28.4.06
Alaskalúpína
Við söfnuðum nokkrum Alaskalúpínufræjum þegar við vorum heima á Íslandi í fyrra. Við vitum að það er engri þjóð greiði gerður með því að flytja inn útlenskar plöntur, sem kannske sá sér út um allt og útrýma náttúrulegum gróðri. Kannske varðar það við lög. En okkur finnst Alaskalúpína afskaplega falleg jurt og hún kann vel við sig í Skotlandi. Þessi, ásamt einum tíu öðrum, kom upp af fræjunum sem við sáðum. Þær eru nú óðum að lifna við eftir veturinn. Við vonum að þær dafni og breiði úr sér og að þær þeki Skotland bláum blómum.
27.4.06
Loff malakoff og Ella gamla lifir enn ...

Árleg læknisskoðun og myndataka fóru fram 3. apríl sl., og síðan hef ég verið á nálum að bíða eftir niðurstöðum vegna röntgenmyndanna. Þessa löngu bið kenndi starfsfólk spítalans tölvum (alltaf gott að geta kennt þeim um), en ég held að ég hafi hreinlega týnst í kerfinu. Í dag fékk ég svo loksins að vita að allt virðist í fínu lagi. Halelúja fyrir því.
25.4.06
Veðmálabrask
William er farinn að koma reglulega við hjá veðmangara til að veðja á fótboltaleiki. Hann segist hafa gert mikið af þessu þegar hann var unglingur, og hafi þá alltaf getað unnið sér inn fyrir nammi og bíóferðum. Hann tók sér svo hálfrar aldar frí frá veðmálum, en nú er þetta aðal áhugamálið - eins og stendur. Það er sóttur seðill, og svo taka við geysilega flóknir útrekningar og formúlugerð. Hann er nefnilega að vinna að hinu alfullkomna kerfi, sem á að virka þannig að hann tapi aldrei. Svo er farið og lagt undir, og síðan er fylgst með fótboltaúrslitum af athygli. Á mánudögum fer hann svo og sækir ágóðann. Hingað til hefur afraksturinn numið einum þremur pundum, enda er William maður gætinn í fjármálum og leggur ekki mikið undir í hvert sinn. En það má hann eiga að enn hefur hann engu tapað.
21.4.06
Mince and Tatties
Uppáhaldsréttur húsbóndans á heimilinu er “mince and tatties” – eða nautahakk og soðnar kartöflur. Ég elda þetta á einfaldan hátt, steiki hakkið og laukinn, set slatta af gulrótum útí, OXO tening, skvettu af Worchester sósu, og þykki svo aðeins með Bisto, ómissandi sósugerðarefni. Þetta þykir honum ljúffengur réttur, svo ég hef hann oft á borðum, því nýungar í matargerð eru ekki vinsælar. Móðir hans sáluga útbjó þennan rétt svolítið öðruvísi; mér er sagt að hún hafi ekki steikt hakkið, heldur soðið það vel og lengi daginn áður en það var á borðum, og látið standa yfir nótt. Líklega til að geta veitt mestu fituna ofanaf.
Vinkona mín ein, sem er skosk í húð og hár, eldar svo til allan mat vikunnar á laugardögum. Hún býr til stóran pott af grænmetissúpu, sem endist í marga daga. Svo steikir hún risaskammt af hakki, og geymir í ísskápnum. Það er notað í spaghetti á mánudögum, sem mince og tatties á miðvikudögum og í pastarétt með tómatsósu á fimmtudögum. Á þriðjudögum gefur hún familíunni tilbúna örbylgjurétti, á föstudögum er eiginmaðurinn sendur eftir fish and chips og á sunnudögum steikir hún kjúkling í ofni. Alltaf sami matseðillinn. Þeir vilja þetta, segir hún.
20.4.06
Gaman hjá Ellu
17.4.06
Påskemorgen slukker sorgen
Hver var það sem alltaf hafði þetta yfir á páskadagsmorgun? Var það mamma, eða pabbi? Hvaðan sem ég hef þetta, þá kemur þessi setning alltaf upp í hugann á páskadag. Eftir smá rannsókn er ég búin að komast að því að þetta er upphaf á dönskum eða norskum páskasálmi.
Myndin er tekin í morgunbirtu á páskadag.
10.4.06
Ný tölva pöntuð í dag

Ég var að panta nýja tölvu frá Dell. Þetta verður fjórða tölvan sem ég kaupi um ævina. Fyrst var það gamli Victor, 1992, svart hvít með frumútgáfu af Windows. Næst var það Tulip, 1994, með Windows 95. Hún fylgdi mér hingað. Næst var svo Dell Dimension, keypt 1999. William erfði hana þegar ég fékk fartölvuna, árið 2001. Nýja tölvan er líka Dimension, lítil og sæt. Nú bíð ég spennt eftir sendingunni.
8.4.06
Páskaliljur
Frumskógur
7.4.06
Sjónvarpsgláp

Við horfum alltof mikið á sjónvarp. Einhvernveginn hefur skapast sú venja hér á heimilinu að borða kvöldmat kl. 6, og flytja sig svo inn í stofu með kaffibollann og eyða því sem eftir lifir kvölds fyrir framan sjónvarpið. Við horfum helst á fréttaþætti, documentaries og spurningaþætti, en stundum annað efni, eins og Desparate Housewives og The Apprentice. En mörg eru kvöldin sem þetta fer allt framhjá okkur, því við sitjum hvort í sínum stól og steinsofum.
6.4.06
Fluglaflensa
Fuglaflensan er komin til Skotlands. Agalegt. Ætli maður verði ekki að hætta að fóðra fugla í garðinum, og trúlega verður kjúklingur ekki á matseðlinum í bráð. Og hvað með egg? Líklega er best að bíða og sjá hvað heilbrigðisyfirvöldin ráðleggja fólki að gera.








