26.6.10

Ingibjörg Elín Elíasdóttir, f. 26.6.1910, d. 10.2.1958.

Í dag, 26. júní, eru 100 ár frá því að mamma fæddist.

Foreldrar mömmu voru Elías Hálfdánsson og Elísabet Jónsdóttir, Hnífsdal. Þegar Elísabet dó, árið 1911, gengu bróðir Elíasar, Hálfdán í Búð, og Ingibjörg kona hans mömmu í foreldra stað.
4. nóvember 1933 giftist mamma Jóni Halldórssyni frá Miðdalsgröf í Strandasýslu. Ég var nýfædd þegar við fluttum í Skriðu á Ísafirði, sem pabbi byggði sjálfur.
Mamma  var dugleg og metnaðarfull kona, ekki sist fyrir hönd barnanna sinna, okkar Halla.  Hún var kappsöm og geysilega vandvirk.  "Það kemur fram í seinna verkinu sem gert er í því fyrra" sagði hún gjarnan,-  nokkuð sem ég hef reynt að tileinka mér.
 Árin  okkar í Skriðu urðu fimmtán. Björt bernskuár, en alltof oft skyggð af erfiðum veikindum mömmu.  Þeim lauk árið 1958, þegar mamma dó, aðeins 47 ára.

23.6.10

Flottasta blómið í garðinum

DSC00748 

Það hefur verið sumarlegt undanfarið, sólríkt og heitt og garðurinn er búinn að ná sér vel eftir vetrarhörkurnar. Ég keypti þessa plöntu til að fylla í skarð, og hún hefur ekki valdið vonbrigðum.

19.6.10

Tungumál

Þau þrettán ár sem ég hef verið hér hef ég afskaplega sjaldan haft tækifæri til að tala móðurmálið. Ég hef aldrei verið svo heppin að fyrirhitta hér aðra íslendinga og hef því bara getað talað íslensku í stuttum heimsóknum mínum til Íslands, og kærkomnum símtölum og heimsóknum frá fjölskyldu og vinkonum. Ég er skíthrædd um að ég fari að ryðga, og sletta ensku.  Ég er komin á þann aldur að ég tuða heilmikið, við sjálfa mig og við Tess, og síðan ég tók eftir því að þetta var orðið á einhverskonar málruglingi, hef ég gert mitt besta til að tuða bara á íslensku. Eða prentaradönsku, sem var uppáhaldsmálið okkar pabba "í dí gúðe gamle dager po Ísafjörður."

Utangarðs

Þennan hluta garðsins kalla ég "utangarðs" - því hann er framan við húsið, var áður órækt undir stóru tré, en tilheyrir okkar "landareign."  Þarna hef ég stritað mikið, en árangur erfiðisins er bara nokkuð góður.

17.6.10

Lítill og sætur rebbi


Í kvöld náði ég loksins góðri mynd af rebba litla.

St Elín frá Ísafirði

Hér má sjá sankti Elínu frá Ísafirði, en hún er svo heilög að andlegir fuglar flögra stöðugt í kringum höfuðið á henni til að tjá þakklæti fyrir allar matargjafir hennar til handa fuglum himinsins og öðrum skynlausum skepnum jarðarinnar, svo sem músum, rottum, sniglum  - og refum. Þess ber að geta hér að Photoshop kom hér hvergi nærri.

Af refum


Hér í nágrenninu einhversstaðar er tófugreni, og nýlega fóru tveir yrðlingar að venja komur sínar í garðinn á kvöldin til að leita að æti undir fuglaborðinu. Mér rann til rifja hvað þeir voru horaðir, svo ég hef sett smá rúnnstykkisbita út á kvöldin fyrir þá. Svo sit ég í leyni með myndavélina, í von um flottar myndir af þeim. Árangurinn hefur ekki verið alveg nógu góður, eins og sjá má. En mikið eru þetta falleg dýr.

