Uppþornuð
Vinstra augað hefur angrað mig lengi, ég vakna iðulega með bólgið auga og eldrauða hvítu, og sé ekki hálfa sjón. Ég er búin að prófa allskonar dropa og fara þrisvar til læknis. Yfrleitt skánar þetta meðan ég er á dropum, en eftir nokkrar vikur fer allt í sama horf. Í gær fékk ég svo loksins tíma hjá alvöru augnlækni, og það tók hann innan við tíu mínútur að sjá hvað á bjátar. Ég er að þorna upp. Tárakirtlarnir eru hættir að virka. Mér fannst það skrýtið um daginn, þegar ég var að saxa lauk að ég grét bara með öðru auganu! Nú er ég búin að fá áburð til að setja í augað fyrir svefn og flösku af gerfi tárum sem ég á að nota þrisvar á dag - það sem eftir er ævinnar. Illt er að vera orðin gömul.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli