30.12.07

25.12.07

Aðfangadagskvöld

Pappírinn er skemmtilegastur.

23.12.07

15.12.07

Jólatölva







Það fer ekki á milli mála hverslags gjafir eru kærkomnastar hjá húsfreyjunni á þessum bæ. Ilmvötn, skartgrgipir eða undirföt? Nei takk. Tæki og tól skulu það vera. Helst sem framúrstefnulegust. Jólin komu snemma, því þegar maður er orðinn gamall er engin ástæða til að vera að bíða með að skoða gjafirnar. Sérstaklega þegar maður velur þær sjálfur, og um svona skemmtilegt leikfang eins og þessa litlu, léttu og einstaklega sætu fartölvu er að ræða. Sú gamla var orðin ansi þreytt, og svo var hún geysi þung að sitja með. Ég sit nefnilega gjarnan í sólstofunni, í góða stólnum mínum, með tölvu á hnjánum.

12.12.07

Mikið var hann sætur!


Hver skyldi þetta nú vera? Jú, þetta er húsbóndinn á heimilinu, sem hefur eftir móður sinni að hann hafi verið einstaklega hláturmilt og ljúft barn.

Forskot á sæluna


Hér má sjá jólatré skreytt og ljósum prýdd strax uppúr fyrsta des., oftast stillt rétt innan við stofuglugga, svo þau sjáist vel af götunni. Ansi hlýtur glansinn nú að vera farinn af þeim þegar að jólunum kemur.
Sá var siður þegar ég var að alast upp að jólaskraut var sett upp á Þorláksmessu. Tréð var skreytt um kvöldið, og serían tékkuð, en ekki kveikt á því fyrir alvöru fyrr en jólin gengu í garð. Þessum sið hélt ég alla tíð meðan ég bjó heima, nema hvað ég setti aðventuljós og kannske seríu út í glugga svolítið fyrr.

Ég á enn litla gervitréð sem ég keypti fyrir aldarfjórðungi eða svo, og í fyrra var ég svo sniðug að ég skellti bara svörtum ruslapoka yfir það með seríunni og öllu skrautinu á, og stakk því inní skáp. Það verður því lítið verk að setja það upp - bara stinga í samband - sem ég áætla að gera um næsti helgi. Aðeins fyrr en venjulega.

8.12.07

Jólaskap

Hér á bæ fer lítið fyrir jólaönnum. Allt jólastand fer nefnilega í taugarnar á húsbóndanum. Hann er vanafastur og tilstand og tilbreyting er nokkuð sem hann kann ekki að meta. Ös í búðum, umferðarþungi, annir hjá póstburðarmönnum og kerling sem vill alltíeinu fara að fægja, þrífa allt hátt og lágt og hengja upp jólaskraut - allt þetta veldur miklum pirringi. Ég reyni þessvegna að halda jólaveseninu í skefjum, láta eins og ég sé bara að gera venjuleg laugardagsþrif, en laumast til að gera svona pínulítið extra. Ég er nefnilega mikill jólafíkill. Þegar líður á desember fer mér að finnast allt sem glitrar geysilega fallegt og ég þrái marsipan, rauðkál og rifsberjahlaup.
Kertaljós er nokkuð sem mér finnst óhugsandi að vera án, en ef ég kveiki á kerti í stofunni er mikið hóstað, og rokið til að opna glugga og lofta út. Ég kveiki því á jólaljósinu mínu í laumi, bak við lokaðar dyr hér uppí í kamesinu mínu.

1.12.07

Júlíus Bogason

Í gamla myndaalbúminu mínu er þessi mynd af hrúti. Þessi hrútur hét Júlíus Bogason, og var sameign pabba og Grímsa frænda. Í nokkur ár var hann faðir allra lambanna okkar.