15.6.10

Trjáspör

Það eru tvær tegundir af "spörvum."  Gráspör er algengur í þéttbýli, en trjáspör - eins og nafnið bendir til - í skóglendi. Ég hef hinsvegar ekki séð þá í garðinum fyrr en í vor, að einn fór að venja komur sínar í "mat." Svo bættist annar við, og tilhugalífið tók við. Það fólst helst í því að finna hvíta fjöður og dansa með hana í gogginum fyrir framan þá heittelskuðu, svona til að segja: "Sjáðu nú bara gæskan mín hvað hreiðrið okkar verður mjúkt og notalegt."  Í fyrradag, þar sem ég sat í sólstofunni í morgunsárið sá ég hvar fuglahópur kom alltíeinu fljúgandi. Tveir gogguðu í fóðrið og gáfu svo hinum fjórum að borða. Þarna voru trjáspörvahjónin mín komin, með fjóra frísklega unga. Það eru svona stundir sem gefa lífinu hér gildi.
Myndina tók ég í gær, út um gluggann með aðdrætti, svo hún er ekki mjög skörp.

9.6.10

Uppþornuð

Vinstra augað hefur angrað mig lengi, ég vakna iðulega með bólgið auga og eldrauða hvítu, og sé ekki hálfa sjón. Ég er búin að prófa allskonar dropa og fara þrisvar til læknis. Yfrleitt skánar þetta meðan ég er á dropum, en eftir nokkrar vikur fer allt í sama horf. Í gær fékk ég svo loksins tíma hjá alvöru augnlækni, og það tók hann innan við tíu mínútur að sjá hvað á bjátar. Ég er að þorna upp. Tárakirtlarnir eru hættir að virka. Mér fannst það skrýtið um daginn, þegar ég var að saxa lauk  að ég grét bara með öðru auganu! Nú er ég búin að fá áburð til að setja í augað fyrir svefn og flösku af gerfi tárum sem ég á að nota þrisvar á dag - það sem eftir er ævinnar.  Illt er að vera orðin gömul.

6.6.10

Nýjir skór!

Ég fór í búðir í dag, og endaði í skóbúð. Þetta eru þeir þægilegustu sandalar sem ég hef nokkru sinni átt. Mikið er ég ánægð með þá!

Hjálpræði

Nágrannar okkar (beint á móti), Ian og May,  eru bæði majórar í Hjálpræðishernum. Þetta er rólyndisfólk sem lítið fer fyrir, nema þegar hann kemur heim á stóra eldhúsbílnum. Þessi bíll er notaður þegar stórbrunar eiga sér stað. Þá fer Hjálpræðisherinn á vettvang og gefur brunaliðinu te og "bacon butties." (Stór, mjúk rúnnstykki með beikoni og brúnni sósu).  Stórmarkaðir eru rausnarlegir við Hjálpæðisherinn og gefa þeim það sem til þarf, og vel útilátið, þannig að oft er mikill matur afgangs. Þá afganga færir Ian okkur nágrönnunum.
Það var enn einu sinni kveikt í gömlu Patons verksmiðjunni í Johnstone í vikunni. Hún hefur staðið ónotuð í áratugi, en nú er hún alveg horfin. Við fengum pylsur, bacon, banana og fullt af stórum, hvítum rúnnstykkjum (sem við gefum dúfunum.)

4.6.10

Löngu liðinn júnídagur

Þessi uppáhalds mynd er í ramma á myndahillunni minni. Hún er farin að upplitast, svo ég ákvað að skanna hana áður en hún hyrfi alveg. Myndin er af pabba og Huju systur hans og er tekin í Heiðmörk. Þetta hefur líklega verið það sem við kölluðum "lúpínutúr" og var fastur liður í júní þegar allt var orðið blátt áf lúpínum. Kaffibrúsinn er með í för, og líklega kexpakki. Pabbi er að reykja pípuna sína. Því miður veit ég ekki hvaða ár þetta var, líklega uppúr 1980.  Hægra megin við Huju er hækjan hans pabba.
Pabbi dó 1994, 89 ára, en Huja dó árið 2004, 98 ára.