Ingibjörg Elín Elíasdóttir, f. 26.6.1910, d. 10.2.1958.
Í dag, 26. júní, eru 100 ár frá því að mamma fæddist.
Foreldrar mömmu voru Elías Hálfdánsson og Elísabet Jónsdóttir, Hnífsdal. Þegar Elísabet dó, árið 1911, gengu bróðir Elíasar, Hálfdán í Búð, og Ingibjörg kona hans mömmu í foreldra stað.
4. nóvember 1933 giftist mamma Jóni Halldórssyni frá Miðdalsgröf í Strandasýslu. Ég var nýfædd þegar við fluttum í Skriðu á Ísafirði, sem pabbi byggði sjálfur.
Mamma var dugleg og metnaðarfull kona, ekki sist fyrir hönd barnanna sinna, okkar Halla. Hún var kappsöm og geysilega vandvirk. "Það kemur fram í seinna verkinu sem gert er í því fyrra" sagði hún gjarnan,- nokkuð sem ég hef reynt að tileinka mér.
Árin okkar í Skriðu urðu fimmtán. Björt bernskuár, en alltof oft skyggð af erfiðum veikindum mömmu. Þeim lauk árið 1958, þegar mamma dó, aðeins 47 ára.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli