Föstudagsþrifin
Ég var að ljúka vikulegri tiltekt, á mettíma. Nú er þetta bara rútína, það eru engin moldug loppuför á gólfunum, engar drulluslettur á hurðum og gereftum, engin ský af hundahárum í hornum og undir stólum. Ég sakna kannske ekki þrifanna, en ég sakna hennar, sem kom inn blaut og moldug, dillaði rófunni og hristi sig duglega, og skipti um feld tvisvar á ári.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli