Garðurinn í gær.
| Ég hef eytt mestum tíma í þann hluta garðsins sem snýr að götunni. Auðvitað vill maður að nágrannarnir sjái - og vonandi dáist að því hvað þetta er allt blómlegt. |
Þetta er bak við hús. Í gær eyddum við deginum í að klippa niður ofvaxna plöntu sem var búin að taka yfir það sem einu sinni átti að vera steinhæð. Þarna úir og grúir af burknum og hálf kæfðum plöntum af ýmsu tagi, og greinilega hefur þetta verið vanrækt og er til skammar.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli