25.2.10
20.2.10
Svanirnir "okkar"
Það er iðnaðarhverfi hér, ekki mjög langt frá okkur, og þar innámilli verksmiðjanna hefur einhverntíma verið gerður lítill garður, með tjörn, trjám og runnum. Þarna er gangstígur og bekkir, og eftir kanínuspörðunum að dæma, þá búa þarna kanínur, þó við höfum aldrei séð þær. Þetta svæði hefur verið hannað í mikilli bjartsýni, en er allt í niðurníðslu núna, tjörnin hálffull af gróðri og rusli, og ruslafötur virðast ekki hafa verið tæmdar í mörg ár. En við förum oft á þennan stað, og göngum kringum tjörnina með Tess, sem þefar ákaft undir alla runna í kanínuleit. Í vetur hefur álftafjölskylda haldið til á tjörninni, og við tökum þessvegna með okkur smá brauðbita handa þeim - og öndunum. Þessi mynd var tekin í dag um þrjúleitið. Allt frosið.
Kuldaboli
Mikið ætlar þessi vetur að vera langur og leiðinlegur. Það sem mér hefur líkað best við að búa hér er hvað yfirleitt vorar snemma. Venjulega sjást fyrstu vetrargosarnir í janúar, krókusar í febrúar og páskaliljur í mars. En ekki í ár. Það hafa verið svo til linnulaus frost hér síðan í desember. Það kom smá hlé um daginn og við héldum að nú væri þessu lokið, en það er aftur kominn frostakafli, og þegar ég leit á mælinn í morgun var sjö stiga frost.
Þegar við keyptum þessa forláta kápu fyrir Tess í fyrra datt okkur ekki í hug að hún ætti eftir að nota hana svona mikið, en kápan hefur sko komið sér vel í vetur fyrir gamla gigtarskrokkinn.
Þegar við keyptum þessa forláta kápu fyrir Tess í fyrra datt okkur ekki í hug að hún ætti eftir að nota hana svona mikið, en kápan hefur sko komið sér vel í vetur fyrir gamla gigtarskrokkinn.
19.2.10
Hannyrðir
Ég er að sauma mér páskadúk, sem vonandi verður tilbúinn fyrir páska. Ef ekki, kalla ég hann bara sumardúk. Ég keypti áteiknaðan dúk, því ég er farin að sjá svo illa að ég get ekki talið út lengur. Hérna er netverslunin sem ég nota, og sem selur allskonar hannyrðavörur á góðu verði.
http://www.readicut.co.uk
http://www.readicut.co.uk
7.2.10
Leshópurinn
Leshópurinn verður 10 ára í júní. Ég sé mikinn mun á okkur; við vorum yngri og betur á okkur komin árið 2000, en alltaf jafn ung í anda. Frá vinstri: Eileen (fv. skólastjóri í barnaskóla), Eric (fv. sóknarprestur), Janice (fv. félagsráðgjafi), Joy (ný komin í hópinn, fv. bókavörður), John (vann við fiskirannsóknir), Irene (fv barnakennari), Shirley (húsmóðir), Marion (húsmóðir og listakona) og Barbara (fv. barnakennari). Á myndina vantar Barry (fv. sölustjóri), Judith (fv. Avonlady) og Diane (húsmóðir) og svo vantar náttúrulega mig, sem tók myndina.. Nokkrar hafa helst úr lestinni á þessum árum, Freda og Muriel eru látnar, Mary og Maureen fluttu í burtu og Gillian hafði of mörgu að sinna því hún er enn að vinna. Myndin var tekin heima hjá Eileen, og bókin sem var til umfjöllunar var The Girl With the Dragon Tattoo, sem hlaut ekki góða dóma.
3.2.10
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
