31.7.06
28.7.06
Mér er heitt!
27.7.06
Sól, sól og meiri sól.
Aldrei hefði ég trúað því að ég ætti eftir að verða leið á blessuðu sólskininu. Það hefur verið sól og blíða hér allan júlí, og hluta af júní. Hitinn 25 stig eða meira í skugga um miðjan daginn. Vandamálið er að íslendingurinn í mér er vanur því að þegar sólin skín er málið að láta allt annað bíða og njóta góða veðursins. Ekki eyða tímanum í húsverk eða búðaráp eða neitt sem hægt er að gera þegar veðrið er grátt. Ég hef því eytt megninu af júlímánuði útflött í sólstól úti í garði, reyndar í skugganum, því ekki vill maður brenna sig til óbóta. Ég les, og dotta eða sit með myndavélina tilbúna á þrífæti til að taka myndir af fuglunum. Nú er samviskan farin að láta á sér kræla, þvílík leti. Vonandi fer bráðum að rigna .
24.7.06
17.7.06
Froskur
Þessi litli froskur sat á stéttini þegar við komum heim úr síðdegisgöngunni í dag. Hann var í sólbaði, teygði úr skönkunum og lygndi augunum, og stillti sér upp fyrir myndatöku. Myndavélin var sótt, en um leið og hann sá hana stökk hann í burtu. Ég hef sannreynt að silfurlit myndavél er ekki góð til að taka dýralífsmyndir. Það eru allar villtar skepnur hræddar við hana.
12.7.06
Stóra tréð
Þegar við völdum húsið okkar var ég sérstaklega hrifin af geysi stóru og fallegu tré sem stendur á lóðinni. Þetta er "horse chestnut" - líklega nokkurra alda gamalt, og á vorin þegar það er í fullum skrúða er það þakið hvítum blómum. Seinna koma svo hneturnar, sem reyndar eru ekki ætar nema fyrir íkornana, sem safna þeim og fela til vetrarforða. 
Svona lítur tréð út núna, hálfnakið.
10.7.06
7.7.06
Glencoe
Það var farið í ferðalag í dag. Vaknað snemma og tekið til nesti, myndavél og vegakort og stefnan tekin á Glencoe, sem er frægur bardagastaður í Skotlandssögunni, en líka orðlagður fyrir náttúrufegurð. William er ekki morgunhani, og er yfirleitt ekki í sambandi fyrr en um hádegi, enda kom í ljós á áfangastað að hann hafði tekið tveggjakílóa sekk af fuglafóðri með, því pokinn hafði verið á eldhúsborðinu við hliðina á nestistöskunni. Ferðin tók rúman klukkutíma, við vorum komin á leiðarenda klukkan eitt, og fundum yndislegan stað á árbakka til að borða nestið. Svo skoðuðum við okkur um, fengum okkur kaffi í litlu veitingahúsi og héldum svo af stað heim. Að venju villtumst við, því William hefur "tunnel vision" og sér ekki vegaskilti. Ég sat hálfsofandi með kortið á hnjánum, og hafði orð á því að það væri skrítið að skiltin nefndu ekki Glasgow, heldur Callander og Perth og svo fórum við í gegnum hin og þessi þorp og landslag sem ég mundi alls ekki eftir á leiðinni uppeftir. Þegar við áttuðum okkur vorum við komin langleiðina til Perth. Ferðin heim tók því tvisvar sinnum lengri tíma en til stóð. En við erum komin heim, heilu og höldnu og útþránni svalað í bili.
6.7.06
2.7.06
Sumardagar
Veðrið hefur leikið við okkur undanfarið, og ég hef notið blíðunnar í garðinum. Aðal viðfangsefnið þessa dagana er að taka myndir af dýra- og fuglalífinu, sem er fjölbreytt. Smáfuglarnir koma með ungahópa til að kenna þeim að borða fóðrið sem við setjum út, og ýmis önnur dýr eru daglegir gestir. Rebbi kemur oft í heimsókn, sömuleiðis íkornar, broddgeltir og skógarmýs. 








