29.11.09

Kvef

Hausverkur, nefrennsli, hósti og bara almenn vanlíðan. Enginn hiti eða beinverkir sem betur fer.  Bara andstyggðar kvef. En full ástæða til að sleppa við að elda sunnudagsmat, og senda bóndann út eftir Kínamat.

18.11.09

Krókur

Við keyptum loftljós í IKEA um daginn og í gær ætlaði húsbóndinn að hengja það upp. Þá kom í ljós að það vantar krók í loftið.  Hér eru nefnilega ekki krókar í dósinni  fyrir loftljós eins og tíðkast á Norðurlöndum. Hér hangir bara rafmagnssnúra niður úr loftinu og á hana er settur skermur. Í dag er búið að fara í allar rafmagnsvöruverslanir hér í nágrannasveitunum, en enginn finnst krókurinn. Hann þarf nefnilega að vera sérhannaður til að hengja upp ljósakrónur. Ég er alveg viss um að þeir hjá IKEA vita þetta, og að það er örugglega stór hilla full af svona krókum í ljósadeildinni hjá þeim. Við vorum bara svo heimsk að fatta það ekki. Við sjáum þessvegna fram á aðra IKEA ferð á næstu dögum, sem mér finnst bara í góðu lagi, því þar fæst íslensk síld í krukkum, Kalles kaviar í túbu og kókosbollur.

14.11.09

Ránfugl á grein


Þessi stóri fugl kallast buzzard, músvákur á íslensku (skv. bókinni Fuglar á Íslandi og öðrum eyjum í norður Atlantshafi.) Hann sat spekingslegur á trjágrein og ég sá hann ekki fyrr en William benti mér á hann.

Hvíla þreytta vængi


Svanir og gæsir hvíla sig á skosku túni eftir langflug frá Íslandi.

8.11.09

Sunnudagsbíltúrinn


Það er góður útsýnisstaður í hæðunum fyrir ofan Paisley, og þangað fór ég með myndavélina í bjartviðrinu í dag.


Þessi er tekin með aðdrætti, og sýnir hvar við búum. Fremst á myndinni er Linwood, en uppí hæðunum er Houston. Okkar hús er líklega efst í hægri kantinum á myndinni, bak við tré!

Remembrance Sunday





Hér er haldið uppá Remembrance Day þann 11. nóvember, eða næsta sunnudag á undan, og minnst fallinna hermanna. Tákn þessa dags er rauður valmúi. Við horfðum á áhrifamikil hátíðahöld í Royal Albert Hall í sjónvarpinu í gærkvöldi, og í morgun var bein útending frá stríðsminnisvarðanum í London. Drottningin (tv) og hennar fólk lagði fyrst blómsveiga, svo Gordon Brown og aðrir fyrirmenn og síðan  marseruðu fleiri þúsund fyrrverandi og núverandi hermenn framhjá og lögðu sína sveiga við minnisvarðann. Þetta er allt geysilega hjartnæmt, og sérstaklega kemst ég við að sjá ekkjurnar. Margar þeirra eru mjög ungar.  Hérlendis eru hermenn, sérstaklega fallnir, hafðir í miklum hávegum. Bretar eru gamlir stríðsmenn en átta sig ekki á því að breska heimsveldið er fyrir löngu liðið undir lok, og algjör óþarfi að vera að berjast í annarra manna löndum. Heimstyrjöldin var allt annað mál, því Hitler áformaði að leggja Bretland undir sig, en öll hin stríðin, Suez, Kórea, Falklandseyjar, Kosovo, Írak og Afganistan eru bara vitleysa.

6.11.09

Haustdagar

Hér hefur rignt mikið undanfarið, og skógarstígurinn okkar Tess er bara leðja. Ég nota garðslönguna á vaðstígvélin og loppurnar, og Tess sættir sig vel við að vera þvegin um fæturna með ísköldu vatni þrisvar á dag. "Haustlitirnir" eru horfnir af trjánum, og laufin liggja í rotnandi haugum. Það er búið að seinka klukkunni, svo nú birtir fyrr á morgnana, og dimmir fyrr á kvöldin. Í búðunum er farið að bera á jólavarningi. Æ hvað tíminn líður fljótt.