Júlíus var mannelskur og barngóður, og ég notaði hann stundum sem reiðskjóta í káboj leik, með rauða hattinn minn á höfðinu. Ekki fór hann nú mjög hratt yfir.
Hann átti það til að vera stríðinn, og ef hann sá rass í góðu færi tók hann gott tilhlaup og stangaði. Bæði pabbi og Grímsi urðu fyrir barðinu á slíkum hrekkjum.
Júlíusi fannst brauð gott, og hann kunni að opna dyr. Hann opnaði útidyrnar með því að sparka í húninn með klaufinni, og kom svo beinustu leið inní eldhús, jarmandi dimmum hrútsrómi. Fyrst fór hann til Stínu, og svo kom hann til okkar og mamma gaf honum rúðgbrauðsbita.
Júlíus vann eitt sinn fyrstu verðlaun á hrútasýningu. Mér er minnisstætt þegar pabbi var að bursta hann og snyrta fyrir sýninguna. Smá peningaverðlaun fékk hann, sem voru notuð til rúgbrauðskaupa. Svo kom að hætta var á skyldleikaræktun í fjárhópnum, svo Júlíus var seldur inní fjörð. Hann kom samt labbandi í heimsókn, og inní eldhús til að fá brauð. Ef ég man rétt urðu endalok hans þau að hann varð fyrir slysi, fótbrotnaði, og var felldur. Þar fór góður gripur.

10.11.07

Multi-tasking

Það hefur alltaf verið mín sterka hlið að geta gert hundrað hluti í einu, allt í réttri röð og engu smáatriði gleymt. Þetta kom sér vel í starfi, og sömuleiðis við húsverkin. Meðan ég var uppá mitt besta þaut ég á milli herbergja þegar ég var að taka til, kippti með mér því sem átti að fara úr einum stað á annan, gerði eitt á meðan ég var á leiðinni að gera eitthvað annað, allt eftir ákveðnu kerfi, og áður en ég vissi af var allt komið á sinn stað, verki lokið. Nú er öldin því miður önnur. Ég æði enn um húsið, gríp með mér eitthvað sem á að fara á sinn stað, en gleymi oft hvað það var sem ég var að fara að gera. Ég er kannske að ryksuga uppi, innbyggða klukkan segir mér að þvottavélin sé líklega búin, svo ég hlussast niður, gríp með mér handklæðin á baðinu, sem geta farið í næstu vél. Þegar ég kem niður man ég að ég þarf að kippa kvöldmatnum úr frystinum, set handklæðin frá mér til að gera það, og gleymi þvottavélinni. Svo fer ég upp aftur til að klára að ryksuga, og man þá að ég gleymdi að losa þvottavélina - og var búin að týna handklæðunum. Ja hérna, elli kerling farin segja til sín.

Flensusprauta

Við hjónin fórum í flensusprautu í vikunni. Það kom bréf frá heilbrigðisyfirvöldum þess efnis að vegna aldurs ættum við nú kost á þessari þjónustu. Að auki var okkur boðin lungnabólgusprauta, sem William þáði, en ég varð að afþakka, því það verður að sprauta þeim sinni í hvorn handlegg, og ég má ekki láta sprauta neinu í annan handlegginn vegna hættu á bjúg. Nú vonum við bara að ef flensa kemur í vetur, þá verði það rétta flensan, en ekki einhver önnur, eins og t.d fuglaflensa.

4.11.07

Hvernig á að þvo bíl

Hér á bæ er fólk ósammála um hvernig eigi að þvo bíl. Þetta er kúltúrtengt, því ég tel að þvo skuli bíl á íslenskan máta: 1. Smúla bílinn vel til að hreinsa salt og ryk. 2. Þvo bílinn með svampi uppúr heitu sápuvatni. 3. Skola vel og lengi með rennandi vatni. 4. Þurrka. Húsbóndinn á heimilnu þvær bíl á skosku. Hann setur smá slatta af vatni í fötu, og fer svo yfir bílinn með litlum bursta. Hann framkvæmir verkið svo snyrtilega að ekki einn dropi slettist á hann. Þetta tel ég náttúrulega ekki almennilegan bílaþvott. Ég vil slöngu, rennandi vatn og gusugang. Vaðstígvél og gúmmíhanska. En slíkt bara tíðkast ekki hér. Bílar eru þvegnir uppúr fötu. Ég hef séð gluggaþvottamann koma og þvo alla glugga í öllum húsunum við götuna (nema okkar auðvitað, við kaupum ekki slíka þjónustu) uppúr einni vatnsfötu. Skotar spara nefnilega vatn, þó nóg sé af því.

3.11.07

Flugeldar

Árið 1605 reyndi Guy nokkur Fawkes ásamt félögum að sprengja upp þinghúsið í London. Bretar halda uppá þetta með brennum og flugeldum, þó uppákoman komist ekki í hálfkvist við áramótin heima. Ekki einusinni í hálfkvist á við þrettándann. En flugeldar eru óvinsælir meðal dýravina, því flest húsdýr - og auðvitað villt dýr líka, eru dauðhrædd við sprengingarnar. Hundur vinkonu minnar er svo hræddur að hann nötrar og skelfur, felur sig undir stiganum og neitar að fara út að pissa. Hún eyddi stórfé í hálsband sem á að gefa frá sér róandi lykt, og hún keypti líka ilmgjafa sem lyktar eins og mjólkandi tík. Ekkert dugar. Hjá dýralækninum er mikil sala á allskonar róandi lyfjum. Tess er, sem betur fer, ekki hrædd við flugelda. Hún er af veiðihundakyni, og ekki ólíklegt að ræktandinn sem við keyptum hana af hafi verið byrjaður að venja hvolpana við sprenginar. Hann þjálfaði veiðihunda, hafði valið tvo bræður Tess til þjálfunar.
Hér hefur verið nokkuð um sprengingar í kvöld, margir halda uppá "bonfire night" eins og það kallast hér, laugardaginn fyrir Guy Fawkes. En nú er allt hljótt, og best að fara að halla sér.

Laugardagsverk

Allt í laufi. Hér þarf alldeilis að taka til hendinni.

Vá! Búið að raka!

27.10.07

Laufin falla

Vorið er best, allt nýtt og fallega grænt. Sumarið er alltof stutt. Haustið minnir á fallvaltleika lífsins. Veturinn er óþolandi.

23.10.07

Áin Clyde

Clyde er eiginlega frekar fjörður en á, og skipgeng næstum upp til Glasgow. Árbakkarnir eru yfirleitt ekki mjög aðlaðandi, allskonar drasl og rústir af skipasmiðjum, en sumsstaðar eru skemmtilegar gönguleiðir.

13.10.07

Haust

Tíminn flýgur, alltíeinu er komið haust. Stundum þarf ég að hugsa mig um til að muna hvaða árstíð er, hvaða mánuður, hvaða dagur. Þetta þeytist einhvernveginn framhjá, hraðar og hraðar.

20.9.07

Brómber

William fann myndarlegan berjarunna í gær þegar þau Tess voru á síðdegisgöngu, svo í morgun trítlaði öll fjölskyldan í berjaferð. Það var nú ekki langt að fara, svona fimm mínútna ganga. Við berjuðum vel, og nú stendur til að baka "blackberry and apple crumble" - sem er mikill uppáhalds eftirréttur húsbóndans.

15.9.07

Haust

Alltíeinu er komið haust. Hitinn fór niður í fjögur stig í nótt. Flíspeysan og vettlingarnir voru grafin upp fyrir morgungönguna. Nú þarf að ganga frá garðinum fyrir veturinn, klippa niður það sem er of hávaxið og brotthætt fyrir vetrarstormana og hylja viðkvæmar plöntur með laufmold. Kannske kaupa smávegis af laukum til að hlakka til að sjá blómstra í vor.

11.9.07

Tómatauppskera

Einhvernveginn fór það fram hjá tómötunum sem ég reyndi að rækta í sumar í gróðurhúsinu mínu að þeir ættu að vera rauðir á litinn. Plönturnar voru allar farnar að visna, svo ég tíndi þá, og nú er ég að vona að þeir taki á sig lit í sólinni. Ef ekki, þá er að finna sér góða uppskrift af súrsuðum grænum tómötum.

2.9.07

Síðsumarblóm

Nágrannar okkar sáðu blönduðum blómafræjum í vor, og gáfu mér afgangsplöntur. Mig grunaði að þetta væri valmúi, og var að vona að hann væri rauður svo ég beið spennt eftir því að hann spryngi út. Ég held að mér hafi verið gefin besta plantan, því ég sé engan svona flottan í þeirra garði.

29.8.07

Brekkukotsannáll

Það verður leshópur hjá mér á mánudaginn og ég valdi íslenska bók fyrir liðið. Á ensku heitir Brekkukotsannáll The Fish Can Sing, og ég er að lesa hana og undirbúa kynninguna. Það verður fróðlegt að heyra hvað þeim finnst.

27.8.07

Garðurinn í morgun

Ég sé að það á að vera hægt að setja videó hér, svo ég útbjó smá slideshow með garðmyndum. Þetta er bara tilraun . . .

25.8.07

Gamlingjar

Við erum búin að fá gamalmenna strætókort. Nú getum við ferðast frítt vítt og breitt um landið. Ekki geri ég nú ráð fyrir því að við tökum upp þann sið að nota strætó, en það er ágætt að hafa svona kort ef maður vill sanna aldur, því hér fá börn og gamalmenni oft afslátt af aðgangseyri á sýningar og þessháttar. Mér finnst samt að þeir sem skönnuðu myndina af mér inná kortið hefðu mátt sleppa því að breya svona háralitnum á mér! Ég er kannske aðeins farin að grána, en þetta er nú einum of!

Gestakomur

Við fengum góða gesti í síðustu viku. Haukur og Dísa frá Ísafirði, ásamt fjölskylduliði voru að skoða sig um í Skotlandi og komu hér við, og á sunnudaginn kíkti Þórir Sandholt í heimsókn. Gestakomur eru sjaldgæfar hér, og því ákaflega kærkomnar.

16.8.07

Ojsen

Það dó kona úr salmonellu í vikunni, og sex aðrir veiktust illilega. Allir höfðu borðað kjöt frá Morrisons! Það var reyndar í Paisley, ekki nýja búðin okkar, en ég held ég sleppi því að versla hjá þeim!

3.8.07

Namminamm



Ný og geysilega glæsileg matvöruverslun var opnuð í næsta nágrenni við okkur í vikunni. Hingað til höfum við verslað í Sainsburys, sem er 20 mín héðan, eða í Somerfeld, sem er nær, en léleg. Þessi nýja búð er ekki nema 5 mín. héðan, og uppfyllir allar mínar óskir. Það er órtrúlegt úrval af yndislegum mat, allskonar kræsingum og mig langar að éta þetta allt eins og það leggur sig. Ég er eiginlega hálf stressuð að skilja allan þennan mat eftir í búðinni, því kannske missi ég af einhverju. Búðin opnaði á mánudaginn, og ég er búin að fara þrisvar!

Hvíldardagur

Undanfarnar vikur höfum við verið á kafi í púlsvinnu, en seinnipartinn í gær, eftir að við lukum við að moka hálfu tonni af kvarts möl í hjólbörur og dreifa umhverfis húsið og smúla stéttina, rann það upp fyrir okkur að við vorum BÚIN. Garðurinn snyrtur og illgresislaus, grasið slegið, þakrennur hreinsaðar, allir gluggar þvegnir, sólstofan þrifin að utan og innan . . . nú ætlum við að taka okkur góða hvíld og gera það sem okkur finnst skemmtilegast. Jú, var það ekki? Við sitjum hér sitt við hvora tölvu.

29.7.07

Sólardagar


Nú hefur sólin látið sjá sig, og í dag þrifum við stéttina kringum húsið með háþrýstidælu. Í gær slóum við grasflötina, klipptum kanta, hreinsuðum illgresi og plöntuðum nokkrum fjölærum plöntum sem okkur voru gefnar. Í fyrradag tókum við upp kartöflurnar og þvoðum, og gróðursettum runna. Garðurinn er afskaplega fallegur núna, kannske við getum einhverntíma, vonandi bráðum, SEST NIÐUR og slappað af í garðstólunum okkar. Þ.e.a.s. ef við verðum ekki dauð úr þreytu.

16.7.07

Skin og skúrir

Eftir mikla hellirigningu stytti aðeins upp í gær, svo við gátum notið sólarinnar í smá stund. En svo þykknaði upp og vatnsveðrið hélt áfram. Þetta hefur ekki verið gott sumar.

9.7.07

Rebbi litli

Þegar skyggir á kvöldin kemur rebbi litli í heimsókn. Þetta er stálpaður yrðlingur, alveg ótrúlega fallegur, og ég get ekki stillt mig og lauma út smá bita af hundamat fyrir hann. Í kvöld kom bróðir hans með honum og þeir léku sér góða stund í eltingaleik í garðinum.

