni. Um jólaleitið skiptast allir á kortum, fólk réttir hvert öðru kortin, og ég fæ kort frá öllum hundagönguhópnum og öllum í götunni. Kortin eru svo notuð sem jólaskraut, þeim stillt upp á arinhilluna, hengd upp á strengi eftir endilangri stofunni - eða stillt út í glugga.

4.11.08

Haustganga

Loch Winnoch.
Álft á vatninu.Mávager.
Tess á leið að bílastæðinu, með stóra spítu í kjaftinum sem hún ætlaði að taka með heim.
Tess og spítan góða.

Seinnipartinn í gær fórum við í göngu meðfram Loch Winnoch, sem er einn af uppáhalds útivistarstöðunum okkar. Þar er mikið af öndum og svönum, og þeir eru spakir svo það er auðvelt að ná góðum myndum af þeim. Veðrið var óvenju gott, þurrt og bjart.



Leshópur

Leshópurinn hittist hér í gær, svo það var mitt hlutverk að velja og kynna bókina og sjá um kaffiveitingar. Sem betur fer tíðkast ekki heimabakstur hérlendis, og allir sáttir við kex með kaffinu. Síðustu daga höfum við hinsvegar átt mjög annríkt við að þrífa. Ég hef látið slíkt sitja á hakanum í ansi langan tíma, því ég var svotil einhent meðan ég var með frosna öxl og auman handlegg, og gat ekki einusinni sópað, en nú er mér batnað og ég hef enga afsökun. Við gátum náttúrulega ekki látið gestina sjá hvað allt var rykugt og útkámað, svo við tókum vel í gegn.
Hópurinn mætti svo í gærmorgun, 12 manns, og það var mikið spjallað. Bókin, The Road Home eftir Rose Tremain, er 98 bókin sem við höfum lesið síðan hópurinn var stofnaður, árið 2000.