12.8.09
6.8.09
Úr daglega lífinu
Húsbóndinn er safnari og fleygir helst engu. Það er sama hvort um er að ræða tóma pappakassa eða ryðgaðar mutteringar; timbur eða múrsteina - eða eldgamla skó. Það er allt geymt. Þetta er viðkvæmt mál - ég er löngu hætt að spyrja til hvers eigi að nota þetta drasl. Það gladdi mig þessvega mikið þegar hann nefndi af fyrra bragði að fara með hlass í gámastöðina. Hlassið var reyndar tilbúið, heilmikill haugur rétt innan við bílskúrsdyrnar, og búinn að vera þar lengi. Þar á meðal voru tveir ónýtir tölvuprentarar. Hann byrjaði á að hirða af þeim allar snúrur og kapla (aðdrei að vita!) 20-30 ára gamlar tengingar, geysi nytsamt nú til dags, þegar allt er USB eða þráðlaust! Þegar ég svo skellti prentaranum inní bílinn kom í ljós að hann var enn með blek, og það lak. Mega paník, húsbóndinn hoppandi (ekki hoppandi reiður - heldur hoppandi upp og niður) og mér auðvitað kennt um. Hann greip prentarann og makaði sjálfan sig út - og bílhurðina. Sem betur fer hélt ég ró minni, og náði í vogt vatn í fötu og tusku, og tókst að þrífa blekið úr bílsætinu. Og svo var farið í Gámu.
2.8.09
1.8.09
Tómt batterí
Mér finnst gott að sofna útfrá einhverskonar rausi, helst sagna eða ljóðalestri, og á lítið tæki sem bæði er útvarp og MP3 spilari. Ég sæki mér podcasts á netið til að hlusta á ef ekkert er í útvarpinu sem hentar. Í gær rakst ég á audiobooks.net, netútvarp með upplestri, en það er bara hægt að hlusta á það gegnum tölvu. Ekkert mál, fartölvan tekin með í rúmið og stillt uppá náttborðinu. Það var ljóðalestur. Ekkert er betra. Lág, hljómfögur rödd, taktur, meiningarlaus orð. Ég sofnaði samstundis. Þegar ég vaknaði var tölvan dauð. Batteríið galtómt. Ég er að hlaða núna.
