Undur og stórmerki
Þegar HP fartölvan mín hætti að geta náð netsambandi fyrir nokkrum mánuðum síðan eyddum við ómældum tíma í að koma henni í lag, en þegar það tókst ekki var hún sett í geymsluna, og ný fartölva keypt.
Í dag var rigning, svo ég hef verið að tölvast allan daginn. Ég er búin að vera að sortera myndir og taka backup, og af einhverjum ástæðum datt mér í hug að það væri kannske hægt að nota harða diskinn á gömlu tölvunni til að geyma auka afrit af myndunum mínum. Svo ég setti hana í samband og hlóð batteríið. Og hvað gerist? Hún er í fínu lagi. Kannske þurfti hún bara smá hvíld. Nú á ég þrjár tölvur sem allar eru í góðu ástandi.


