Klukkuhringl
Ég vaknaði klukkan sjö, en klukkan var í rauninni átta, því í nótt var klukkunni hér flýtt. Ég er alltaf rugluð í fleiri daga þegar þetta klukkuhringl á sér stað. Er þetta til að hafa birtu lengur á kvöldin, eða fyrr á morgnana? Ef gamla klukkan er sex að morgni, en sú nýja sjö, þá er enn ekki alveg bjart. Ef gamla klukkan er sex að kvöldi, en sú nýja sjö, þá er enn bjart. Aha. Til að hafa lengur bjart á kvöldin! En við Tess vöknum á sama tíma og við erum svangar á sama tíma og áður. Það tekur marga daga fyrir okkur að komast í takt við tímann.
Nú þarf William að breyta öllu: Klukkum, þjófabjöllu, miðstöð, græjum, tölvum, símum. Þvílíkt rugl og vitleysa.
