29.10.11

Halloween

er á mánudaginn. Hér myndast menn við að halda uppá þetta, grasker eru sumsstaðar sýnileg og sumir hengja eitthvað draugadrasl upp hjá sér. Samkvæmt hefðinni mega börn fara í grímubúninga og ganga á milli húsa og sníkja sælgæti, en það er með þetta eins og annað hérlendis að hátíðabrigði eru ekki í hávegum  höfð. Skotar eru svo kalvínískir í sér að það má ekki gera sér neinskonar dagamun. Þessvega koma hér aldrei börn í sælgætisleit. Við kaupum alltaf poka af Maltesers og Milky Way eða Mars, og ég set í skál, tilbúin að bjóða, en við höfum bara tvisvar fengið gesti þessi 14 ár sem við höfum verið hér.
Það fer samt ekki á milli mála að jólin eru framundan, kaupmenn sjá um að minna mann á það. Í september fóru jólakort og jólamatur að sjást í búðum, og nú eru bæjarfélög farin að kveikja á jólaskreytingum.  Það er alveg á hreinu að ég verð orðin  dauðleið á þessu öllu löngu fyrir jól.
Á þessu heimili verður jólahald í lágmarki í ár. Ég hef þráast við að gera eitt og annað til hátíðabrigða gegnum árin, setja upp skraut og gera hreint, jafnvel baka, en þetta fer allt afskaplega í taugarnar á eiginmanninum, sem er jú Skoti, og á hans æskuheimili var ekki haldið uppá jól. Það gladdi mig hvað Tess hafði gaman af jólastandinu í mér. Hún varð geysispennt þegar litla jólatréð birtist í stofunni, og ég pakkaði hundakex í jólapappír fyrir hana og setti undir tréð. Þetta mundi hún milli ára, og gáði undir tréð á hverju kvöldi. Pakkar voru hennar uppáhald, hún naut þess að tæta utanaf þeim. Nú er hún ekki lengur, svo það verður dapurlegt í kotinu.

Klukkuhringl, enn og aftur.

Í nótt á að seinka klukkunni, vetrartíminn hér er sami tími og er heima. Það þýðir að í fyrramálið þegar ég vakna, líklega klukkan 6, þá verður klukkan bara 5.  Ég ætla samt á fætur. Ég ætla að laga mér kaffisopa og setjast í stólinn minn og breiða teppi yfir hnén, og lesa. Ég á peninga inni hjá Amazon, svo ég get sótt mér einhverja spennandi rafbók, eða kannske væri skynsamlegra að klára að lesa þessar þrjár eða fjórar hálflesnu sem eru á tölvunni.

26.10.11

Þorpin í nágrenninu.

Við búum í Houston, sem er gamalt sveitaþorp með þremur götum, og þremur pöbbum. Reyndar búum við ekki í þorpinu sjálfu, heldur í nýlegra hverfi sem byggt var í landareign Craigends. Þar var hertogasetur í margar aldir, en þegar ættin dó út var kastalinn jafnaður við jörðu og landið selt byggingarfyrirtækjum.
Næsta þorp fyrir vestan okkur heitir Bridge of Weir, og enn vestar er svo Kilmacolm. Þar þykir fínt að búa. Það sama á ekki við um Linwood og Johnstone, sem eru austan við okkur. Þeir bæir voru upphaflega byggðir til að taka við íbúum fátækrahverfa Glasgow þegar slömmin voru hreinsuð. Liðið var flutt í blokkir "úti í sveit." Linwood er ömurlegur staður, allar byggingar eru gráar og flestar eru "félagslegar." Maður keyrir framhjá Linwood, en helst ekki í gegn.
Johnstone er eldri, og þar er "High Street" (sjá mynd). með verslunum, en nú eru þær flestar annaðhvort lokaðar eða selja notaða muni og föt á vegum góðgerðastofnana. Við eigum stundum erindi til Johnstone. Þar er bankaútibú, og búð þar sem við kaupum fuglafóður. Þar er líka nokkuð sæmilegt bókasafn (þó fúkkalyktin sé yfirþyrmandi).
Íbúar Linwood og Johnstone eru afskaplega lítið fyrir augað. Þeir eru allir upp til hópa á bótum, atvinnuleysis eða örorku. Á horninu á Bingóhöllinni (sem virðist vera með starfsemi frá morgni til kvölds) stendur venjulega smá hópur af kerlingum á aldur við mig, og reykir. Ungir menn, sem auðvitað eru hvorki í námi eða atvinnu, slangra um í hópum. Þeir eru snoðklipptir, klæddir joggingöllum, helst hvítum, og eru með eyrnarlokk í öðru eyra - eða báðum. Þeir eru rindilslegir, með litla hausa og pínulítil andlit.
Unglingsstúlkur eru yfirleitt lágvaxnar, feitar, með stutta digra leggi og í alltof þröngum fötum, stundum með beran belg og hring í naflanum. Hárið er tjásulegt og litað, oft kolsvart með rauðum eða bleikum flygsum. Þær ýta gjarnan nýtískulegri barnakerru á undan sér, og hálfnakið afkvæmið í kerrunni oftar en ekki úðandi í sig söltum kartöfluflögum.
Börn á skólaladri eru pervisin og dökkklædd, því af einhverjum furðulegum ástæðum eru skólabúningar á þessu svæði svartir. Telpurnar eru í agnarlitlum mini pilsum, með ber læri og í sportsokkum, en drengirnir eru með skyrturnar flagsandi uppúr buxunum. Þetta ungviði er sérlega áberandi í hádeginu, þegar matarhlé er í skólum, og þá standandi utan við sjoppur étandi franskar kartöflur.
Karlar standa á pöbbhorninu, ef þeir geta staðið.
Eftir að hafa sinnt erindum í Johnstone þakkar maður sínum sæla fyrir að vera við góða heilsu, geta gengið upprétt og náð andanum, því hvergi sér maður annað eins samansafn af höltu, skökku og vansköpuðu fólki. Meðalaldur á Glasgow svæðinu er sá lægsti í Bretlandi, ekki nema rúm 70 ár, og ástæðan er slæmt matarræði, lélegt húsnæði, reykingar og drykkja. Gigtarsjúkdómar, beinþynning og sjúkdómar í öndunarfærum eru landlægir. Stundum finnst mér eins og það búi tvær þjóðir í Skotlandi. Gamla, stolta menningarþjóðin, sem á heiðurinn af allskonar uppfindingum, frægum ritverkum og tónlist, og svo hitt liðið, sem hefur bara áhuga á lágmenningu og fótbolta.

24.10.11

Þetta er sko ekki eðlilegt.

Síðan ég kom frá Spáni hef ég verið svo afslöppuð að ég hef sofið eins og rotaður selur á hverri nóttu. Ég hef alltaf verið kvöldsvæf, en verið uppi fyrir allar aldir á morgnana. Lengst af ævinnar hef ég átt í vandræðum með að sofa nógu lengi, ég vakna gjarnan um 5 leitið, eða jafnvel fyrr, og á erfitt með að festa almennilega svefn eftir það. Ég hef aldrei þurft meira en sex til sjö tíma svefn. Síðastliðna viku hef ég sofið í átta tíma á hverri nóttu, og nú var ég að vakna eftir NÍU tíma svefn. Þessi Spánarferð hefur greinilega gert mér gott.

21.10.11

Spánarmyndir



Vikan á Spáni var einstaklega vel heppnuð. Sólin skein, hótelið var gott, og maturinn var fyrsta flokks. Það besta var að Halli og Sísí komu frá Torrevieja, og voru í tvo daga með okkur í Calpe.
Verst hvað tíminn leið fljótt. Nú erum við komin aftur heim í rigninguna, en ég er endurnærð og full af D-vítamíni, svo nú tekst ég á við veturinn.

10.10.11

Allt tilbúið

Búið að pakka niður, hlaða allar græjur, grafa upp sólhattinn (sem hefur ekki verið notaður lengi) og sandalana. Nú skal halda til sólarlanda. Hitinn á áfangastað er í kringum 30 stig, svo það verður "notalegt."
Brottför frá Glasgow er kl. 6:25 í fyrramálið, og við þurfum að tékka inn tveim tímum áður.  Það þýðir að við þurfum að fara á fætur um 3 leitið í  nótt!
Best að slökkva á tölvunni og koma sér undir sæng, þó mig gruni nú að ferðahugurinn eigi eftir að valda svefnleysi.

6.10.11

Kuldahrollur

Það er alltíeinu komið hrímkalt haust, og í morgun hefur gengið á með hvössum hagléljum. Við förum til Spánar á þriðjudaginn, og ég er ekki viss um að mig langi nokkuð að koma til baka. Ég kvíði fyrir vetrinum.

4.10.11

Rebbarnir



Litlu rebbarnir sem léku sér í garðinum í voru eru nú orðnir stórir. Ég sé þá sjaldnar, því þeir koma ekki í heimsókn fyrr en farið er að dimma, og nú dimmir snemma á kvöldin.   Matarbitinn sem ég set út á hverju kvöldi fyrir þá er alltaf horfinn, svo ég veit að þeir eru á ferli.  
Ég tók myndirnar út um eldhúsgluggann í lok júlí. Það var sól og þegar ég kom niður snemma morguns sá ég þá vera að sóla sig í garðinum. Ég flýtti mér og sótti myndavélina, sem auðvitað var batteríislaus. Varabatteríið var þó hlaðið, og þeir voru þarna enn þegar ég var tilbúin. Ég náði fjörutíu myndum af þeim - og þær eru allar góðar!