Sorg
Síðasta myndin. Tekin meðan beðið var eftir dýralækninum.
Við misstum hana Tess okkar á laugardaginn. Hún var búin að vera veik lengi, og batavon engin. Henni versnaði fyrir hálfum mánuði, og þegar hún var farin að þjást urðum við að taka erfiða ákvörðun.
Síðan á laugardag höfum við verið niðurbrotin, það er eins og sálin sé horfin af heimilinu. Öll okkar tilvera snérist um Tess, okkar rútína var hennar rútína. Við vöfrum nú um eins og vofur og getum ekki einbeitt okkur að neinu. Við gleymum að borða, því Tess er ekki hér lengur til að minna okkur á matartímana, og við förum snemma í rúmið og seint á fætur, því nú eru engar morgun og kvöldgöngur nauðsynlegar. Síðustu þrjá daga höfum við svo haldið okkur að heiman allan daginn, því húsið er svo tómt og tilgangslaust, og það er eins og það hafi alltíeinu stækkað um helming. Sömuleiðis virðast dagarnir hafa lengst um helming.
Ég veit að þetta á eftir að lagast, við eigum eftir að finna okkur nýja rútínu og venjast því að vera bara tvö. En eins og er eigum við voðalega bágt. Við söknum hennar svo mikið.

2 ummæli:
It will get better
Thinking of you. When we lost Lucy we felt like we were not a family any more, just a couple. But in time we found a new routine, new habits. You will too - with the best memories to share. All the best. Helen & Ian xx
Skrifa ummæli