2011
Ég óska þeim sem þetta lesa gleðilegs árs, og takk fyrir að skoða síðuna mína. Áramótin hjá okkur voru frekar ómerkileg, og liðu hjá svona næstum því eins og venjulegt kvöld, nema hvað sjónvarpið hér er óvenju lélegt á gamlárskvöld. Það er verið að reyna að vera "þjóðlegur" og sýna skoska "grínara" - og spila á harmónikkur, og þetta er allt svo hallærislegt að maður fer hjá sér. Ég tók það ráð að horfa á íslenska áramótaskaupið í beinni á tölvunni, en þar sem ég er búin að vera svona lengi í burtu þekki ég ekki nóg til, svo ég veit ekki að hverjum er verið að gera grín.
Eins lengi og ég man eftir mér hef ég sett áramótaheit, og byrjað á glansandi nýrri dagbók, skrifað annál liðna ársins og byrjað nýtt ár með miklum væntingum. Ekki í ár. Engin heit, engin dagbók. Við eigum nefnilega svolítið bágt hér þessa dagana, því nú fer að styttast í þessu hjá henni Tess okkar. Hún er léleg, þarf mikla umönnun, og veldur miklum áhyggjum. Við höfum alltaf vitað að það myndi koma að þessu, dýrin okkar eiga ekki eins langt líf og við, en það gerir þetta ekkert auðveldara.

1 ummæli:
Happy New Year to you all. We are sorry to hear Tess is still so poorly. I guess when she doesn't blog we like to assume all is well. Hope you are well on the mend too. Best wishes, Roddy and Ian and Helen
Skrifa ummæli