Ferðataska keypt
Við ætlum að leggja land undir fót í næstu viku, og fara til London. Vegabréfið mitt rann út í mars í fyrra, en konsúllinn í Glasgow framlengdi það í ár. Nú er árið að verða liðið, svo ég verð að gera eitthvað í málinu. Nútildags er bara hægt að fá vegabréf afgreidd í sendiráðum, eða heima á Íslandi.
Ég er búin að kaupa mér nýja ferðatösku, því sú gamla er komin undir þritugt og ansi gamaldags.
Það gerir okkur vonandi gott að fara að heiman, þó ekki séu það nema nokkrir dagar. Við höfum átt erfitt undanfarið, við söknum Tess alveg skelfilega mikið. Á morgun hefði hún orðið 13 ára.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli