Garðvinna
Loksins, eftir margra daga rok og rigningu, stytti upp. Ég tók daginn snemma að venju, klukkan 8 var ég búin að þvo eina vél, hengja út á snúru og byrjuð að reita illgresi. Fyrst á dagskrá vað að hreinsa beðin sem ég er vön að sá narsturssium fræjum í, og stinga upp gamalt beð og gróðursetja þar tvær nokkuð stórar lúpínur sem voru í pottum í fyrra. Um hádegið far tekið matarhlé, og mér til ergelsis var mér alveg ómögulegt að koma mér í gang aftur. Ég var uppgefin. Agalegt að vera orðin gömul. Eftir góða hvíld tókst mér að dragnast út og gróðursetja nokkrar plöntur sem ekki máttu bíða, og taka inn þvottinn.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli