23.9.08
19.9.08
Nokkuð nýtt?
Nei, ekkert að frétta. Í gær fórum við í matarinnkaup fyrir hádegi og eftir hádegi tók ég smá húsverkatörn. Eftir þrjúkaffið, sem er mjög fastur liður á heimilinu, fórum við í apótekið, og í göngutúr í skóglendinu bak við apótekið. Það er einn að uppáhaldsgöngutúrum Tess, því það búa þar kanínur. Það hellirigndi. Við höfðum kjötbollur í matinn.
Í morgun fórum við Tess niður að á, þar sem hún fékk sér góðan sundsprett. Ég hitti kunningjakonu, sem labbaði með okkur heim. Í dag fer ég í “te” til Eleanor vinkonu minnar, sem er nýkomin af spítala. Ég ætla að taka með mér kökur, tímarit og spennandi bók handa henni. Ég ætla að hafa steikta ýsu í kvöldmatinn.
10.9.08
Löberinn
Þegar mánuðirnir byrja að enda á -ber, þá dreg ég fram jólalöberinn. Oftast sauma ég bara nokkur spor á hverju hausti, því það er svo erfitt að telja út og horfa á sjónvarp á sama tíma. Ég er búin að vera að sauma þennan löber í átta ár en er enn ekki hálfnuð. Löberinn var áður í fórum Huju heitinnar frænku minnar. Hún átti það til að kaupa sér allskonar útsaums verkefni, sem hún kom ekki alltaf í verk að sauma. Áður en hún flutti í Sunnuhlíð gaf hún mér þennan löber, ásamt klukkustreng og veggstykki. Ég er búin að sauma smávegis af klukkustrengnum, en er ekki byrjuð á veggstykkinu. Ég hlakka til að fást við þessar bróderingar – einhverntíma í framtíðinni. Þegar ég er búin með löberinn.
Ertu að hekla?
Húsbóndinn er ekki vel að sér um hannyrðir kvenna. “Hvað ertu að prjóna?” spurði hann. “Nei, ég er að hekla dúllu” svaraði eiginkonan myndarlega. Þegar hún gróf upp löberinn góða og hóf krosssaumaskap spurði hann: “Ertu að hekla?”
Gufan
Við erum búin að kaupa okkur “net útvarp.” Þetta er tæki sem tengist þráðlaust við innanhúss kerfið og internetið, svo við getum hlustað á allar þær tíu þúsund útvarpsstöðvar sem senda út á netinu. Þar á meðal Útvarp Reykjavík. Mikið finnst mér notalegt að hlusta á gömlu gufuna á meðan ég fæst við eldhúsverkin. Veðurfregnir, tilkynningar, Óskalög Sjómanna, morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur. Ég hef meira að segja gert æfingarnar núna í nokkra morgna. Þær eru greinilega ætlaðar gömlu og stirðu fólki, og henta mér því vel núna.
6.9.08
Gamlingjar
Eftir tveggja tíma törn í garðinum sitjum við hér bæði tvö, gjörsamlega uppgefin. Við vorum að snyrta til, klippa ofvaxna runna og hreinsa úr sér vaxnar plöntur. Við erum orðin svo ellihrum að það þarf ekki meira til. Það er alveg á hreinu að ég þarf að fara að ráða staff. Garðyrkjumann, og afhverju ekki húshjálp? En ansi er ég nú smeik um að það yrði erfitt að fá húsbóndann til að samþykkja slíkt bruðl.
2.9.08
1.9.08
Vanagangur
Þegar lífið gengur sinn vanagang er ekki frá mörgu að segja. Tess er svo til batnað, en ég fékk illa í bakið fyrir þremur vikum, og gekk við staf. Mig grunar að það hafi verið vegna þess að Tess gat ekki farið út að ganga eins og venjulega, svo ég stirðnaði upp. Við erum nú aftur farnar að fara út að labba á morgnana og lengjum göngurnar smátt og smátt.
Það rignir eins og hellt úr fötu þessa stundina, en það er ekkert nýtt, það rigndi allan ágúst. Í fyrra rigndi líka allan ágúst, og hélt áfram allan veturinn. Hér þarf maður að sætta sig við vætuna og að vaðstígvélin eru best.
