29.7.09

Gamla skrukkan

Það er allt farið að bila. Ég er eins og gamalt heimilistæki, komið að fótum fram. Endalausar viðgerðir. Flestir myndu endurnýja. Árið byrjaði með súkraþjálfun til að koma öxl og handlegg í lag. Svo tóku við árlegar tékkanir sýnatökur og áhyggjur af því - auk þess sem ég hef verið í meðferð hjá húðsjúkdómalækni vegna sólskemmda í andliti. Langvinnur þurr hósti reyndist vera aukaverkun af blóðþrýstingslyfi, og er að skána, en annað augað hefur mikið verið að pirra mig, og ég er búin að fá þrennskonar dropa og krem, enn án árangurs. Heyrnin er farin að bila líka (segir William). Varta á kviðnum á mér tók uppá því að bólgna, og í dag var hún fjarlægð og send í ræktun. Nú er ég með útsaumaðan maga og stóran plástur. Það er greinilegt að elli kerling er að ná yfirhöndinni.

26.7.09

Sunnudagsblogg

Þetta er bláasta bólm sem ég hef séð. Mikið vildi ég eiga blússu í þessum lit.

Árið 2000 létum við garðyrkjumann gera upp garðinn, og meðal plantnanna sem hann setti niður var grastoppur. Hann sagði þetta vera "interesting" plöntu, og þar sem grös allskonar hafa verið í tísku í görðum hef ég látið þennan topp eiga sig þar sem hann var. Svo var það í gær að ég var að stússa í beðunum að ég sá þetta fallega gula blóm. Eftir 9 ár er grastoppurinn sem sé farinn að blómstra! Það er sko "interesting"!

Fuglarnir eru orðnir svo þungir að þeir brutu lendingarprikið. Ég myndaði viðgerðina út um eldhúsgluggann.

Hvenær verð þeir RAUÐIR? Vita þeir ekki að þeira eiga að vera rauðir?

25.7.09

Tækjagleði

Vinkona mín, á áttræðisaldri, er afskaplega tækjaglöð. Ef hún sér eitthvað sem henni finnst sniðugt er það umsvifalaust keypt, en vandamálið er að hvorki hún né eiginmaður hennar hafa hugmynd um hvernig eigi að nota tólin. Þau eru nýlega búin að kaupa innanhúss net, fyrir síma, sjónvarp og tölvu, sem Sky setti upp, og eru með stóra tölvu sem einungis er notuð til að skoða vefsíður um skemmtiferðaskip, því þau fara gjarnan í slíkar reisur. Þau eru líka nýbúin að kaupa geysimikið sjónvarpstæki, einar 47 tommur, og Skype (ósett upp enn.)
Ég var boðin í morgunkaffi til hennar í gær, og visst strax að eitthvað bjó undir. Fyrst voru mér sýndar myndir úr nýlegri Indlandsferð. Geysimargar, og ekki góðar. Hún á fína digital vél, en kann ekki að færa myndir á tölvuna, og notar því gamla filmuvél. Myndirnar lét hún framkalla í Indlandi, og það var ekki vel gert, svo allir voru grænir á litinn.
Aðalástæðan fyrir kaffiboðinu reyndist hinsvegar vera sú að hún hafði keypt sér litla "netbook" fartölvu. Hún vildi nota hana fyrir email, en ekkert gerðist þegar hún klikkaði á "receive mail.". Tölvan hafði sjálfkrafa fundið og tengt sig við innanhússnetið, en "vissi" ekki hvert hún ætti að sækja póstinn. Ég hjálpaði henni við að setja Outlook Express upp til að sækja póst á Sky, sem var alls ekki einfalt, en tókst að lokum. Ég benti henni líka á að það þarf að hlaða batteríið á fartölvunni til að hægt sé að nota hana til frambúðar. Hún var afskaplega þakklát fyrir aðstoðina, og þegar ég kvaddi sagði hún að nú gæti hún tekið litlu tölvuna með sér í öll sín ferðalög og tékkað póstinn sin hvar sem hún væri. Ég passaði mig á að segja henni ekki að málið væri nú kannske ekki alveg svo einfalt.

18.7.09

Síminn minn

Ég er búin að eiga farsímann minn í fjögur ár, svo hann er orðinn gamaldags. Ég hef sjaldan notað myndavélina á honum, því ég hef alltaf talið mig eiga betri vélar. Svo fór ég að rannsaka stillingarnar, og sé að þetta er bara sæmilegasta myndavél. Hún var bara ekki stillt á "fine" svo myndirnar komu illa út. Þessa mynd tók ég áðan, í morgungöngunni okkar Tess. Þar sem litla Sony vasamyndavélin mín er biluð, og nýja vélin með aðdráttarlinsunni er stór, er auðvitað eðlilegast að nota símann, sem er alltaf tiltækur.

17.7.09

Græn paprika


Ég á ekki bara tómataplöntur - ég á líka tvær paprikur. Það verður alldeilis salad veisla þegar uppskeran hefst!

16.7.09

Hásumar er nú

Garðmynd. Þetta er "nýji" garðurinn - við bílastæðið.
Blómahaf.
Svo tekur maður fram jólaskrautið í júlí. Bjöllustrengurinn er ætlaður sem kattarvörn. Þegar kötturinn stekkur á fuglinn lendir hann vonandi fyrst á bjöllunum til að vara fuglinn við.

Rós.
Og grænir tómatar. Ef þeir fara ekki að roðna verð ég að finna uppskriftina hennar mömmu af súrsuðum grænum tómötum. Ef ég man rétt er hún í eldgamalli bók sem heitir Grænmeti og ber allt árið.

10.7.09

Lífsins lystisemdir

Þvílíkur dásemdarinnar dagur hefur þetta verið. Glaða sólskin og 18 stiga hiti. Ég var við garðyrkjustörf til hádegis, en sat svo í garðinum og las reyfara seinnipartinn. Tók aðeins hlé og bakaði vöfflur með þrjúkaffinu, og fór svo með Tess í smá skógargöngu. Svo var sóttur kínamatur í kvöldmatinn (mikið uppáhald húsbóndans) og með matnum glas af köldu hvítvíni. Jamm og jæja. Lífið er stutt. Best að njóta þess.

4.7.09