9.7.10

Tölvur

Ég keypti mér litla Samsung NB30 Netbook um daginn. Hún leysti HP laptop tölvuna mína af hólmi, því hún bilaði skyndilega.

Ég er búin að eyða mörgum klukkutímum í að setja þá nýju upp, finna út hvaða hugbúnaður hentar henni best, og setja inn öll mín netföng og tengla. Nú er allt komið á sinn stað. Ég  nota Google Chrome browser, því hann er léttastur og tekur minnst pláss á skjánum. Það er bara 10 tommu skjár á þeirri nýju. Það er Windows 7 Starter á henni, og það fylgdi ekki email prógram. Ég sótti Windows Essentials til Microsoft (frítt) sem inniheldur m.a. Windows Live Mail. Sá hugbúnaðir fannst mér ómögulegur, ljósblátt letur á ljósbláum grunni, og hvergi fann ég "check mail" takka. Windows Messenger fylgdi með, og það tók mig langan tíma að losa mig við hann.  Ég nota núna Thunderbird frá Mozilla. 
Kostirnir við þessa litlu tövlu eru hvað hún er létt, og þægilegt að taka hana með sér mili herbergja í húsinu. Rafhlaðan er mjög góð, og endist í allt að 10 tíma. Ég starta henni á morgnana, set hana í samband smátíma og hleð, meðan ég les fréttirnar á netinu, og svo stilli ég hana á "sleep" þannig að ég þarf bara að lyfta lokminu og hún er komin í gang aftur. Gallar: ekki alveg eins fljót að "hugsa"eins og stærri vélar. En hún þjónar vel sínum tilgangi. 



Engin ummæli: