23.12.06
22.12.06
Kærkomnar kveðjur
20.12.06
Fleira frá því í gamla daga.
Jólasveinninn með dótapokann hefur alltaf verið til. Hann var á eldhúsveggnum í Skriðu á hverjum jólum, og ég grandskoðaði leikföngin í pokanum með aðdáun - og öfund. Hann er svo gamall að þegar ég fyrst sá hann þekkti ég alls ekki þennan rauðklædda Kláus sem jólasvein, heldur bara gömlu jólasveinana og Grýlu.
Ég veit ekki hver gaf okkur jólasveininn, en hann hefur fylgt mér alla tíð, og nú er hann hér í eldhúsinu. Nokkuð slitinn og viðgerður, en alltaf jafn hress og kátur.
17.12.06
15.12.06
Minningar
Á jólunum er fortíðin nálægari en aðra tíma ársins. Minningar, bæði sætar og beiskar, fylla hugann, og dauðir hlutir, eins og eldgamalt jólaskraut, verða alltíeinu ákaflega hjartfólgnir. Þetta par hefur fylgt mér alla ævi. Þau stóðu á stofuskápnum í Skriðu á hverjum jólum, og sem betur fer eru þau enn til. Snjókarlinn glitraði meira í þá daga, og engillinn hafði næfurþunna vaxvængi. Mér fannst hann ævintýralega fallegur. Þetta eru kerti, bæði hafa kveik á kollinum, en þau eru alltof verðmæt til að það verði nokkurntíma kveikt á þeim. 14.12.06
Aðventuljós
Aðventuljósið er komið í gluggann. Pabbi fékk þetta ljós í jólagjöf frá Sísí og Halla fyrir mörgum, mörgum árum. Ætli þau séu ekki farin að nálgast 30. Hann hélt mikið uppá ljósið, og hafði kveikt á því í glugganum hjá sér frá því að aðventa hófst og stundum fram undir páska. Ljósið hefur lýst upp jólin hjá mér síðan hann flutti í Sunnuhlíð. Það hefur aldrei bilað, og ég hef aldrei þurft að skipta um peru, sem er eins gott, því ég get ekki ímyndað mér að það væri auðvelt að nálgast varaperu í svona gamalt ljós.
11.12.06
Mince Pies
Nú eru matvöruverslanir og bakarí full af “mince pies” og þær fáu húsmæður hér sem ennþá baka, bjóða gestum uppá þær heimabakaðar. Þær tilheyra jólahaldinu hér, eins og laufabrauðið og smákökurnar heima. Mince pie er nokkurskonar deigform, sem fyllt er með rúsínu og sveskjukássu, og lok sett á. Það er svolítið ruglandi að mince er líka orðið yfir nautahakk. William þykir þetta bakkelsi geysigott og hesthúsar þær í tugatali, en ég læt þær alveg eiga sig.
Ketilinn
Ég fægði ketilinn í dag. Það hefur verið fastur liður í jóla-undirbúningi svo lengi sem ég man. Mamma átti þennan ketil, og fægivinnan var oftast í mínum verkahring. Eftir að mamma féll frá fór mikið af búslóðinni okkar forgörðum, og ketlillinn hefði farið sömu leið, því þegar ég var 15 ára fannst mér hann lítið spennandi. Bogga frænka tók ketilinn að sér, en stuttu áður en hún dó sendi hún mér hann. Þá var ég orðin nógu þroskuð til að kunna að meta hann.
Það vildi svo skemmtilega til að mamma Williams átti líka svona ketil, svo nú eru þeir tveir sem ég fægi fyrir hver jól.
9.12.06
Mikki refur
Við vöknuðum upp um miðja nótt við refaskræki, því hérlendir refir gagga ekki eins og frændur þeirra heimskautarefir. Þeir gelta skrækum rómi. Tess hóf upp raust sína til að láta rebba vita að hér byggi hundur, og hann þagnaði. Það er mikið um refi hér, enda eru refaveiðar nú bannaðar. Eftir að dimmir á kvöldin fara þeir á stúfana að leita sér að æti, og garðurinn hjá okkur er vinsæll, því stundum detta molar af fuglaborðinu.
8.12.06
Jólakortahelgi
Nú ætla ég að fara að skrifa jólakortin. Fyrst tek ég vel til og svo raða ég öllu sem til þarf á skrifborðið fyrir framan mig. Kortastafla, jólakortalistanum með öllum heimilisföngunum, frímerkjum og setti af nýjum marglitum pennum. Svo set ég jóladisk í spilarann, kveiki á kerti og þá er allt tilbúið og ég get byrjað. Ekki trufla. Ég er í jólakortaham.
Ég sendi mikið af kortum. Það eru svo margir vinir og ættingjar heima sem ég vil senda kveðju, fólk sem ég hitti ekki oft, en vil alls ekki missa öll tengsl við. Við bætast svo nokkrir ættingjar Williams, og fólk sem ég hef kynnst hérlendis. Það var ekki venja heima að senda þeim jólakort sem maður hitti daglega og gat óskað gleðilegrar hátíðar persónulega, svo sem vinnufélögum og nágrönnum. Hér tíðkast það hinsvegar að fólk hreinlega skiptist á jólakortum. T.d. afhenda allir meðlimir hundagönguhópsins hver öðrum kort, og allir sem búa í götunni hér stinga korti innum lúgurnar hjá hver öðrum. Við fáum kort frá fólki sem við þekkjum ekki neitt, og sem veit ekki hvað við heitum. Á umslaginu stendur kannske bara No. 15 – og svo er undirskriftin No. 6 eða No. 8. Skondið.
7.12.06
Nýtt sjónvarp
Við fengum okkur nýtt sjónvarp fyrir rúmum mánuði síðan, og því fylgdi upptökutæki á sértilboði. Við getum tekið upp 80 klst. af efni, og það er hægt að taka upp á tveimur rásum í einu, svo við getum tekið upp tvo þætti og horft á þann þriðja á meðan.
Síðan við fengum tækið hefur orðið gjörbreyting á sjónvarpsnotkun á heimilinu. Við skoðum dagskrána, veljum það sem við viljum sjá, og tökum það svo allt upp. Svo byrjum við að horfa þegar okkur hentar í hvaða röð sem við viljum; það er hægt að byrja að horfa á þætti sem enn er verið að taka upp. Við rúllum hratt yfir allar auglýsingar, svo miklu styttri tími fer í að sjá það sem við viljum sjá. Þetta er sérstaklega þægilegt núna til að losna við að horfa á allar jólaauglýsingarnar.
6.12.06
Pússluspil
Á hverju kvöldi í fleiri mánuði hef ég farið á vef sem kallast Jigzone, og gert pússluspil dagsins. Þetta tekur svona 5-6 mínútur, og er ómissandi (finnst mér). Það er sagt að maður eigi að halda heilasellunum í þjálfun til að forðast andlega hrörnun, svo ég hef afsökun fyrir þessari einkennilegu áráttu.
4.12.06
Strauja? Ekki ég!
Leiðinlegasta verk í heimi er að strauja. Mér hefur alltaf leiðst það, og nú er ég alveg hætt. Ein af kvenréttindakonunum sem ég kynntist í Öldungadeildinni (anno 1974) sagði mér að hún væri búin að fleygja straujárninu, og önnur sagðist þekkja konu sem alltaf trassaði að strauja þangað til það væri komin geysi bingur, og þá færi hún í ríkið og keypti sér Martini flösku sem væri ómetanleg hjálp við strauningarnar. Þetta fannst mér á þeim tíma góð hugmynd, en lét mér nú oftast nægja að setja uppáhalds diskinn á spilarann og syngja svo og tralla meðan ég straujaði. Fyrst eftir að ég gerðist full-time heimavinnandi húsmóðir var ég afskaplega samviskusöm og straujaði allt, jafnt viskastykki sem nærföt, en með tímanum hefur gamla strauóbeitin og letin náð yfirhöndinni. Galdurinn er að taka tauið úr þurrkaranum 75% þurrt, brjóta þétt og vel saman og stafla í þurrkskápinn, þar sem heitavatnstankurinn er. Eftir tvo daga er allt slétt og fínt.
28.11.06
Jólatónleikar
Þrjú eða fjögur undanfarin ár hef ég séð um að auglýsingagerð fyrir kórinn. Það eru tvennir tónleikar á ári, jóla og vor. Þetta geri ég ókeypis, enda lítið verk. Rukka bara fyrir blek og pappír. Ég var að klára jólaauglýsingarnar í ár, þær eru nú í prófarkalestri hjá "kórstjórninni."
Conductor: Ewan L. Gibson.
Christmas Concert
SUNDAY 10 DECEMBER at 7:30 PMAt St Columba Church, Kilmacolm.
Tickets are available from choir members,
or by phone: 01505 872062
Price: £6 and £15 (family ticket).
Admission by ticket only.
Seasonal refreshments will be provided after the concert for donations in aid of The Scottish Motor Neurone Disease Association.
12.11.06
Nóvemberkaktus
9.11.06
Ljót krumla
Eins lengi og ég man eftir mér hef ég haft þann ósið að naga neglurnar. Stundum hefur mér tekist að hætta í nokkra mánuði, og ég veit að ég á það ekki skilið, en þegar ég er með neglur eru þær vel formaðar og fallegar. Ég skammast mín fyrir hendurnar á mér, og fel þær helst, lít ekki á þær, en síðan ég fór að læra að spila er það frekar erfitt. Ég ætla að reyna enn einu sinni að hætta. Ég sýni ykkur mynd af hendinni aftur eftir mánuð.
8.11.06
Saumó í heimsókn
27.10.06
14.10.06
Skriða
Sagan segir að þegar pabbi var rétt byrjaður að byggja húsið okkar hafi fallið aurskriða úr fjallshlíðinni yfir lóðina. Hann storkaði örlögunum, byggði húsið og nefndi það Skriðu. Við fluttum inn þegar ég var nýfædd og ég var alltaf "Ella í Skriðu." Þetta fannst mér sveitó, og notaði því Seljalandsvegur 54 sem heimilisfang. Það fannst mér heimsborgaralegra.Sauðfé
Jón bóndi.12.10.06
Fyrir 60 árum
Óðinn var leikfélagi minn þangað til Dísa systir hans var orðin nógu gömul til að leika sér. Hún færði mér þessa mynd af okkur Óðni þegar hún kom í heimsókn; ég hef ekki séð hana áður. Við erum líklega 3-4 ára, og ég er með sippuband á handleggnum, eða svippuband eins og það hét á okkar máli. Ég man ekki eftir kjólnum eða peysunni, en myndin hefur greinilega verið tekin að sumri. Stuttbuxur og berir leggir. Sumarið 1946? Þokukennd löngu liðin tíð, jafn óskýr í minningunni og myndin af okkur Óðni.
11.10.06
Eggjahæna
Við Ranný, (Rannveig Matthíasdóttir), í desember 1959.4.10.06
Októberblóm
1.10.06
Fátt er svo með öllu o.s. frv.
Þegar stóra tréð féll braut það griðinguna á löngum kafla. Ég sá mér leik á borði og nefndi við fjármálastjórann hvort nokkur leið væri að fá girðingarsmiðinn til að setja smá hlið á girðinguna. Þetta er nokkuð sem ég hef oft nefnt, sérstaklega fyrstu árin. Það myndi stytta mér leið með Tess á morgnana, ég slyppi við að ganga niður götuna, og í stóran krók og svo upp stíginn bak við húsið. Nú brá svo við að málið fékk góðar viðtökur og hliðið er komið. Nú geng ég beint af lóðinni út á stíginn, Tess þarf ekki að vera í bandi, og þar sem enginn sér mig get ég slugsast um í gamla joggingallanum. Þvílíkur munur.
24.9.06
Sálin í trénu
23.9.06
Stóra tréð
Það var rok og rigning á miðvikudagskvöldið, og klukkan hálf tólf heyrðist mikið brak. Tvær risa greinar höfðu brotnað af stóra trénu okkar, og splundrað girðingunni. Daginn eftir fengum við "trjásérfræðing" sem sagði tréð hættulegt og það yrði að fella það. Í gær kom hann svo með menn og vélsagir, og það var sagað og hoggið, og klukkan þrjú var ekkert eftir nema stofninn. Garðurinn er eins og eftir sprengingu, því þegar þungar greinarnar duttu niður brutu þær allt sem undir var. Girðingin er nú í enn meiri rúst, og heittelskaðir runnar og plöntur sem ég hef verið að hlunna að gengum árin brotin niður í rót, eða troðin í svað af þungum viðarhöggsmannastígvélum. Ég var svo sjokkeruð og reið yfir atganginum að ég var næst taugaáfalli. Það er ekkert til í heiminum sem veldur meiri eyðileggingu heldur en menn með harða hatta og vélsagir, nema etv. menn með hjálma og vélbyssur.
Nú er heyrir þetta 300 ára gamla tré sögunni til. Mig langar mest til að halda minningarathöfn. Setja blómsveig á stubbinn og spila sorgleg lög á hljómborðið mitt.
12.9.06
7.9.06
Dísa og Ella
Við vorum óaðskiljanlegar fyrstu tólf æviárin. Endalausir framhalds dúkku- og dúkkulísuleikir, sandkassaleikir, búleikir. En svo gerðist það óhjákvæmilega. Við urðum stórar. Lífið tók við, og alvaran. En nú ætlum við að rifja upp öll gömlu prakkarastrikin. Dísa kemur í heimsókn á morgun og verður í nokkra daga hjá okkur. Mikið hlakka ég til!
3.9.06
Dúfur

William er mikill fuglavinur. Hann kaupir hnetur og sólblómahjörtu og blandað fóður, og matargestum fjölgar ár frá ári. Nú koma að minnsta kosti tólf tegundir smáfugla reglulega í mat til okkar. En ein er sú tegund sem ég er ekki hrifin af. Dúfur. Ekki skógardúfurnar eða hringdúfurnar, heldur venjulegar drulludúfur. Þær sitja í langri röð á þakskegginu og bíða, og þegar William birtist með fuglaskálina flykkjast þær að með vængjaslætti og látum, 20-30 stykki. Nú er svo komið að þær eru orðnar vandamál. Allt útskitið og ég segi stopp. Nú skal bara gefa litlu fuglunum í þar til gerða fóðurstauka, en ekkert fyrir dúfur. Fuglavinurinn William er gráti næst af vorkunn. “Aumingja dúfurnar.”
Fuss og svei!
24.8.06
Tess er farin að blogga
Ég setti "sitemeter" á síðuna hennar Tess, og sé að þó við fáum nokkra tugi gesta daglega staldra fáir lengi við, svo ég ákvað að vera dugleg að setja nýtt efni á vefinn. Það nýjasta er Dogblog, þar sem Tess afhjúpar sínar skoðanir á hundalífi og tilveru.
Hljóðfærið
William gaf mér hljómborð fyrir tæpum tveimur árum, sem ég glamra stundum á að gamni mínu, af lítilli snilld. Ég get spilað eftir eyranu, en bara í C-dúr. Nú ætla ég að fara að læra almennilega, og er búin að semja við ungan mann, Stuart, um að koma vikulega og kenna mér. Við byrjum á laugardaginn. Hann veit að ég er "gamalmenni" - en kannske fær hann sjokk þegar hann sér að hljóðfærið mitt er ekki Yamaha eða Casio, heldur frá Bontempi, sem er leikfangaframleiðandi.
13.8.06
8.8.06
Hundadagar

Kim var hjá okkur í nokkra daga. Kim er hundur vinafólks okkar, Barböru og Toms og við höfum passað hana áður. Hún er gömul, 11 ára, og vandamálið er að það er alveg voðalega vond lykt af henni. Tess hreinlega ilmar í samanburði við Kim, en kannske erum við samdauna lyktinni af eigin hundi. Nú er Kim farin, og dagurinn hefur farið í að lofta út og þrífa.
