Birting
Eftir 10 tíma svefn vaknaði ég í góðu skapi. Aðallega er það vegna þess að allt gekk vel í gær, en líka vegna þess að kvefið er að batna, sólin er að hækka á lofti, og þessi voðaegi vetur er á enda. Það er drunglegt úti, þoka og kalt og rakt, svo veðrið er ekki til garðvinnu, en ég á moldarpoka og ég á fræ, og ég get sáð í bakka eða litla potta. Það get ég gert inni, verst hvað ég á það til að svína allt út þegar ég umpotta eða sái. En það verður að hafa það. Fræin skulu í mold í dag.


1 ummæli:
Glæsilegt. Ég er med kompu undir húsinu thar sem ég umpotta og subba allt út... Mold út um allt. En svo lokar madur bara skúrnum á eftir sér og enginn veit af thessu. Mér finnst gott ad eiga svona draslaraafdrep.
Skrifa ummæli