28.11.06

Jólatónleikar

Þrjú eða fjögur undanfarin ár hef ég séð um að auglýsingagerð fyrir kórinn. Það eru tvennir tónleikar á ári, jóla og vor. Þetta geri ég ókeypis, enda lítið verk. Rukka bara fyrir blek og pappír. Ég var að klára jólaauglýsingarnar í ár, þær eru nú í prófarkalestri hjá "kórstjórninni."

Bridge of Weir Choral Society.
Conductor: Ewan L. Gibson
.
Christmas Concert
SUNDAY 10 DECEMBER at 7:30 PM
At St Columba Church, Kilmacolm.
Tickets are available from choir members,
or by phone: 01505 872062
Price: £6 and £15 (family ticket).
Admission by ticket only.
Seasonal refreshments will be provided after the concert for donations in aid of The Scottish Motor Neurone Disease Association.

12.11.06

Nóvemberkaktus

Þessi planta hefur fylgt mér lengi. Hún blómstraði á Eiríksgötunni, í Kjarrmóunum, og ferðaðist svo í gámi til Skotlands, þar sem hún blómstrar dyggilega í nóvember á hverju ári. Það voru ef ég man rétt þrjár stofuplöntur sem ég tók með mér hingað, og svo nokkrir afleggjarar. Þetta lifir allt enn.

9.11.06

Ljót krumla

Eins lengi og ég man eftir mér hef ég haft þann ósið að naga neglurnar. Stundum hefur mér tekist að hætta í nokkra mánuði, og ég veit að ég á það ekki skilið, en þegar ég er með neglur eru þær vel formaðar og fallegar. Ég skammast mín fyrir hendurnar á mér, og fel þær helst, lít ekki á þær, en síðan ég fór að læra að spila er það frekar erfitt. Ég ætla að reyna enn einu sinni að hætta. Ég sýni ykkur mynd af hendinni aftur eftir mánuð.

8.11.06

Saumó í heimsókn

Þetta var skemmtileg helgi, stelpurnar komu á föstudag og voru fram á sunnudag. Það var mikið spjallað og hlegið, borðaður góður matur og drukkin eðalvín. Verst að þetta var alltof fljótt búið, stelpurnar farnar og ég eftir hér í hversdeginum. En hver veit nema við gerum þetta að árlegum viðburði.