Tungumál
Þau þrettán ár sem ég hef verið hér hef ég afskaplega sjaldan haft tækifæri til að tala móðurmálið. Ég hef aldrei verið svo heppin að fyrirhitta hér aðra íslendinga og hef því bara getað talað íslensku í stuttum heimsóknum mínum til Íslands, og kærkomnum símtölum og heimsóknum frá fjölskyldu og vinkonum. Ég er skíthrædd um að ég fari að ryðga, og sletta ensku. Ég er komin á þann aldur að ég tuða heilmikið, við sjálfa mig og við Tess, og síðan ég tók eftir því að þetta var orðið á einhverskonar málruglingi, hef ég gert mitt besta til að tuða bara á íslensku. Eða prentaradönsku, sem var uppáhaldsmálið okkar pabba "í dí gúðe gamle dager po Ísafjörður."

Engin ummæli:
Skrifa ummæli