Garðmyndir

Eftir leiðinda júní hefur aðeins birt, og sólin skín, allavega í dag. Nú ætla ég að setjast út í garð og gera ekkert. Bara njóta þess að vera til innan um öll blómin mín.




Þetta er nýjasta beðið, ekkert sprungið út enn, en alveg að koma.

Þetta er "nýji garðurinn" - þarna var aðal púlið við illgresishreinsun.
Þetta er bara smá hluti af svæðinu sem áður var í skugga. Hægramegin á myndinni er trjástubburinn, þar sem stóra tréð var.

1.7.07

Houston í heimsfréttunum

Neuk Crescent er gata í hverfi stutt frá okkur. Þar hefur löggan verið við leit frá því kl. 5 í morgun. Þarna höfðu tveir múslimir leigt hús, líklega þeir sem reyndu að sprengja flugstöðina á Glasgow Airport í gær. Pósthúsið hér í þorpinu er líka umkringt lögreglu, því þeir eru að skoða grunsamlegan bíl á bílastæðinu, og spítalinn þar sem ég hef verið í meðferð er í umsetursástandi, því annar terroristinn er þar, og að auki var löggan að enda við að sprengja upp bíl á bílastæðinu. Það er ansi óhuggulegt þegar þessi ófögnuður er kominn svona nálægt manni.

26.6.07

Steinhæðin

Þetta er mynd af steinhæðinni minni, tekin árið 2001. Snyrtilegar litlar steinhæðarplöntur, smágerðir runnar og vel skipulagðar raðir af sandsteinum. Allt var afskaplega nett og sætt. Svo liðu nokkur ár . . .

. . . og svona lítur steinhæðin út í dag. Algjört skipulagsleysi. Litlu plönturnar eru sumar dauðar, en aðrar orðnar að risum. Það hefur hvarflað að mér að ráðast á óræktina og rífa þetta allt upp mað rótum - og byrja svo uppá nýtt - en steinhæðin fyrrverandi ætti eiginlega að fara á náttúruverndarskrá. Þarna býr nú fjöldi smáfugla, ég hef ekki tölu á hreiðrunum, og í holum kringum steinana er skógarmúsabyggð. Íkornar eru daglegir gestir. Ég sit löngum stundum og bara horfi og dáist að lífinu í steinhæðinni.



24.6.07

Íslendingar á ferð

Við fórum að kaupa nauðsynjar í vikunni, og þar sem ég var á ferð um búðina með innkaupakörfuna heyrði ég háreisti og hlátur, og þegar hrópað var "Elva, sjáðu þetta" var greinilegt að hér voru landar mínir á ferð. Þetta voru fimm manns, hjón og þrír risastórir unglingar. Þau eldri voru við áfengishillurnar, í óðaönn að reyna að hlaða sem mestu í innkaupakerruna, krakkarnir voru í sælgætinu, og hrifsuðu vörur úr hillum með hávaða og látum, og hirtu ekki um að taka upp það sem á gólfið datt. Ekki veit ég hvernig þetta fólk hafði rambað á búðina "okkar" - þar sem allt er venjulega svo rólegt og afslappað. Þegar við vorum að borga sá ég hvar hópurinn marseraði á brott, með tvær drekkhlaðnar kerrur.

15.6.07

Sumarhret

Það hefur verið andstyggðar veður í nokkra daga, hvasst, kalt og blautt. Ég hef ekki getað reitt illgresi í tvo daga. Vetrar flíspeysan, sem ég var búin að þvo og brjóta saman og setja til hliðar, er aftur komin í notkun, og ég hefði verið með húfu og vettlinga í göngunni í morgun ef það væri ekki sumar núna, og maður gengur víst ekki þannig klæddur á sumrin. Í síðustu viku var 21 stigs hiti, nú er bara 11. Sem betur fer er spáin góð, á sunnudaginn ætti ég að geta ráðist aftur á illgresið.

9.6.07

Ferðalag

Við gistum á litlu, sætu ensku sveitahóteli.

Kalt er undir kastalavegg.

Familían fór í orlof að strönd Norðursjávarins, þar sem eru miklar sandstrendur og úrval af kastölum og virkjum allskonar. Við skoðuðum kastala- og klausturrústir á Lindisfarne, þar sem forfeður mínir víkingarnir rupluðu og rændu, og svo heimsóttum við Alnwick, þar sem hertoginn af Northumberland býr í stórri höll. Við fórum reyndar ekki inn (No dogs), en skoðuðum skrúðgarðinn. Það var kalt við Norðursjóinn, og á heimleiðinni reis hitamælirinn í bílnum um 12 stig, uppí 21. Nú er ég aftur tekin til við illgresisútrýmingu, og af meiri krafti en áður, því nágrannar mínir upplýstu mig um að "villiblómin" sem blóstruðu svo fallega á lóðinni í vor eru ekki villiblóm, heldur illgresi. Ég get ekki verið þekkt fyrir að rækta illgresi!

5.6.07

Lagt í ferðalag

Eftir ca tvo tíma - eða þegar ég verð tilbúin - leggjum við af stað í nokkurra daga ferðalag. Við ætlum að fara til Lindisfarne, sem er á austurströndinni, Englandsmegin við landamærin, og gista þar á hóteli sem leyfir gestum að hafa hunda með sér. Veðrið er ákjósanlegt til ferðalaga, svo nú er bara að drífa sig á fætur, borða morgunmat og leggja í hann.

Uppskera

Fyrsta uppskeran úr matjurtagarðinum, eða það sem eftir var af radísunum þegar ég var búin að skera burtu öll sniglabitin!





21.5.07

Garðvinna

Matjurtagarðurinn. Kartöflurnar komnar upp og sniglarnir eru ekki enn búnir að éta allt kálið.

Nýji garðurinn.
Eftir langan rigningakafla kom sólskin, og þá kom í ljós að allur gróður hafði tekið mikinn sprett, ekki síst illgresið. Nýji garðurinn okkar, þar sem stóra tréð var, er farinn að taka á sig mynd, við erum búin að útbúa beð og planta blómum og runnum. William stendur fyrir framan húsið. Hann fór þangað til að vera ekki á myndinni!

1.5.07

Alaskalúpína

Við söfnuðum Alaskalúpínufræjum á Álftanesi fyrir tveimur árum, sáðum, og í fyrra komu upp nokkrar plöntur sem allar voru samstundis étnar upp til agna af skoskum sniglum. Ein þeirra hefur þó náð rótfestu, því hún kom upp í ár, og er farin að blómstra.

29.4.07

Púlað í garðinum

"Nýji" garðurinn okkar, þ.e. svæðið sem áður var í skugga trésins sáluga er megin viðfangsefnið þessa vikuna. Það er reyndar nóg af gróðri þarna, en mest af því eru "villiblóm" - sem sumir kalla illgresi. Þarna er William að grafa holu fyrir lítið, sætt tré, og í dag ætlum við að gróðursetja þrjá runna. Fremst, bak við steinana, ætlum við að útbúa beð fyrir sumarblóm.

26.4.07

Blómlegt

Clematis plantan mín við húsdyrnar er flott þessa dagana. Það er eiginlega komið sumar, þó enn sé apríl.

Þessi vorblóm eru í fullum skrúða núna.

Af skógardúfuparinu er það að frétta að þau sitja sem fastast á hreiðrinu, láta lítið fara fyrir sér, og nærast ekki. Líklega vilja þau ekki auglýsa hvar þau búa, því krákur og önnur illfygli eru æst í dúfuegg - og unga. Vandamálið er að við læðumst um garðinn til að trufla ekki, og William getur ekki notað garðsláttuvélina því hávaðinn gæti raskað hreiðurrónni, og grasið vex og vex.

Í morgun voru þrír litlir íkornaungar að leika sér á flötinni, og garðurinn er ein smáfuglaparadís. Litlar skógarmýslur eru líka algeng sjón í kringum fuglaborðið. Þetta er eins og að búa í Disneymynd.

21.4.07

Skógardúfa


Stór fugl, stærri og þunglamalegri en venjuleg dúfa. Sést oft á matseðlum á fínum veitingahúsum. Skógardúfur eru algengar hér um slóðir, og tvær þeirra hafa nú tekið sér bólfestu í tré í garðinum, gegnt eldhúsglugganum mínum. Þær eru búnar að gera sér hreiður og líklega eru komin egg. Ég hef oft haft orð á því að gaman væri ef einhverjir smáfuglar gerðu sér hreiður í þessu tré okkar, en þessar hlussur! Þær eru eins og júmbó þotur og þegar þær lenda á trénu hristist það allt og skekst. Ég hef ekki reynt að taka mynd af parinu, því ég vil ekki trufla þau.

