25.3.07

Gróðurhús

Nú er kominn mikill vorhugur í mig, og í gær settum við upp "gróðurhús." Eiginlega er þetta nú bara plasttjald, en ég get staðið upprétt í því, og nota það fyrir græðlinga. Ég er líka búin að sá allskonar fræjum í bakka. Svo þegar vorið verður komið fyrir alvöru og allar þessar plöntur komnar út í garð, ætla ég að reyna að rækta tómata í gróðurhúsinu. Gaman, gaman.
Vonandi fjúka öll herlegheitin ekki út í buskann í næsta vestanroki.

23.3.07

Stressleysi

Við hjónakornin keyptum okkur forláta Stressless stóla á dögunum, til að sitja í fyrir framan nýja sjónvarpið. Þessir stólar eru einstaklega vel fallnir til að fá sér blund í, svo það má yfirleitt sjá okkur tvö steinsofandi í stólunum okkar, meðan Tess sefur endilöng í gamla IKEA sófanum mínum.

3.3.07

Tunglmyrkvi

Tunglmyrkvi var vel sýnilegur í heiðskýru veðri í kvöld. Ég tók náttúrulega mynd af fyrirbærinu. Mitt vandamál er, að þegar ég smelli af skek ég myndavélina ósjálfrátt, svo þetta er útkoman. Mér finnst fyrirbærið miklu merkilegra á myndinni en það var í raunveruleikanum!

1.3.07

SJ07 MWW

Nýji bíllinn hans Williams var afhentur í dag. Við fórum inní Glasgow og sóttum hann um hádegið, og svo fórum við aftur klukkutíma seinna og sóttum motturnar sem áttu að fylgja og ventilhettu. Eflaust eigum við eftir að fara nokkrum sinnum enn, því allt er grandskoðað, hver einasta skrúfa og muttering skal vera í sínum stað og allt verður að virka nákvæmlega samkvæmt bókinni sem fylgdi.