20.6.11

Garðurinn í júní 2011


Sólarglæta í dag, eftir marga rigningardaga, svo ég púlaði í garðinum í fimm tíma.


  
Það vantar ekki gróðurinn.



"Steinhæðin" mín hefur er horfin í burknaskóg. Þeir vaxa villtir og sá sér allsstaðar.



  Allt er grænt, en minna um blóm. Það hefur verið svo blautt og sólarlaust.


Þegar e-coli skrekkurinn reið yfir ákvað ég að hætta að kaupa gúrkur og salat og þh. og keypti pakka af fræi í staðinn. Það verður greinilega einhver smá bið á því að ég geti farið að gæða mér á heimaræktuðu grænmeti.. 



Góður gestur í garðinum. Hér á bæ er engum mat fleygt. Grænmetisafgangar fara í þar til gerða tunnu, sem vonandi verður einhverntíman að gróðurmold. Annað fer í rebba. (Tess sá alltaf um þetta, en nú nýtur hennar ekki lengur við.)



Rebbarnir sem koma í mat til okkar eru yrðlingar síðan í vor, og það er gaman að horfa á þá veltast um og hnoðast eins og kettlingar, og elta hvorn annan á harðaspretti.  Tófumömmu hef ég ekki séð, en hún fylgist örugglega með þeim.



 Þeir eru báðir með "ljós" á rófunni.

4.6.11

Afhverju erum við ekki með hjól?

Eftir nokkuð strembinn dag í garðinum hófst umræða um hönnun okkar mannfólksins, og hvað betur hefði mátt fara. Ef William hefði hannað okkur værum við með hjól, og tvö hjörtu, því það væri skynsamlegt að hafa eitt til vara.  Ef ég hefði átt þátt í hönnuninni hefði ég bætt við "reboot" takka, og eins hefði ég haft takka til að auka brennslu eftir góða máltíð.

1.6.11

Af veðurfari

Hér hefur rignt svo til látlaust síðan við komum heim, og það er ekki bara rigning, heldur líka rok og kuldi. Ég hef sætt lagi við að komast í garðinn, svona á milli skúra. Þetta á við um Skotland, en í Englandi hefur verið þurrasta og heitasta vor í manna minnum. Svona er þessu nú misskipt. Nú er spáð skárra veðri hér á morgun og fram yfir helgi, svo kannske ég geti vígt stuttbuxurnar sem ég hafði ekki kjark til að láta sjá mig í í Frakklandi.
Næstu helgi verðum við með hund í fóstri, Rory. Hann var mikill vinur Tess, og því okkar líka. Eigendur hans, Eleanor og Craig, ætla að heimsækja son sinn í Newcastle.