27.8.10

Góður dagur




Sólin skein glatt í dag, og við byrjuðum daginn hjá dýralækninum. Tess losnaði við saumana, er vel gróin og hin hressasta. Það er enn blómlegt í garðinum, þó farið sé að bóla aðeins á haustlitum, og þessi glæsilegu fiðrildi voru að gæða sér á hunangi.

18.8.10

Næturvakt

Tess fékk að fara heim í gær, því aðgerðin gekk vel, hún vaknaði  vel, og át það sem henni var gefið. Nú er bara að passa að hún láti sárið í friði. 
Ég er á vakt núna, tók við af William kl.. 03:30. 

16.8.10

Sjokk - en vonarneisti líka

Æxlið ljóta á kviðnum á Tess hefur versnað og er farið að lykta illa. Dýralæknirinn ætlar að fjarlægja það á morgun, því hún segir að það sé komið í það drep og fúkkalyf geri ekki gagn lengur.  Við erum afskaplega kvíðin, en ég er samt fegin að það skuli vera hægt að gera eitthvað. 

15.8.10

Fullt starf


Sárið á maganum á Tess vill ekki gróa.  Við gerum það sem í okkar valdi stendur til að vernda það fyrir henni, því hún lætur það ekki í friði. Plástrar og aðrar umbúðir eru samstundis tætt í burtu, því líklega klæjar hana undan þeim.  Á föstudaginn fór að blæða úr sárinu í hvert sinn sem hún byrjaði að sleikja æxlið. Það er eins og svampur. Okkur tókst að stemma blæðinguna, en síðan höfum við verið á vöktum, til að passa að hún snerti þetta ekki. Næturnar eru verstar, því við þurfum jú að sofa. William vakir til 3, en ég fer á fætur klukkan 5. Tess sefur í síðum náttkjól af mér.  

9.8.10

Garðurinn í gær.

Ég hef eytt mestum tíma í  þann hluta garðsins sem snýr að götunni. Auðvitað vill maður að nágrannarnir sjái - og vonandi dáist að því hvað þetta er allt blómlegt. 


Þetta er bak við hús. Í gær eyddum við deginum í að klippa niður ofvaxna plöntu sem var búin að taka yfir það sem einu sinni átti að vera steinhæð. Þarna úir og grúir af burknum og hálf kæfðum plöntum af ýmsu tagi, og greinilega hefur þetta verið vanrækt og er til skammar. 

8.8.10

Sjálfsmynd: Gömul og þreytt kona


Klukkan sjö að morgni,  nýkomin inn með Tess, ómáluð, ekki búin að sofa nóg. Ekki búin að fá mér kaffisopann. En afskaplega er maður nú farinn að láta á sjá.

3.8.10

Að eiga gamlan hund


Tess með "júgurhaldara" sem ég heklaði handa henni - til að hún geti síður náð af sér plástrinum.


Hún Tess okkar er komin vel á þrettánda ár og eins og önnur gamalmenni eru ýmsir kvillar farnir að hrjá hana. Hún er orðin slæm til gangs, og hún er með æxli, sem þessa stundina er aumt og bólgið, svo hún var sett á fúkkalyf og stera.
Það hefur fylgt sumrinu í nokkur ár þurfa að gefa Tess lyf. Í mörg ár fékk hún útbrot um allan skrokk á sumrin, klæjaði rosalega og var með rauða, hárlausa bletti. Því fylgdu allskonar lyfjagjafir, böð með eitursjampói sem þurfti að sápa hana með, og láta vera á henni í korter áður en hún var skoluð - og passa vel að hún sleikti það ekki.  Ég tók það ráð að sápa hana áður en ég gaf henni matinn sinn, svo hun var upptekin við éta meðan sápan var á henni. Sem betur fer hefur hún verið í lagi síðan hún var gelt, svo þessi útbrot hafa verið hormónatengd, þó dýralæknirinn hafi ekki áttað sig á því á sínum tíma.
Henni hefur alltaf tekist á fá heljar magakveisu á hverju sumri, e-coli eða salmonellu, enda eru hundar með nefið niðri í öllu.  Fyrir þremur árum fannst svo æxli í einu júgrinu, fyrir tveimur árum gekkst hún undir heilmikla aðgerð þegar hún fékk sýkingu í legið, í fyrra fékk hún ígerð í æxlið í júgrinu - og það sama er uppi á teningnum í ár. 
Tess tekur þessu öllu með einstakri ró,  borðar sinn mat með góðri lyst (og allar pillurnar líka) og er útsjónarsöm við að losa sig við allar umbúðir sem ég reyni að setja á sárið á kviðnum á henni.  
Tilvera okkar snýst um Tess. Ég fer á fætur fyrir allar aldir og gef henni að borða, bý um sárið og fer með hana út. Það fyrsta sem William segir þegar hann vaknar á morgnana er: "How is she?" og það sem eftir er dagsins fer í að lyfta henni upp í sófann, opna fyrir hana bakdyrnar þegar hún vill út - eða inn, fylgjast með því að hún rífi ekki af sér umbúðirnar, fara með hana í bílnum á einhvern af uppáhaldsstöðunum hennar, svo hún geti þefað og gert sín stykki. Það þarf að lyfta henni inn og út úr bílnum, og á kvöldin ber William hana upp stigann, því bælið hennar er við endann á okkar rúmi. 
Það er fullt starf fyrir okkur þessa dagana að fylgjast með henni og sinna henni, og ferðalög koma alls ekki til greina, því ekki er hægt að láta hana á hundahótel. 
Flestir mydu spyrja: Hvað er að ykkur?  Er eðlilegt að leggja svona mikið á sig fyrir hund? Við myndum svara því játandi. Það er engin spurning. Tess er alveg þess virði.