Þegar tilfinningarnar ráða ferðinni
Bíllinn minn er þrettán ára, en er sjaldan notaður. Húsbóndinn sér um allan akstur, svo það er kannske ekki skynsamlegt að hafa tvo bíla. Það er dýrt að borga trygginar og viðhald, nokkuð sem eiginmaðurinn hefur þó gert af góðsemi sinni. Ég tók þá ákvörðun að losa mig við bílinn, og eftir að hafa fengið tilboð frá bílasölu uppá nokkur pund var lagt af stað með hann. Á leiðinni fóru hinsvegar að renna á mig tvær grímur. Hvernig í ósköpunum get ég, eftir að hafa átt bíl í 40 ár, verið bíllaus? Ég sem hef svo gaman af að keyra, þó ég geri alltof lítið af því. Þegar ég lagði fyrir utan bílasöluna var ég nánast með kökkinn í hálsinum - og gat ekki hugsað mér að skilja hann eftir. Ég keyrði því glöð heim aftur í sólskininu, með útvarpið á fullu.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli