6.6.10

Hjálpræði

Nágrannar okkar (beint á móti), Ian og May,  eru bæði majórar í Hjálpræðishernum. Þetta er rólyndisfólk sem lítið fer fyrir, nema þegar hann kemur heim á stóra eldhúsbílnum. Þessi bíll er notaður þegar stórbrunar eiga sér stað. Þá fer Hjálpræðisherinn á vettvang og gefur brunaliðinu te og "bacon butties." (Stór, mjúk rúnnstykki með beikoni og brúnni sósu).  Stórmarkaðir eru rausnarlegir við Hjálpæðisherinn og gefa þeim það sem til þarf, og vel útilátið, þannig að oft er mikill matur afgangs. Þá afganga færir Ian okkur nágrönnunum.
Það var enn einu sinni kveikt í gömlu Patons verksmiðjunni í Johnstone í vikunni. Hún hefur staðið ónotuð í áratugi, en nú er hún alveg horfin. Við fengum pylsur, bacon, banana og fullt af stórum, hvítum rúnnstykkjum (sem við gefum dúfunum.)

Engin ummæli: