24.9.11

Næsti áfangastaður

Við erum búin að panta viku dvöl á Spáni í október. Þetta er nú meira flakkið á okkur! Þetta verður fjórða ferðalagið á árinu. (London, Frakkland, Ísland, Spánn). Við erum farin að hlakka til, og ég er búin að kaupa mér slatta af nýjum fötum. Vinkonur mínar Eleanor og Janet, sem koma alltaf í tesopa á laugardagsmorgnum, fengu smá tískusýningu áðan!  Allt í sömu sólarlandalitunum: blágrænt og hvítt.

13.9.11

Rok og meira rok

Í gær gekk fellibylurinn Katja yfir, þ.e.a.s. leifar af honum. Það var ansi hvasst, og geysi blautt. Í síðustu viku eyddum við tveimur heilum dögum í að þrífa allar stéttar og bílastæði, og hreinsa og snyrta garðinn. Í morgun var eins og ekkert hefði verið gert, allt þakið laufi, kvistum og drasli. Við erum í stöðugri baráttu við náttúruöflin, og garðurinn hefur aldrei verið óhrjálegri. Sumarið hefur verið afleitt, og þó við gerum okkar besta þegar veður leifir, þá er þetta fljótt að fara í sama horfið aftur. Spurningin er, hvað endumst við lengi, við erum jú farin að reskjast. 

1.9.11

Hvað kom fyrir?

Afhverju hætti ég að blogga?  Skýring er einfaldlega sú að síðan við komum úr einstaklega velheppnuðu fríi til Íslands höfum við ekkert gert eða farið.  Sumarið hefur verið leiðinlegt, kalt og rakt, og tilhugsunin um að það komi bráðum haust og svo vetur er ill bærileg. Kannske tekst mér að rífa mig uppúr þessari lægð, og byrja að blogga aftur. Vonandi.