24.12.08

Jólin koma


Ætlunin var að taka reglulega góða fjölskyldumynd til að setja á jólakveðjuna. Myndavélin var sett á þrífót og leiðarvísirinn lesinn, og allt sett upp samkvæmt bókinni. Svo var ýtt á takkann og sest í sófann, en árangurinn varð annar en ætlað var. Tess vildi ekki sitja fallega á milli okkar, allir eru hreyfðir, og myndavélin virðist hafa tekið tvær myndir, hverja ofaní aðra. En þrátt fyrir þetta klúður, þá sendum við ykkur öllum bestu jólaóskir og vonum að allir eigi góð og róleg jól.

15.12.08

Jólakötturinn


Jólagjöf fyrir hund þarf annaðhvort að vera eitthvað til að éta - eða eitthvað til að tæta í sundur. Því er til siðs á þessu heimili að prjóna jólakött (stundum rottu) til að gefa Tess í jólagjöf. Þessu verki var lokið á skömmum tíma yfir helgina, því ekki þarf að vanda til. Svo verður kötturinn pakkaður inn í jólapappír, því Tess veit ekkert skemmtilegra en að rífa utanaf pökkum, og éta - eða tæta innihaldið í sundur. .
Neðri myndin er af kettinum í fyrra, tekin á aðfangadagskvöld klukkan 10.

6.12.08

Skammdegi

Það hefur ekki snjóað hér, en það er kalt, sleipt og dagarnir eru stuttir. Helst vildi maður bara leggjast í hýði, og rumska í mars, þegar vetrargosarnir og krókusarnir springa út. En nú eru það blessuð jólin sem nálgast, svo það þarf að sinna ýmsu af því tilefni. Jólastressið sem ég upplifði alltaf heima þekkist sem betur fer ekki hér, enginn bakstur eða hreingerningar. Það hvílir því friður og ró yfir okkur hér, og þakklæti, því Tess er enn hjá okkur.