27.7.08

Skárri

Tess er farin að éta og við fórum smá göngutúr í kvöld. Hún er miklu hressari, svo lyfin hjálpa. Hún labbar eins og fyllibytta, en lætur það ekki trufla sig. Það þarf að þefa af hverju strái.Posted by Picasa

Tíu og hálft ár

Í rúman áratug höfum við verið lítil og óaðskiljanleg fjölskylda. Við þrjú. Við höfum varla verið án hvers annars í meira en nokkra klukkutíma í einu, og endurfundir hafa alltaf verið gleðilegir. Sú sem allt hefur snúist um, okkar heittelskaða Tess, er nú mikið veik. Hún veiktist aðfaranótt föstudags, var reyndar búin að vera lasin áður, en hresstist. Við fengum dýralækni heim, og hún fór á dýraspítalann í rannsókn. Allt bendir til þess að hún sé komin með krabbamein í lifur. Hún kom aftur heim í gær, og við skiptumst á að sitja hjá henni, dag og nótt. Þetta eru erfiðir tímar.

23.7.08

Nú er sumar . . . o.s.frv


Það er 22 stiga hiti og glaðasólskin í dag.


Eldhúsdyrnar. Við keyptum lítið borð og tvo stóla í vor sem við notum mikið.

Eldri hluti garðsins. Hér þarf að fara að "trimma" aðeins.
Gróðurinn er orðinn of hávaxinn.

"Nýji garðurinn". Hér vantar ekki litina.

Ég sáði blómafræjum kringum gamla trjástofninn.

Lavatera. Uppáhalds plantan okkar.

Þetta kallaðist "hortensía" í gamla daga á Ísafirði, og var stofublóm. Hér heitir þetta "hydrangea" og vex vel utandyra.

15.7.08

Sumarkvef

Hósti, hnerrar og stöðugar snýtur. Hausverkur og kverkaskítur. Ekki bara ég, heldur við bæði. Fórum samt í göngutúr í gær, ég tók nokkrar myndir.

5.7.08

Engin mynd

Ég geng niður með ánni hér svo til daglega. Tess veit ekkert skemmtilegra en að snuðra um í gróðrinum og busla í ánni. Öðrumegin árinnar er flatlendi, hinn bakkinn er brattari og þar vex hávaxinn gróður og sef og þar heldur sig gjarnan myndarlegur gráhegri. Ég hef oft reynt að ná mynd af þessum fugli, en það er ekki einfalt. Gamla myndavélin hafði ekki nógu góðan aðdrátt, en síðan ég fékk þá nýju hef ég gert margar tilraunir til að taka mynd af hegranum, en þegar myndavélin er höfð með i morgungönguna, þá sést enginn fugl. Þegar ég er myndavélarlaus, þá stillir hann sér upp í sefinu, reigir hálsinn og stendur grafkyrr.
Í morgun fórum við Tess snemma, tvær einar. Hegrinn myndi örugglega vera á árbakkanum að veiða sér í morgunmatinn. En það sást enginn fugl. Tess óð út í ána, og fiskur spratt uppúr vatninu fyrir framan hana. Hún var alveg forviða og reyndi að elta hann. Auðvitað gerðist það of hratt fyrir mig og mína myndavél! Ætli það sé ekki skynsamlegast fyrir mig að taka bara myndir af blómum.