30.5.10
21.5.10
20.5.10
Gróðrartíð
15.5.10
Megrunarkúr
Aukakílóin hafa háð mér alla ævi. Ég hef alltaf þjáðst af mikilli matarást og matarlyst, og þetta hefur farið úr böndunum, þrátt fyrir að ég eigi enga ósk einlægari en að vera í eðlilegum holdum. Þeir eru óteljandi, kúrarnir sem ég hef prófað. Ég hef fjárfest í öllum fáanlegum bókum, keypt kassettur til að hlusta á heilaþvott, gengið í Línuna, leitað til næringarfræðinga, og reynt alla hugsanlega kúra. Nokkrum sinnum hefur mér tekist að komast í "kjörþyngd," en miklu oftar hef ég bara uppskorið vonbrigði.
Síðan ég byrjaði, 10. febrúar, er ég búin að losna við 13 kíló. Þetta hefur verið rosaleg törn, ég hef ekki borðað neitt sætt eða feitt, engar kartöflur, grjón, pasta eða brauð og eins lítið af öðru eins og ég hef getað. Ég þarf að halda þessu áfram í nokkra mánuði í viðbót, en ég er farin finna mikinn mun. Stærstu fötin eru komin innst í skápinn og flíkur sem ekki hafa verið notaðar í nokkur ár eru farnar að passa á mig. Ég tek þetta í áföngum, og verðlauna mig þegar þeim er náð. Hálsmenið á myndinni (túrkis steinar og silfur) er 10 kílóa verðlaunin frá mér til mín. Ég er nýbúin að uppgötva The Dukan Diet, franskan kúr sem lofar góðu. http://www.dukandiet.co.uk/
Ég keypti bókina og las, og hef líka fylgst með líflegri umræðu á facebook. Ég er afskaplega vongóð um að þessi kúr eigi eftir að hjálpa mér, því höfundur hans, Dr. Dukan, skilur vel hvað það er sem veldur því sumu fólki gengur illa að hemja græðgina.
"Lime green"
8.5.10
Kalt vor
Ég sé að ég hef ekkert bloggað í næstum mánuð. Þetta er búið að vera óvenjulega kalt vor, næturfrost og kaldur norðaustanvindur. Garðvinna hefur verið skrykkjótt, og meira um bóklestur undir teppi. Ég hef verið að lesa bækur eftir Joyce Carol Oates, sem flestar eru þykkir doðrantar. Garðurinn er nú að ná sér eftir veturinn, en margar plöntur eru horfnar. Ég sé eftir þeim, en það er líka gaman að fara í gróðrarstöð og kaupa nýtt.
Það sem helst er fréttnæmt þessa stundina eru kosningar, sem voru haldnar sl fimmtudag. Það virðist ætla að ganga illa að losna við Brown. Hann hangir þarna eins og bolabítur og vill ekki láta af embættinu. Annar merkisatburður á þessu heimili var að við fengum mann frá BT til að tékka á internetinu, þar sem það var komið niður í 500mbs. Til að hann kæmist af símainnstungunni þurfti húsbóndinn að ryðja burtu nokkrum lögum af drasli í húsbóndaherberginu (sem er löngu fullt og flæðir yfir), og honum til ómældrar gleði fann hann uppáhalds skrúfjárnið sitt undir einum bingnum. Það týndist í október, og ég hafði það alltaf á tilfinningunni að hvarf þess væri að einhverju leiti talið mér að kenna, því það sást síðast þegar hann var að hengja upp fyrir mig nýtt loftljós í stofunni.
BT maðurinn reddaði internetinu og nú erum við með 1500-2000 mbs, sem er allt annað líf.

