26.6.07

Steinhæðin

Þetta er mynd af steinhæðinni minni, tekin árið 2001. Snyrtilegar litlar steinhæðarplöntur, smágerðir runnar og vel skipulagðar raðir af sandsteinum. Allt var afskaplega nett og sætt. Svo liðu nokkur ár . . .

. . . og svona lítur steinhæðin út í dag. Algjört skipulagsleysi. Litlu plönturnar eru sumar dauðar, en aðrar orðnar að risum. Það hefur hvarflað að mér að ráðast á óræktina og rífa þetta allt upp mað rótum - og byrja svo uppá nýtt - en steinhæðin fyrrverandi ætti eiginlega að fara á náttúruverndarskrá. Þarna býr nú fjöldi smáfugla, ég hef ekki tölu á hreiðrunum, og í holum kringum steinana er skógarmúsabyggð. Íkornar eru daglegir gestir. Ég sit löngum stundum og bara horfi og dáist að lífinu í steinhæðinni.



24.6.07

Íslendingar á ferð

Við fórum að kaupa nauðsynjar í vikunni, og þar sem ég var á ferð um búðina með innkaupakörfuna heyrði ég háreisti og hlátur, og þegar hrópað var "Elva, sjáðu þetta" var greinilegt að hér voru landar mínir á ferð. Þetta voru fimm manns, hjón og þrír risastórir unglingar. Þau eldri voru við áfengishillurnar, í óðaönn að reyna að hlaða sem mestu í innkaupakerruna, krakkarnir voru í sælgætinu, og hrifsuðu vörur úr hillum með hávaða og látum, og hirtu ekki um að taka upp það sem á gólfið datt. Ekki veit ég hvernig þetta fólk hafði rambað á búðina "okkar" - þar sem allt er venjulega svo rólegt og afslappað. Þegar við vorum að borga sá ég hvar hópurinn marseraði á brott, með tvær drekkhlaðnar kerrur.

15.6.07

Sumarhret

Það hefur verið andstyggðar veður í nokkra daga, hvasst, kalt og blautt. Ég hef ekki getað reitt illgresi í tvo daga. Vetrar flíspeysan, sem ég var búin að þvo og brjóta saman og setja til hliðar, er aftur komin í notkun, og ég hefði verið með húfu og vettlinga í göngunni í morgun ef það væri ekki sumar núna, og maður gengur víst ekki þannig klæddur á sumrin. Í síðustu viku var 21 stigs hiti, nú er bara 11. Sem betur fer er spáin góð, á sunnudaginn ætti ég að geta ráðist aftur á illgresið.

9.6.07

Ferðalag

Við gistum á litlu, sætu ensku sveitahóteli.

Kalt er undir kastalavegg.

Familían fór í orlof að strönd Norðursjávarins, þar sem eru miklar sandstrendur og úrval af kastölum og virkjum allskonar. Við skoðuðum kastala- og klausturrústir á Lindisfarne, þar sem forfeður mínir víkingarnir rupluðu og rændu, og svo heimsóttum við Alnwick, þar sem hertoginn af Northumberland býr í stórri höll. Við fórum reyndar ekki inn (No dogs), en skoðuðum skrúðgarðinn. Það var kalt við Norðursjóinn, og á heimleiðinni reis hitamælirinn í bílnum um 12 stig, uppí 21. Nú er ég aftur tekin til við illgresisútrýmingu, og af meiri krafti en áður, því nágrannar mínir upplýstu mig um að "villiblómin" sem blóstruðu svo fallega á lóðinni í vor eru ekki villiblóm, heldur illgresi. Ég get ekki verið þekkt fyrir að rækta illgresi!

5.6.07

Lagt í ferðalag

Eftir ca tvo tíma - eða þegar ég verð tilbúin - leggjum við af stað í nokkurra daga ferðalag. Við ætlum að fara til Lindisfarne, sem er á austurströndinni, Englandsmegin við landamærin, og gista þar á hóteli sem leyfir gestum að hafa hunda með sér. Veðrið er ákjósanlegt til ferðalaga, svo nú er bara að drífa sig á fætur, borða morgunmat og leggja í hann.

Uppskera

Fyrsta uppskeran úr matjurtagarðinum, eða það sem eftir var af radísunum þegar ég var búin að skera burtu öll sniglabitin!