11.4.10
6.4.10
Mikill hlátur
Mikið er ég búin að skemmta mér í morgun. Ég er nýfarin að nota Google Chrome vafrann, og þegar ég var a lesa Moggann sá ég efst á síðunni box þar sem stóð: This page is in Icelandic. Would you like to translate it. Sem ég gerði og fékk á yndislegusu bjöguðu ensku sem hægt er að hugsa sér. Eftir að hlægja mig máttlausa að Mogganum datt mér í hug að prófa þetta á mínu eigin bloggi: Hér er útkoman. Þetta er textinn sem ég setti inn í gær:
To boil eggs
5.4.10
Að sjóða egg
Það er sagt um lélega kokka að þeir kunni ekki einu sinni að sjóða egg. Ég er því lítill kokkur því ég get ómögulega soðið egg svo eiginmanninum líki. Rauðan á nefnilega að vera lin, en hvítan verður að vera vel hlaupin. Einn daginn sauð ég eggið í fjórar mínútur, og viti menn, fékk hól fyrir. Næst sauð ég því eggið líka í fjórar mínútur, en þá var það of harðsoðið. Líklega hefur það verið aðeins minna egg. Ég sauð næsta egg í þrjár mínútur, en þá var það of linsoðið. Hann tók það ráð að setja það í örbylgjuna en á nokkrum sekúndum varð það harðsoðið - og því óætt. Sú sem mest græðir er náttúrulega Tess, því hún fær að éta öll þessi mislukkuðu egg.
