Uppáhaldsfugl
Þetta er spæta, eða "great spotted woodpecker." Þetta er sjaldgæfur og styggur fugl, en hneturnar eru ómótstæðilegar og hann hefur gogginn til að ná þeim. Ég tók þessa mynd út um gluggann í morgun. Því miður flaug einn svona fugl á rúðu hjá okkur í síðustu viku, og dó. Þeir fljúga geysihratt, og hann hefur líklega blindast af sól. Það var mikið áfall.

