30.12.07

25.12.07

Aðfangadagskvöld

Pappírinn er skemmtilegastur.

23.12.07

15.12.07

Jólatölva







Það fer ekki á milli mála hverslags gjafir eru kærkomnastar hjá húsfreyjunni á þessum bæ. Ilmvötn, skartgrgipir eða undirföt? Nei takk. Tæki og tól skulu það vera. Helst sem framúrstefnulegust. Jólin komu snemma, því þegar maður er orðinn gamall er engin ástæða til að vera að bíða með að skoða gjafirnar. Sérstaklega þegar maður velur þær sjálfur, og um svona skemmtilegt leikfang eins og þessa litlu, léttu og einstaklega sætu fartölvu er að ræða. Sú gamla var orðin ansi þreytt, og svo var hún geysi þung að sitja með. Ég sit nefnilega gjarnan í sólstofunni, í góða stólnum mínum, með tölvu á hnjánum.

12.12.07

Mikið var hann sætur!


Hver skyldi þetta nú vera? Jú, þetta er húsbóndinn á heimilinu, sem hefur eftir móður sinni að hann hafi verið einstaklega hláturmilt og ljúft barn.

Forskot á sæluna


Hér má sjá jólatré skreytt og ljósum prýdd strax uppúr fyrsta des., oftast stillt rétt innan við stofuglugga, svo þau sjáist vel af götunni. Ansi hlýtur glansinn nú að vera farinn af þeim þegar að jólunum kemur.
Sá var siður þegar ég var að alast upp að jólaskraut var sett upp á Þorláksmessu. Tréð var skreytt um kvöldið, og serían tékkuð, en ekki kveikt á því fyrir alvöru fyrr en jólin gengu í garð. Þessum sið hélt ég alla tíð meðan ég bjó heima, nema hvað ég setti aðventuljós og kannske seríu út í glugga svolítið fyrr.

Ég á enn litla gervitréð sem ég keypti fyrir aldarfjórðungi eða svo, og í fyrra var ég svo sniðug að ég skellti bara svörtum ruslapoka yfir það með seríunni og öllu skrautinu á, og stakk því inní skáp. Það verður því lítið verk að setja það upp - bara stinga í samband - sem ég áætla að gera um næsti helgi. Aðeins fyrr en venjulega.

8.12.07

Jólaskap

Hér á bæ fer lítið fyrir jólaönnum. Allt jólastand fer nefnilega í taugarnar á húsbóndanum. Hann er vanafastur og tilstand og tilbreyting er nokkuð sem hann kann ekki að meta. Ös í búðum, umferðarþungi, annir hjá póstburðarmönnum og kerling sem vill alltíeinu fara að fægja, þrífa allt hátt og lágt og hengja upp jólaskraut - allt þetta veldur miklum pirringi. Ég reyni þessvegna að halda jólaveseninu í skefjum, láta eins og ég sé bara að gera venjuleg laugardagsþrif, en laumast til að gera svona pínulítið extra. Ég er nefnilega mikill jólafíkill. Þegar líður á desember fer mér að finnast allt sem glitrar geysilega fallegt og ég þrái marsipan, rauðkál og rifsberjahlaup.
Kertaljós er nokkuð sem mér finnst óhugsandi að vera án, en ef ég kveiki á kerti í stofunni er mikið hóstað, og rokið til að opna glugga og lofta út. Ég kveiki því á jólaljósinu mínu í laumi, bak við lokaðar dyr hér uppí í kamesinu mínu.

1.12.07

Júlíus Bogason

Í gamla myndaalbúminu mínu er þessi mynd af hrúti. Þessi hrútur hét Júlíus Bogason, og var sameign pabba og Grímsa frænda. Í nokkur ár var hann faðir allra lambanna okkar.

Júlíus var mannelskur og barngóður, og ég notaði hann stundum sem reiðskjóta í káboj leik, með rauða hattinn minn á höfðinu. Ekki fór hann nú mjög hratt yfir.
Hann átti það til að vera stríðinn, og ef hann sá rass í góðu færi tók hann gott tilhlaup og stangaði. Bæði pabbi og Grímsi urðu fyrir barðinu á slíkum hrekkjum.
Júlíusi fannst brauð gott, og hann kunni að opna dyr. Hann opnaði útidyrnar með því að sparka í húninn með klaufinni, og kom svo beinustu leið inní eldhús, jarmandi dimmum hrútsrómi. Fyrst fór hann til Stínu, og svo kom hann til okkar og mamma gaf honum rúðgbrauðsbita.
Júlíus vann eitt sinn fyrstu verðlaun á hrútasýningu. Mér er minnisstætt þegar pabbi var að bursta hann og snyrta fyrir sýninguna. Smá peningaverðlaun fékk hann, sem voru notuð til rúgbrauðskaupa. Svo kom að hætta var á skyldleikaræktun í fjárhópnum, svo Júlíus var seldur inní fjörð. Hann kom samt labbandi í heimsókn, og inní eldhús til að fá brauð. Ef ég man rétt urðu endalok hans þau að hann varð fyrir slysi, fótbrotnaði, og var felldur. Þar fór góður gripur.