Fullt starf
Sárið á maganum á Tess vill ekki gróa. Við gerum það sem í okkar valdi stendur til að vernda það fyrir henni, því hún lætur það ekki í friði. Plástrar og aðrar umbúðir eru samstundis tætt í burtu, því líklega klæjar hana undan þeim. Á föstudaginn fór að blæða úr sárinu í hvert sinn sem hún byrjaði að sleikja æxlið. Það er eins og svampur. Okkur tókst að stemma blæðinguna, en síðan höfum við verið á vöktum, til að passa að hún snerti þetta ekki. Næturnar eru verstar, því við þurfum jú að sofa. William vakir til 3, en ég fer á fætur klukkan 5. Tess sefur í síðum náttkjól af mér.





