15.6.10

Trjáspör

Það eru tvær tegundir af "spörvum."  Gráspör er algengur í þéttbýli, en trjáspör - eins og nafnið bendir til - í skóglendi. Ég hef hinsvegar ekki séð þá í garðinum fyrr en í vor, að einn fór að venja komur sínar í "mat." Svo bættist annar við, og tilhugalífið tók við. Það fólst helst í því að finna hvíta fjöður og dansa með hana í gogginum fyrir framan þá heittelskuðu, svona til að segja: "Sjáðu nú bara gæskan mín hvað hreiðrið okkar verður mjúkt og notalegt."  Í fyrradag, þar sem ég sat í sólstofunni í morgunsárið sá ég hvar fuglahópur kom alltíeinu fljúgandi. Tveir gogguðu í fóðrið og gáfu svo hinum fjórum að borða. Þarna voru trjáspörvahjónin mín komin, með fjóra frísklega unga. Það eru svona stundir sem gefa lífinu hér gildi.
Myndina tók ég í gær, út um gluggann með aðdrætti, svo hún er ekki mjög skörp.

Engin ummæli: