28.3.06

Vetur, sumar, vor og haust

Þann 15 hvers mánaðar stilli ég mér upp á sama punktinn og tek mynd af garðinum. Klikkið á myndina til að sjá síðastliðið garðár. Endilega hafið kveikt á hátalaranum!

27.3.06

Af fuglum


Ef mögulegt er að vera meiri fuglavinur en ég er, þá hefur William vinninginn. Hann kaupir fóður í sekkjum og blandar vísindalega, og þegar hann birtist með fóðurskálina flykkist fiðurféð að úr öllum áttum. Heima voru það starrar, snjótittlingar og þrestir sem ég fóðraði, en hér eru aðrir fuglar. Svartþrestir, bókfinkur, gulltittlingar, blátittlingar, glóbrystingar og barrspætur. Sömuleiðis krákur, hringdúfur og síðast en ekki síst, venjulegar drulludúfur. Þær fara í taugarnar á mér, en William elskar alla fugla jafnt.

25.3.06

Hringlað með klukkuna

Hér er klukkunni flýtt á vorin og seinkað á haustin. Ég sé ekki að þetta hringl þjóni neinum praktískum tilgangi, þetta er víst eitthvað sem alltaf hefur verið gert síðan á stríðsráunum, þegar spara þurfti eldsneyti fyrir ljós. Á morgun verður húsbóndinn á heimilinu upptekinn við að breyta öllum klukkum, sem eru ekki fáar ef kyndingin, þjófavarnakerfið og allar ljósaperurnar sem eru á “timer” eru teknar með í reikninginn. Nokkrar klukkur og ýmis tæki og tól eru svo tæknileg að þau hafa beint samband við gerfihnött og sjá um sig sjálf, og þýska klukkan sem við keyptum í Aldi flýtir sér ekki fyrr en eftir viku. Maður hefði nú haldið að Evrópubandalagið gæti komið sér saman um að breyta klukkunni á sama tíma!

23.3.06

Gamla húsið


Þetta er Craigends House, byggt 1857, í stað enn eldra stórhýsis sem verið hafði á sama stað síðan á 15 öld. Landareignin var í eigu Cunningham ættarinnar, en sautjándi og síðasti lávarðurinn af þeirri ætt lést án erfingja árið 1917. Byggingin féll í niðurníðslu, og var rústir einar þegar hún var rifin kringum 1970. Landið var selt byggingafyrirtækjum til að greiða erfðaskatta, og við búum nú í útjaðri þess sem áður var veglegur skrúðgarður umhverfis gamla húsið.
Lord Alexander Cunningham, sem tók við titlinum árið 1765, átti arðbærar plantekrur á Jamaica, og hann lét gróðursetja ýmiskonar tré af erlendum uppruna í garðinum. Mörg þessara trjáa standa enn, risa há og tíguleg, hér bak við húsið okkar. Ýmsar óvenjulegar plöntur er enn að finna hér í kring, ég hef td rekist á berjarunna með gulum hindberjum, ilmurinn frá geysistórum rósarunna liggur í loftinu á kyrrum sumarkvöldum, og afleggjari af klifurplöntu (honeysuckle) sem ég fann dafnar vel í garðinum hjá mér.

22.3.06

Vorboðar

Þó enn séu næturfrost er samt aðeins farið að bóla á vorinu í garðinum. Krókusarnir eru sprungnir út og fuglar sjást fljúga um með strá og annað hreiðurgerðarefni í gogginum. Í dag er gluggaveður hér, sólskin en kalt.

21.3.06

Hér eigum við heima


Þetta er loftmynd af hverfinu okkar (frá Google Earth). Örin bendir á húsið okkar. Þetta er sumarmynd því trén eru öll laufguð. Á myndinni má sjá ána og graslendið handan við ána, sem við Tess göngum í kringum á hverjum morgni. Til að komast yfir ána göngum við upp með henni, gengum skóglendið og yfir litla brú, sem ekki sést á myndinni, en er efst í vinstra horninu. Það er önnur góð gönguleið lengra upp með ánni, gegnum gamalt skóglendi sem er geysi fallegt á vorin. Áður en trén laufgast er allt þakið í bláum og hvítum blómum.

20.3.06

Avon

Vinkona mín er “Avon lady.” Þegar ég kynntist henni bjó hún í stærsta og flottasta húsinu hér um slóðir, en eiginmaðurinn er braskari, þau misstu húsið og hann fór á bætur. Nú býr fjölskyldan í gömlu og ljótu húsi, hann reynir sífellt að starta nýjum bisness, en málin ganga aldrei alveg upp hjá honum. Hún fór að selja Avon. Við hinar kellurnar í hundagönguhópnum vorkennum henni og erum því aðal viðskiptavinirnir. Ég er búin að fylla baðherbergið af Avon snyrtivörum. Það eru baðolíur, sturtukrem, body lotion, body spray, sjampó, hárnæring, allskonar hárblásturs krem og spray, það eru augnskuggar og varalitir, handáburðir og mascara, og eitthvað sem heitir body toning and firming lotion, og á að lagfæra nokkuð sem hérlendis kallast “bingo wings” – húðpokar á upphandleggjum eldri kvenna, sérstaklega þeirra sem nýbúnar eru að hora sig um 25 kíló. Morgulritúalið, sem áður fyrr var bara sturta og búið, tekur nú langan tíma. Það verður að nota öll þessi krem sem búið er að fjárfesta í, þó lítið bóli á árangrinum.

Fótabúnaður


Ef einhver hefði sagt mér fyrir tíu árum að sá tími myndi koma að ég gengi helst um í grænum vaðstígvélum, og að klukkutíma gönguferðir yrðu daglegt brauð, þá hefði ég hlegið dátt. Ég hef aldrei talist til útivistarfólks. Skór entust mér árum saman, því ég gekk helst aldrei. Ég fór í bíl á milli húsa, og reyndi alltaf að finna bílastæði sem allra næst áfangastað. En enginn veit sína ævina o.s. frv. Á hverjum morgni klukkan níu hittist hópur af vaðstígvélaklæddu fólki og öslar í gengum leðju og for, eða snjó og krap ef þannig viðrar, í fylgd með hjörð af allskonar hundum, stórum og smáum. Eftir klukkutíma hressandi útivist halda svo allir til síns heima, hver með sinn hund og nýjustu fréttirnar úr nágrenninu. Eftir að vaðstígvél og hundur hafa verið smúluð með garðslöngunni er kaffisopinn afskaplega vel þeginn.

13.3.06

Asahláka

Svona leit húsið okkar út í gærmorgun, en nú er hláka og snjórinn að mestu horfinn. Það ríkti mikil gleði hér í hverfinu, foreldrar og börn ösluðu um í snjókasti, ótal snjókarlar og kerlingar litu dagsins ljós og allir krakkar virtust eiga sleða eða snjóþotur, sem mér fannst skrýtið, þar sem hér snjóar sjaldan eða aldrei.
Í garðinum er þó nokkuð um afföll, tré og runnar hafa skemmst, en laukar sem farnir voru að blómstra kíkja uppúr snjónum. Nú fer að vora (vonandi).