22.2.09

Vorboðar

Það er bjart og hitamælirinn úti segir 8 stig, en það er kalt. Andstyggðar gjóla, svo ég helst ekki við úti í garði. En vetrargosarnir eru komnir upp og næst verða það páskaliljurnar.

7.2.09

Webcam

Það er eitt og annað á þessari tölvu sem ég hef ekki notað enn, og rétt áðan rakst ég á "Webcam" icon. Þegar ég klikkaði á það birtist þetta ófrýnilega andlit á skjánum. Mér brá mikið. En hér sit ég, í sólstofunni með sólina í andlitið og brosi til ykkar allra.

3.2.09

Vetrarhörkur

Svona var útsýnið út um gluggann hjá mér í ljósaskiptunum í gær. Snjóföl, sem nú er horfið því það er aftur farið að rigna. Það snjóaði meira allt í kringum okkur, og í Englandi var hálfgert neyðarástand, því þeir hafa litla reynslu af snjó. T.d lokaðist einn flugvöllur, ekki vegna þess að þeir hefði ekki snjóruðningstæki, heldur afþví þeir vissu ekki hvar þeir ættu að setja snjóinn.

1.2.09

Fjöruferð í janúar



William horfir til hafs.
Tess kíkir á bárurnar.Ég tók þessa mynd með aðdrætti, og sá ekki fuglinn fyrr en ég skoðaði hana í tölvunni.

Þarna er hann sestur á steininn.

Svartþröstur

Þessi herramaður (dömurnar hafa ekki gulan gogg) ræður ríkjum í garðinum, og rekur alla aðra svartþresti í burtu, nema á vorin að dömum er leyfður aðgangur. Honum þykja epli afskaplega góð - og best í sneiðum sem hann getur laumast með undir runna og borðað í rólegheitum.