31.7.06
28.7.06
Mér er heitt!
27.7.06
Sól, sól og meiri sól.
Aldrei hefði ég trúað því að ég ætti eftir að verða leið á blessuðu sólskininu. Það hefur verið sól og blíða hér allan júlí, og hluta af júní. Hitinn 25 stig eða meira í skugga um miðjan daginn. Vandamálið er að íslendingurinn í mér er vanur því að þegar sólin skín er málið að láta allt annað bíða og njóta góða veðursins. Ekki eyða tímanum í húsverk eða búðaráp eða neitt sem hægt er að gera þegar veðrið er grátt. Ég hef því eytt megninu af júlímánuði útflött í sólstól úti í garði, reyndar í skugganum, því ekki vill maður brenna sig til óbóta. Ég les, og dotta eða sit með myndavélina tilbúna á þrífæti til að taka myndir af fuglunum. Nú er samviskan farin að láta á sér kræla, þvílík leti. Vonandi fer bráðum að rigna .
24.7.06
17.7.06
Froskur
Þessi litli froskur sat á stéttini þegar við komum heim úr síðdegisgöngunni í dag. Hann var í sólbaði, teygði úr skönkunum og lygndi augunum, og stillti sér upp fyrir myndatöku. Myndavélin var sótt, en um leið og hann sá hana stökk hann í burtu. Ég hef sannreynt að silfurlit myndavél er ekki góð til að taka dýralífsmyndir. Það eru allar villtar skepnur hræddar við hana.
12.7.06
Stóra tréð
Þegar við völdum húsið okkar var ég sérstaklega hrifin af geysi stóru og fallegu tré sem stendur á lóðinni. Þetta er "horse chestnut" - líklega nokkurra alda gamalt, og á vorin þegar það er í fullum skrúða er það þakið hvítum blómum. Seinna koma svo hneturnar, sem reyndar eru ekki ætar nema fyrir íkornana, sem safna þeim og fela til vetrarforða. 
Svona lítur tréð út núna, hálfnakið.
10.7.06
7.7.06
Glencoe
Það var farið í ferðalag í dag. Vaknað snemma og tekið til nesti, myndavél og vegakort og stefnan tekin á Glencoe, sem er frægur bardagastaður í Skotlandssögunni, en líka orðlagður fyrir náttúrufegurð. William er ekki morgunhani, og er yfirleitt ekki í sambandi fyrr en um hádegi, enda kom í ljós á áfangastað að hann hafði tekið tveggjakílóa sekk af fuglafóðri með, því pokinn hafði verið á eldhúsborðinu við hliðina á nestistöskunni. Ferðin tók rúman klukkutíma, við vorum komin á leiðarenda klukkan eitt, og fundum yndislegan stað á árbakka til að borða nestið. Svo skoðuðum við okkur um, fengum okkur kaffi í litlu veitingahúsi og héldum svo af stað heim. Að venju villtumst við, því William hefur "tunnel vision" og sér ekki vegaskilti. Ég sat hálfsofandi með kortið á hnjánum, og hafði orð á því að það væri skrítið að skiltin nefndu ekki Glasgow, heldur Callander og Perth og svo fórum við í gegnum hin og þessi þorp og landslag sem ég mundi alls ekki eftir á leiðinni uppeftir. Þegar við áttuðum okkur vorum við komin langleiðina til Perth. Ferðin heim tók því tvisvar sinnum lengri tíma en til stóð. En við erum komin heim, heilu og höldnu og útþránni svalað í bili.
6.7.06
2.7.06
Sumardagar
Veðrið hefur leikið við okkur undanfarið, og ég hef notið blíðunnar í garðinum. Aðal viðfangsefnið þessa dagana er að taka myndir af dýra- og fuglalífinu, sem er fjölbreytt. Smáfuglarnir koma með ungahópa til að kenna þeim að borða fóðrið sem við setjum út, og ýmis önnur dýr eru daglegir gestir. Rebbi kemur oft í heimsókn, sömuleiðis íkornar, broddgeltir og skógarmýs. 