15.4.07

Sumarhiti

Allt í einu er komið sumar. Tuttugu stiga hiti, og sólskin. Garðurinn er allur að koma til, og mikill atgangur í smáfuglunum við hreiðurgerð. Ég fékk þá gáfulegu hugmynd að útbúa mér matjurtagarð í efsta horni garðsins. Það var áður í skugga, en er nú sólríkt eftir að stóra tréð féll. Við erum búin að stinga upp, hreinsa grjót og rætur og ég setti niður kartöflur í gær. Ég sáði líka radísum, spínati og salati í smá beð, og nokkrar blómkáls- og tómatplöntur bíða í gróðurhúsinu. Vonandi get ég gætt mér á heimaræktuðu salati, þ.e. ef sniglarnir verða ekki á undan mér að éta það allt.

14.4.07

Mont

Ég má til að monta mig aðeins yfir því hvað neglurnar á mér eru orðnar fínar, að maður tali nú ekki um nýja demantshringinn sem eiginmaðurinn gaf mér í tilefni 10 ára brúðkaupsafmælis.

7.4.07

Fritillaria

"Er Fritillarian þín sprungin út?" var ég spurð í leshópnum á mánudaginn. Judith er nefnilega mikil áhugakona um garðrækt, og afskaplega stolt af Fritillariunum sínum. Ég gat svarað játandi, því mín er sko líka sprungin út. Það komu þrjú blóm á hana í fyrra, en nú eru miklu fleiri knúppar og mér sýnist hún bara þrífast vel hjá mér. Mikið er ég stolt!

4.4.07

Gleðilega Páska!

Með þessum blómum óska ég ykkur gleðilegra páska. Myndina tók ég í garðinum í vorsólinni í dag.

3.4.07

Tíu ár

Tess í essinu sínu, að vanda.

Þann 3. apríl 1997 fórum við William til Sýslumannsins í Hafnarfirði og létum pússa okkur saman. Við eigum sem sagt tíu ára brúðkaupsafmæli í dag. Við héldum uppá daginn á okkar sérstaka hátt: fórum á ströndina með Tess, og komum við í Tesco á leiðinni og keyptum okkur samlokur í nesti. Tess át sitt nesti eins hratt og hún gat, og neytti síðan allra bragða til að fá William til að gefa sér samlokuna sem hann var að reyna að borða. Hann borðaði hana þessvegna svo hratt að hann fékk hiksta og brjóstsviða. Það var sól, en svalt við sjóinn, en William gleymdi húfunni og jakkanum í bílnum því hann var upptekinn við að leiða athygli Tess frá tveimur illvígum hundum sem voru á bílastæðinu. Þegar heim var komið vorum við, gamalmennin, (sérstaklega William) svo útjöskuð eftir daginn, að við hættum við að fara út að borða. Það verður því steikt nautahakk í hátíðamatinn, sem er það eina sem til er í frystinum. Kannske maður fái sér rauðvínsglas með matnum!

Fjölskyldan slappar af í sólstofunni eftir erfiðan dag.

25.3.07

Gróðurhús

Nú er kominn mikill vorhugur í mig, og í gær settum við upp "gróðurhús." Eiginlega er þetta nú bara plasttjald, en ég get staðið upprétt í því, og nota það fyrir græðlinga. Ég er líka búin að sá allskonar fræjum í bakka. Svo þegar vorið verður komið fyrir alvöru og allar þessar plöntur komnar út í garð, ætla ég að reyna að rækta tómata í gróðurhúsinu. Gaman, gaman.
Vonandi fjúka öll herlegheitin ekki út í buskann í næsta vestanroki.

23.3.07

Stressleysi

Við hjónakornin keyptum okkur forláta Stressless stóla á dögunum, til að sitja í fyrir framan nýja sjónvarpið. Þessir stólar eru einstaklega vel fallnir til að fá sér blund í, svo það má yfirleitt sjá okkur tvö steinsofandi í stólunum okkar, meðan Tess sefur endilöng í gamla IKEA sófanum mínum.