Ferðalag
Við erum á leið til Íslands. Vélin fer í loftið klukkan 14:20 í dag, og við verðum heima í viku. Það eru tvö ár síðan ég var síðast heima. Ég var ein á ferð, og var frekar ömurlega á mig komin. Ég var óvenjulega slöpp, og kenndi það slæmu kvefi sem hrjáði mig, en komst að því eftir að ég kom heim að ég var líka með slæma ígerð í brjósti. Ég gat því eiginlega ekki notið ferðarinnar, þó alltaf sé gaman að hitta sitt fólk. Nú kemur William með mér, ég er við bestu heilsu, og ég er viss um að þessi ferð verður ánægjuleg.
Það er allt tilbúið, búið að pakka niður og ganga frá húsinu, og bara eftir að skipta um föt og vökva blómin.
Við verðum til húsa í leiguíbúð að Efstalandi 20, símanúmer hef ég ekki enn, því íslenska símakortið mitt er runnið út. Ég kaupi nýtt þegar ég kem til landsins.
Rebbarnir litlu verða að venjast því að fá engan kvöldskatt, því nú ætla ég að hætta að gefa þeim. Þeir eru farnir að stálpast, og verða að læra að bjarga sér sjálfir.
