27.4.12

Vorverkin

Ég ætlaði mér að vera mikil garðkona í ár og gera garðinn að litskrúðugum unaðsreit. Mars var óvenju hlýr, og ég gat byrjað að hreinsa til, með svo kom veturinn aftur með snjó og frosti og ísköld norð-austanáttin eyðilagði nýgræðinginn. Ég fékk vírus í innra eyra, og var eins og höfuðsóttar rolla í hálfan mánuð. Það var fyrst í dag að ég gat farið út og ég tók góða törn. Aðallega við illgresishreinsun, en setti líka niður fræ og klippti tré. Fimm plöntur sem ég pantaði komu í pósti alla leið frá Guernsey, og þær fóru í litla potta. Þær eru agnarlitlar, voru miklu myndarlegri í auglýsingunni, svo ég get ekki plantað þeim út enn.
Kannske kemst ég aftur í garðinn á morgun.

8.3.12

Af veðráttu

Mars er samur við sig, það skiptast á haglél. skúrir og þess á milli sólskin. Í febrúar var hlýindakafli, og ég byrjaði  að atast í garðinum. Ég hreinsaði dauðar plöntur frá því í fyrra og réðast á illgresið sem virðist vaxa hér allt árið. Bjartsýnin var svo mikil að ég keypti  bakka af vorblómum og gróðursetti sunnan við hús. Nú eru greyin svipur hjá sjón, veðurbarin og tætt, og ég sé ekki betur en helv. sniglarnir séu komnir á kreik líka, óvenju snemma í ár.
Ég keypti mér Gardeners´ World  í gær, tímarit sem ég les með áfergju, og sem tendrar upp hjá mér óhemju áhuga á garðyrkju, því það eru svo flottar myndir í því,  og margar hugmyndir, en svo verður mér litið  út um gluggann, og ég sé mosavaxna flötina, úr sér vaxna runna, og beð full af  mislukkuðum plöntum, sem aldrei litu út neitt í átt við myndirnar í blaðinu. Sumar hafa aldrei blómstrað, aðrar hafa vaxið upp í tveggja metra hæð og dottið um koll, sumar hafa varla komist upp úr jörðinni áður en sniglarnir átu þær, og enn aðrar eru bara ein risa flækja. Þar við bætist illgresið, sem þrífst betur en nokkrar plöntur, og burknarnir. Þeir sá sér um allt og dafna vel og verða geysistórir og yfirþyrmandi, og þar sem þeir koma ókeypis, er húsbóndanum afskaplega umhugað um að halda í þá. Stundum sting ég þá upp í laumi og laumast til að fleygja þeim út í skógi, því annars gróðursetur hann þá  einhversstaðar annars staðar í garðinum!
Mér er ljóst að  ég á MIKLA vinnu fyrir höndum.  Veðrið VERÐUR bara að fara að skána.

11.2.12

Það er farið að birta

Nú er versta skammdegið að baki og laukar farir að gægjast uppúr moldinni. Kannske get ég nú tekið mig saman í andlitinu og farið að GERA eitthvað. Ég er nefnilega orðin alveg geysilega löt.